Pressan - 29.07.1993, Side 10
F R E TT I R
10 PRESSAN
Fimmtudagurinn 29. júlí 1993
Umdeildar starfsaðferðir „handrukkarabanans" í Vökíun
/ / / /
FOR SJALFURINÆTURHBMSOKNIR
VEGNA HANDRUKKUNAR SEM ENUIN KAR
Dreymir um landvinninga erlendis
I síðustu PRESSU var sagt frá því
þegar Guðmundur I. Þóroddsson í
Vöktun taldi sig hafa tekið upp á
segulband hótanir handrukkara í
Breiðholti. 1 ljós kom að engar hót-
anir voru á bandinu auk þess sem
Guðmundur reyndist sjálfur vera
ábyrgðamaður á skuldabréfinu sem
verið var að innheimta. Guðmund-
ur fór sjálfur síðar í næturheimsókn
í nafni Vöktunar á heimili Þórðar
Sveinbjörnssonar, en einu afskipti
hans af málinu voru að fara með
bréfið í innheimtu á lögfræðiskrif-
stofu fyrir eiganda bréfsins, Helga
Helgason.
Næturheimsóknir og lygar
á Stöð 2
„Þessi Guðmundur er að státa sig
mikið af að hafa uppi á handrukk-
urum en segir ekki frá því að hann
er ábyrgðarmaður fyrir þessu bréfi
sem hann segir að sé verið að
handrukka, sem er náttúrlega ekki
rétt. Svo lýgur hann því hreinlega á
Stöð 2 og víðar hvað var á upptök-
unni“, sagði Þórður í samtali við
blaðið.
Þórður segist hafa fengið ein-
kennilega næturheimsókn frá Guð-
mundi og félaga hans í Vöktun.
Skömmu eftir miðnætti kvöld eitt
hafi þeir bankað upp á, kynnt sig
sem öryggisverði og spurt eftir
Þórði. Dóttir hans, 17 ára, var ein
heima og sagði föður sinn ekki
heima og ekki móður sína heldur.
Þá spurðu þeir eftir syninum,
Hrafni, sem býr skammt frá. „Það
er ekkert með það að þessir höfð-
ingjar halda áfram för sinni og fara
til sonar míns. Klukkan er langt
gengin í eitt þegar þeir berja þar
dyra og hafa uppi kvartanir um það
að ég stæði fýrir að láta handrukka
skuld. Þeir voru alls ekki kurteisir
þótt ekki hafi verið um hótanir að
ræða.
Að mínu mati brýtur hann gróf-
lega á fr iðhelgi heimilisins. Hann fer
með falsanir í frétt Stöðvar 2 um
þátt hans í upptökunni og hvað var
á henni. Þá getur hann þess ekki að
hann er sjálfur ábyrgðarmaður á
bréfinu sem ekkert hefur innheimst
af. Ef Guðmundur er eins heiðarleg-
ur og hann vill vera láta þá ætti
hann að reyna að koma sínum
skuldamálum í lag.“
Sala á landa og þýfi
Guðmundur í Vöktun segir að
þessar næturheimsóknir hafi verið
fyrir miðnætti. Hann hafi talið að
Þórður ætti kröfuna og stæði fyrir
þessum meintu handrukkunum.
Þegar ljóst hafi verið að Þórður hafi
ekki verið heima hafi þeir viljað at-
huga hvort sonur hans tengdist
málinu þar sem þeir vissu að hann
tengdist eitthvað mótorhjólum. Þá
segir hann vinnubrögð RLR hrika-
lega léleg. Hann segir að þeir hafi
ráðlagt sínum mönnum að kæra
ekki þar sem ekkert benti til að um
hótanir hafi verið að ræða. Hins
vegar fullyrða öryggisverðir hans að
þeir hafi heyrt hótanir í gegnum
dyrasíma en hvorki Guðmundur né
aðrir í Vöktun hafi fengið að heyra
upptökumar.
Það eru 39 kryddtegundir í
Caj P.s grill- og steikarolíunni
Jr egar þú grillar, steikir eða marinerar
skaltu nota Caj P.’s grill og steikarolíuna.
Caj P.’s inniheldur 39 ólíkar kryddtegund-
ir og þegar þú finnur kryddlyktina kemstu
að raun um, að Caj P.’s grill- og steikarol-
ían er allt sem þarf til að gera steikina
bragðbetri og bragðmeiri.
uu/
Jarlinn
JARLINN notar
eingöngu Caj P.’s grill-
olíu á sínar landsfrægu
steikur.
GUÐMUNDURI. ÞÓRODDSSON „Handrukkarabaninn" er 19 ára pittur sem hefur sett nokkur fyrirtæki á laggirnar. Hjá Vöktun vinna níu
öryggisverðir og tveir sölumenn og hann segir viðskiptavinina líklega á annan tug. Hann segir lítið að gera hérlendis en hyggur á land-
vinninga á Norðurlöndunum og samstarf við Lífvarðaskólann og alþjóðasamtök lífvarða.
PRESSAN hefur traustar
heimildir fyrir því að Guð-
mundur hafi verið tekinn fyrir
sölu á landa og þýfi sem fengið
var úr Seljaskóla. Guðmundur
neitar því alfarið en segir orð-
rómi um slíkt vera ástæðuna
fýrir því að hann hafi verið lát-
inn hætta hjá öryggisþjónust-
unni Vara. Hann segir ástæð-
una fýrir þessum orðróm liklega
vera þá að þeir hafi unnið við að
upplýsa bmggmál.
Ungt öryggisfyrirtæki
sem hyggur á landvinn-
inga erlendis
Fyrirtækið Vöktun er þriggja
mánaða gamalt og Guðmundur
segir þá hafa á annan tug við-
skiptavina. Hjá honum starfi
níu öryggisverðir og tveir sölu-
menn og þeir hafi góða stjórn-
stöð. Allir öryggisverðirnir eru
þjálfaðir sem björgunarsveitar-
menn eða dyraverðir.
„Vöktun er alhliða öryggis-
þjónusta. Við tökum að okkur allt
sem tengist öryggisþjónustu og
gæslu. Við vöktum fyrirtæki og
íbúðarhús á nóttunni og höfum
tekið að okkur gæslu á sveitaböll-
um, tónleikum og útihátíðum. Við
erum þeir einu sem tökum að okk-
ur fólk sem kemur frá údöndum og
vill einhverja vernd“, segir Guð-
mundur.
„Við erum að fara að markaðs-
setja þetta úti líka, í Svíþjóð og ann-
ars staðar. Það er ekki mikið að gera
í þessu hérna. Við ætlum að reyna
að fara í samstarf við Lífvarðaskól-
ann sem er að byrja. Hann kennir
okkur það sem hann kann og við
útvegum verkefni og annað slíkt.
Og við ætlum okkur að reyna að
gerast umboðsaðilar fýrir IBA, Int-
emational Bodyguard Association.
Svo emm við í sérverkefnum eins
og þama með handrukkunina.
Við erum nokkuð slungnir við
svona. Svo höfum við verið í öðm
sem hefur ekki komið í fjölmiðlum,
bruggmálum og svo höfum við
fundið dóp.“
Umdeild þjónusta
Ekki em allir á eitt sáttir um ágæti
þjónustunnar og verslunareigendur
hafa kvartað yfir þeirri þjónustu
sem Vöktun segist bjóða upp á.
Kona nokkur fékk einnig tilboð um
að fýrirtækið vaktaði fýrir hana hús-
ið og segir að þeir hafi sagt að lög-
reglan aðstoði þá við vöktun húsa.
„Við emm að reyna að bjóða ör-
ugga og ódýra þjónustu, ódýrari en
Vari og Securitas og við höfúm orð-
ið varir við að það er búið að segja
þeim upp á mörgum stöðum vegna
óliðlegheita og þess hvað þeir eru
dýrir. Við eigum tvímælalaust fram-
tíðina fýrir okkur.“
Þessi ungi athafnamaður hefur
áður staðið í fýrirtækjarekstri. Hann
stofhaði íslensku fýrirtækjasöluna á
sínum tíma, var með vídeóleigu og
rak samlokugerðina Islenska
skyndirétti. Þá stofhsetti hann ham-
borgarastaðinn Heimsborgarann í
Tryggvagötu sem átti afar fáa líf-
daga.____________________________
PálmiJónasson