Pressan - 29.07.1993, Blaðsíða 11

Pressan - 29.07.1993, Blaðsíða 11
PRESSAN F R E TT I R Fimmtudagurinn 29. júlí 1993 Asískar konur svara fyrir sig Þær voru kátar asísku kon- urnar sem blaðamaður PRESSUNNAR hitti fyrr í vikunni. En þær voru líka reiðar og þóttust hafa góða ástæðu til þess. Þær heita Andrea (Adda) Sompit, Pric- illa Zanoria og Tinna Phomthip. Þær eiga það sameiginlegt að vera búnar að fá nóg af tal- inu um hlýðnar austurlenskar eiginkonur sem bugta sig og beygja fyrir eiginmönnum sínum. Pricilla er búin að vera hér í þrettán ár en þetta er I fyrsta skipti sem hana langar til að tjá sig opinberlega um málið. Ástæðan er grein í Morgunblaðinu rituð af konu ættaðri ffá Sómalíu, þar sem farið er hörðum orðum um slælega íslenskukunnáttu út- lendinga sem sest hafa hér að. í greininni bendir hún á aust- urlenskar konur í því sam- bandi, sem hún segir margar hverjar hafa komið hingað í von um betra líf, en oftar en ekki hafi sú von snúist upp í martröð. Eiginmennimir hafi aðeins gifst þeim vegna þess að engin íslensk kona hafi vilj- að líta við þeim. Síðastnefndu ummælin vekja reyndar mikla kátínu hjá konunum, þar sem þær sitja inni í stofu á glæsi- legu heimili Öddu í Grafar- voginum. En fullyrðingar Amal Qase eru ekki alveg úr lausu lofti gripnar, það staðfesta tölur úr Kvennaathvarfinu, frásagnir kvennanna sjálfra og þeirra sem til þekkja. En asísku kon- urnar þrjár em engu að síður reiðar. „Þetta er ekki í fyrsta skipti sem skrifað er um okkur en við höfum alltaf látið það sem vind um eyru þjóta því yfir- leitt hafa það verið Islending- ar. Núna kemur þessi afríku- ættaða kona fram á sjónar- sviðið með fullyrðingar um okkur. Hver þykist hún eigin- lega vera? Á hún einhvern meiri rétt en við?“ spyr Pric- illa, sem segir að Amal sé að reyna að draga þær niður í svaðið af tilefnislausu. Kemur engum öðrum við Sjálf kom Pricilla hingað með íslenskum eiginmanni sínum sem hún kynntist er þau voru bæði við nám í Bandaríkjunum. „Ég fór aftur til Filipseyja að ljúka mínu námi, en hann fór til Islands. Við skrifuðumst á í fimm ár en þá kom hann til Filipseyja og þaðan fórum við saman til íslands. Þannig kom ég hing- að en ekki eftir einhverjum pöntunarlista“, segir Pricilla og það má greina hæðnistón í röddinni. Hún kannast engu að síður við að líklega hafi einhverjar konur komið hing- að til lands í gegnum slíka lista. Filipínskar konur. „Ég þekki samt engin ákveðin dæmi þess, enda myndi viðkomandi áreiðan- lega leyna því. En ef einhver hefur komið hingað í gegnum pöntunarlista, þá finnst mér það bara allt í lagi. Það kemur engum öðrum við. Allra síst ef konan er ánægð með líf sitt c'v'* „Ef mamman talar ekki íslensku þá kennirbarnið henni tungumál- ið.a hér og íslenski maðurinn ánægður með hana.“ Ástæðurnar fyrir komu fi- lipínskra kvenna til landsins telur hún vera margvíslegar. „Sumar hafa komið hirigað fyrir tilstilli örlaganna. Þær hafa hitt mennina og orðið ástfangnar af þeim. Aðrar hafa kynnst þeim í gegnum kunn- ingja hér á landi sem hafa komið á bréfasambandi milli viðkomandi. Oft standa bréfa- skriftirnar yfir í eitt til tvö ár áður en komist er að sam- komulagi um að maðurinn komi til Filipseyja að hitta „Þcer héldu að ís- lenskir karlmenn vœru svo frábœrir.u hana eða að hún komi til ís- lands.“ Hvers vegna vilja filipínskar konur giftast íslenskum karl- mönnum? Spurningin vekur skellihlát- ur: „Þcer héldu að þeir vœru frábœrir“, svarar Pricilla og þær hlæja ennþá meira. Féll fyrir rósavendi Pricilla talar góða íslensku og er örugg í framkomu. Adda talar málið alveg þokka- lega en er meira til baka. Tinna lætur aftur á móti fara Það er einfaldlega misjafnt hvað það tekurfólk langan tíma að ná tökum á málinu. lítið fyrir sér, hlustar af athygli en segir fátt. Hún virðist feim- in. Bæði Adda og Tinna komu hingað frá Bankok en þær kynntust eiginmönnum sín- um þar. Tinna hefúr verið hér í fimm ár, Adda sex. Hennar saga er skelfilega rómantísk. „Ég var að vinna á hóteli þeg- ar ég kynntisf manninum mínum. Hann hafði þar við- komu í fjóra daga á leiðinni tO Singapúr. Hann hafði áhuga á að skoða sig um og vildi endilega að ég sýndi hon- Heildarfjöldi Erlendar konur Filipínskar/tælenskar Þaö sem af er árinu 1993 Grafið sýnir heildarfiölda þeirra kvenna sem leitað hafa til Kvennaathvarfsins á síðastliðnum 4 árum. í hópi erlendu kvennanna árið 1990 voru flestar konurnar asískar en á síðustu árum hafa þær verið hlutfallslega færri.

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.