Pressan - 29.07.1993, Blaðsíða 18

Pressan - 29.07.1993, Blaðsíða 18
SKOÐA N IR 18 PRESSAN Fimmtudagurinn 29. júlí 1992 PRESSAN Útgefandi Blað hf. Ritstjóri Karl Th. Birgisson Ritstjórnarfulltrúi Sigurður Már Jónsson IVIarka5sst|óri Sigurður I. Ómarsson Ritstjóm, skrifstofur og auglýsingar: Nýbýlavegi 14 - 16, sími 64 30 80 Faxnúmer: Ritstjórn 64 30 89, skrifstofa 64 31 90, auglýsingar 64 30 76 Eftir iokun skiptiborðs: Ritstjórn 64 30 85, dreifine 64 30 86. tæknideild 64 30 87 Áskriftargjald 798 kr. á mánuöi ef greitt er með VISA/EURO en 855 kr. á mánuði annars. PRESSAN kostar 260 krónur í lausasölu Fordómarnir fá viðurkenningu Á íslandi er komin upp fyrirsjáanleg, en einkar ósmekkleg umræða um erlendar konur sem giftar eru íslendingum. Is- lenzk kona af sómölsku bergi brotin skrifar grein í Morgun- blaðið og segir í meginatriðum að konur ffá Þriðja heimin- um, búsettar hérlendis, séu yfirleitt giftar slúbbertum sem panti þær eftir póstlistum og misþyrmi þeim þegar hingað kemur. Það var eins og íslenzka þjóðarsálin hefði beðið í ofvæni eftir að einhver segði henni ffá þessu þjóðfélagsvandamáli — slík voru viðbrögð almennings og skoðanahönnuða í fjöl- miðlum. Það eru viðbrögð þjóðar sem fær svo sjaldan tæki- færi til að opinbera fordóma sína að henni halda engin bönd þá loks tækifærið kemur. Lýsingin í Morgunblaðsgreininni hljómar sannfærandi af því að það er aðflutt kona sem ber hana ffam. Þó nefnir hún engin dæmi eða tölur máli sínu til stuðnings — og það þótt þrálega sé farið ffam á það af blaðamönnum á þessu blaði og eflaust fleirum. En konunni er hrósað fyrir hugrekki sitt, að „þora að segja sannleikann“, án þess að nokkur hafi fyrir því að leita að staðreyndum í málinu. Sá grunur læðist óneitanlega að, að Islendingar vilji trúa þessum lýsingum burtséð frá því hvernig málið er vaxið í raun og veru. Þorri íslendinga hefur því miður alltaf litið þessi hjónabönd hornauga og eflaust er mörgum huggun og fró í því að „sérfræðingur“ skuli nú loks hafa staðfest for- dóma þeirra. Það er hættulega hliðin á þessari umræðu: að ala á útlendingahatri og heimóttarskap íslendinga sem alltaf sýnir sinn ljóta haus þegar tilefhin gefast. Þeir fordómar hafa nú fengið það sem nálgast að vera opinber viðurkenning. Staðreyndin er sú að langflest þessara hjónabanda hafa heppnazt einkar vel. Frásagnir þriggja kvenna í PRESSUNNI í dag bera vitni um það, svo og ótaldar dæmisögur af fólki sem leyfir sér að vera hamingjusamt í hjónabandi þótt af ólíkum uppruna sé — og þótt smátt hugsandi nágrönnum finnist sér og fordómum sínum ógnað með því. Upplýsingar frá Kvennaathvarfi og öðrurn stofnunum sýna vissulega að þangað leita konur af asísku og afrísku bergi brotnar. Hins vegar bendir ekkert til þess að hlutfall þeirra sé óeðlilega hátt; kvennaathvörf eru nefnileg yfirfull af konum sem ekki eru fengnar í gegnum póstlista, eru alís- lenzkar og hvítar, en er samt misþyrmt af eiginmönnum sín- um. I Morgunblaðsgreininni var varpað fram annarri hug- mynd: að erlendar konur ættu ekki að fá ríkisborgararétt fyrr en þær hafa lært íslenzku. Þessi tillaga hefur eflaust kitlað Is- lendinga. I henni getur ekld falizt annað en að fólk sé látið taka einhvers konar málfræði- eða stafsetningarpróf til að sanna að það sé hæft til að teljast íslendingar. Umræða síð- ustu daga bendir hins vegar til þess að nærtækara sé, að ríkis- borgararéttinum fýlgi bevís upp á umburðarlyndi í meiri mæli en íslendingum hefur tekizt að sýna erlendu fólki sem kýs að búa hér með íslenzkum ástvinum sínum. BLAÐAMENN Bergljót Friðriksdóttir, Friörik Þór Guömundsson, Guörún Kristjánsdóttir, Gunnar Haraldsson, Jim Smart Ijósmyndari, Kristján Þór Árnason myndvinnslumaöur, Margrét Elísabet Ólafsdóttir, Pálmi Jónasson, Sigríður H. Gunnarsdóttir prófarkaiesari, Snorri Ægisson útlitshönnuöur, Steinunn Halldórsdóttir, Telma L. Tómasson. PENNAR Stjórnmál: Árni Páll Árnason.Einar Karl Haraldsson, Guðmundur Einarsson, Hannes Hólmsteinn Gissurarson, Hrafn Jökulsson, Hreinn Loftsson, Möröur Árnason, Ólafur Hannibalsson, Óli Björn Kárason, Þórunn Sveinbjarnardóttir, Össur Skarphéðinsson. Listir: Einar Örn Benediktsson, mannlíf, Guðmundur Ólafsson, kvikmyndir, Gunnar Árnason, myndlist, Gunnar Lárus Hjálmarsson popp, Kolbrún Bergþórsdóttir bókmenntir, Martin Regal Ieiklist. Teikningar: Ingólfur Margeirsson, Kristján Þór Árnason, Snorri Ægisson, Einar Ben. AUGLÝSINGAR: Ásdís Petra Kristjánsdóttir, Pétur Ormslev. Setning og umbrot: PRESSAN Filmuvinnsla, plötugerö og prentun: ODDI Danska kjötið og deildarstjórinn Það fylgir sumrinu, lesendur góðir, að við þingverðimir þurf- tun að gera fleira en fellur bein- línis undir starfslýsingu okkar, til dæmis að vera ráðherrabíl- stjórar í afleysingum. Það er auðvitað tilbreyting að losna frá því að færa honum Friðriki pil- snerinn sinn, en það er hins veg- ar alls ekki tekið út með sæld- inni að vera ráðherrabílstjóri. Ég hef lent í einu og öðru, og þó aldrei eins og fýrir skömmu þegar Jim Beam Hannibalsson vantaði skyndilega bílstjóra. Ég ætlaði aldrei að segja ffá þessu opinberlega, en úrþvi ill- gjamir fréttamenn hafa verið að velta sér upp úr kjöttutlunum hennar Bryndísar þá er eins gott að sagan komist á framfæri ein- sog hún er rétt Þetta var semsagt á föstudags- kvöldi í byrjun júlí og (ón og Bryndís þurftu að stytta óvænt fríið sitt í Sviss afþví hún Jó- hanna mín sagði af sér. Jón var nýbúinn að reka Kidda rótara og hvorki Jón né Bryndís vom beint í ástandi til að keyra þenn- an spotta frá Keflavík á Vestur- götuna, svo Gvendi Kjæmested datt í hug að hringja í mig. Og ég sló til í fávisku minni. Vandræðin byrjuðu fýrir al- vöru þegar átti að fara með töskumar í gegnum tollinn. Ég hlóð þeim í snyrtilegan stafla og ætlaði að vaða í gegn. Einsog Kiddi var vanur að gera. „Hvert ert þú að fara, góði?“ Röddin var svo valdsmanns- leg að ég rétti ósjálfrátt úr mér. „Þetta em töskumar hennar Bryndísar", sagði ég óðamála í fátinu sem kom á mig. „Ég var ekki að spyrja hvað konan þín heitir“, sagði toll- vörðurinn og benti á töskumar. „Opnaðu þetta.“ Ég leit í kringum mig í von um hjálp frá ráðherranum eða frúnni, en sá engan nema deild- arstjóra í landbúnaðarráðuneyt- inu sem ég kannaðist við. Þaðan var engrar aðstoðar að vænta og þau hjón höfðu greinilega tafist í fnhöfiiinni. Ég átti einskis ann- ars úrkosti en að hlýða. „Hvað leynist hér?“ spurði tollarinn og skyndilega var ein- sog allir tollverðirnir í Keflavík hefðu safhast í kringum mig. Þeir vom enn að velta á milli sín vakúmpökkuðu nautakjötinu þegar Bryndís kom aðvífandi. „Er eitthvað að?“ spurði hún. Alltaf er hún jafnsæt og saklaus til málrómsins, þessi elska. „Það er bannað að flytja þetta inn“, sagði sá elsti í toflvarða- hópnum. Þeir vom nú hættir að horfá á nautakjötið og famir að horfá á Bryndísi í staðfrm. Ég sá að deildarstjórinn horfði líka á, fúllur áhuga. „Nei, er þaaað?“ spurði Bryn- Ég sá að Bryndís varfarin að hugsa hratt. „Þetta er kjötið hennar Brynju Ben. Ég meina... hún á það, en við Jón œtl- um að borða það...“ dís og leit svo á mig, eins og í leit að svari. Ég kinkaði kolli. „Þetta er hrátt kjöt“, sagði annar tollari. Hann var óvenju- greindarlegur. „Já, einmitt", sagði Bryndís og ég sá að hún var farin að hugsa hratt. „Þetta er kjötið hennar Brynju Ben. Ég meina... hún á það, en við Jón ætlum að borða það... Æ, ég á við... þetta er kjötið okkar, en þau eiga það, þau Brynja og Er- lingur... Æ, þar fór sunnudags- steikin." Deildarstjórinn brá sér í hvarf bakvið þil í þann mund sem Jón Baldvin kom aðvífándi og dreif okkur í gegn áður en frekari vandræði híutust af. En hann vandaði Bryndisi ekki kveðjum- ar þegar við lögðum af stað í bæinn. „Hvernig datt þér þetta í hug?“ spurði hann hranalega. „Ert þú ekki alltaf að tala um að við ættum að fara að flytja inn landbúnaðarvömr?“ sagði Bryndís. „Við Brynja sáum þessar hræódým nautalundir í frihöfhinni á Kastmp og ég hélt að okkur myndi báðum líða betur ef við gætum borðað eitt- hvað annað en íslenskar rollur. Hún Brynja ætlaði meira að segja að steikja það fyrir okkur. Ég heyrði líka ekki betur en þú segðist ætla að slíta stjómarsam- starfinu í haust ef hann Halldór færi ekki að skera niður í ráðu- neytinu hjá sér. % hélt...“ Það bjargaði Bryndísi að nefha Halldór, því Jón greip ffammí fyrir henni og var alveg greinilega búinn að gleyma danska nautakjötinu. „Já, helvítið hann Dóri“, sagði hann og ég sá í baksýnisspeglin- um hvemig dimmdi yfir andlit- inu á formanni Alþýðuflokks- ins. Það er ekki fögur sjón, les- endur góðir. „Sástu deildar- stjóraaumingjann hans sem hélt að ég sæi hann ekki í tollinum: Svoleiðis menn em að breyta ís- landi í Færeyjar. En hvað er ég að gera? Ég er að selja húsið hans Alberts. Ég er að reka sendiherra. Ég verð bráðum bú- inn að spara svo mikið að það verður ekki hægt að drekka ai viti í sendiráðunum. Og þá verða þeir ekki til mikils nýtir. helvítis diplómatamir, ef ekki ei hægt að drekka með þeim leng- ur. Ef hann Dóri sparar ekki nokkur hundmð milljónir nenni ég ekki að standa í þessari vitleysu lengur. Það verður líka léttir að losna við Davíð.“ Það er vont að treysta al- mannarómi, lesendur góðir, en mér er sagt að það hlakki líka i mönnum í landbúnaðarráðu- neytinu... STJÓRNMÁL Taka þarftil í kratakerfinu I 26. viku sumars sýndi ég ffam á það í Pressunni að Al- þýðubandalagið hefði verið mun aðhaldssamara en aðrir flokkar í pólitískum mannráðning- um þó að það hefði setið í rík- isstjórn jafnlengi og Sjálfstæð- isflokkurinn á sl. 20 árum. Hrafn Jökulsson sendi mér í næstu Pressu bréf frá „Litlu- Ítalíu“ og vildi nú ekki lengur metast um hver væri spilltari, spilltastur í íslenskri pólitík. Hann krafðist þess að kjarni máls yrði tekinn til umræðu. Semsé: „Hvernig upprætum við þann hugsunarhátt stjórn- málamanna að það séu sjálf- sagðir leikir í pófitískri refskák að koma sínum mönnum fyr- ir í kerfinu?" Sjálfur Refur bóndi svarar spurningunni í Alþýðublað- inu 23. júlí sL: Það er allt í lagi að skipa eintóma krata til lífs- tíðar í embætti ef þeir eru hæfir. Viðurkennt skal að það er til bóta að hæfir menn séu settir til verka en hitt er mála sannast að það er alltaf spilling þegar stjórnmálaflokkar koma sínum mönnum fýrir í emb- ættum til lífstíðar. Foringinn í Litlu-Italíu er óforbetranlegur, en hvað ætt- um við að gera til þess að þrengja kosti stjórnmála- manna á borð við JBH? Irm og líka út Fyrsta skrefið í þá átt væri að skilja á milli pólitískra og faglegra starfa í kerfinu. En þvert ofan í gjammið í hælbít- um stjórnmálamanna gerum við það með því að auka veg hinna pólitísku starfa sem eru engu síður mikilvæg heldur en þau faglegu. Vilji stjórnmálamenn endi- lega hafa með sér vini, skyldu- lið og venslafólk inn í stjórn- kerfið eins og krataráðherrar keppast við hin síðari misseri er það lágmark að það lið allt sé á sömu forsendum og pól- itíkusarnir. Um leið og Al- þýðuflokkurinn fer úr stjórn- arráðinu eiga „hans menn“, rnágar, synir, dætur, frændur og frænkur, hvort sem þeim hefur verið komið fýrir sem aðstoðarráðherrum, forstjór- um Aðalverktaka, forstjórum ríkisstofnana, sendiherrum eða ráðuneytisstarfsmönnum, að fýlgja þeim út í kuldann. Spillingin felst ekki fýrst og fremst í að hafa „sína menn“ með sér inn heldur í því að hafa þá ekki með sér út þegar þar að kemur. Veldi er þaö en ekki fé Hér virðist sá skilningur landlægur að pólitísk verkefhi, tímabundin þjónusta í þágu málefna ríkisins, séu embætti og bitlingar, jafrivel ævilangt. Meira að segja ráðherradóm- ur er skoðaður sem feitt emb- ætti og vænlegt til hárra eftir- launa. Hér ættu menn að minnast þess sem stendur í Tíundarþætti Grágásar um goðorð: Veldi er það en ekki fé og þarf eigi til tíundar að telja. Pólitískt starf er veldi sem á að njóta virðingar og hárra launa meðan það stend- ur, en þvi eiga ekki að fýlgja neinar tryggingar sem koma óorði á stjórnmálastarf. Hvorki í samtryggingarkerfi flokkanna né í almannatrygg- ingakerfinu. Embætti í stjórnkerf- inu Við skilgreinum í annan stað það sem teljast fagleg embætti i stjónkerfinu. Um þau á að gilda að ráðherrar eða stjórnir stofnana geta að- Um leið og Alþýðuflokkurinn fer úr stjórnarráðinu eiga„hans menn“, mágar, synir, dœtur, frœndur ogfrœnkur, hvjrt sem þeim hefur verið komið fyrir sem að- stoðarráðherrum, forstjórum Aðalverk- taka, forstjórum ríkisstofnana, sendi- herrum eða ráðuneytisstarfsmönnum, að fylgja þeim út í kuldann. Spillingin felst ekkifyrst ogfremst í að hafa „sína menn“ með sér inn heldur íþví að hafa þá ekki með sér útþegarþar að kemur. eins vafið fólk sem staðist hef- ur strangt mat. Þar á að vera hægt að áfrýja mati og/eða vali til umboðsmanns Alþingis eða stjórnsýsludómstóls. Þess- ir embættismenn eiga að hafa langan starfstíma, jafnvel ævi- langan, en um þá eiga að gjlda ströng stjórnsýslulög. Það er hverri þjóð nauðsynlegt að eiga hæfa og heiðarlega emb- ættismenn og þeir þurfa bæði aðhald og starfsöryggi á sínum embættisferfi. Á gráu svæöi Stjórnendur ríkisfýrirtækja eru á gráa svæðinu milfi pólit- ískra verkefna og embættis- starfa. Um þá á skilyrðislaust að gilda sú regla sem Alþýðu- bandalagið hefur um langt skeið barist fyrir að lögleidd verði, það er að segja að ráðn- ing þeirra miðist við 4 - 6 ár. En starfstímabil þeirra þurfa ekki að fylgja kjörtímabilum stjórnmálamanna eins og gilda á um pólitíska verkefnis- stjóra. Ráðuneytisstjórar eru einnig á gráa svæðinu og mætti vera meiri hreyfing á þeim heldur en nú er, eins og Alþýðubandalagið hefur lagt til. En hvað á að gera við þing- menn sem hætta eða falla út af þingi? Þeir eiga í fyrsta lagi sinn rétt sem einstaklingar og eru margir ágætlega hæfir til stjórnunarstarfa meðal annars vegna stjórnmálastarfa sinna. Tímabundin verkefni í þágu hins opinbera sem viðkom- andi þykir sérlega vel falfinn til að gegna eru ekki tiltökumál. En pólitíkus ætti t.a.m. ekki að eiga lífstíðarinnhlaup í utan- ríkisþjónustuna. Smákóngar á ráö- herrastólum Valdsvið íslenskra ráðherra er einnig umhugsunarefni í þessu sambandi. Þeir eru eins og smákóngar sem engar samræmdar reglur ná yfir enda eiga þeir sífellt í landa- mærastríði og enginn hefur heildaryfirsýn yfir það sem er að gerast í stjórnarráðinu. Forréttindi smákóngannna á ráðherrastólunum eru meðal annars að geta valið inn í ráðuneytin samkvæmt eigin geðþótta þegar stöðugildi losna. Þar hefur þjóðin misst af mörgum góðum embættis- manninum. Hér hafa verið rakin nokk- ur dæmi um hvernig hægt væri að taka til í kerfinu. Ég er viss um að margir munu koma til liðs við okkur með vönd og sóp í tiltektina.___ Höfundur er framkvæmdastjóri Ai- þýðubandalagsins

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.