Pressan - 29.07.1993, Blaðsíða 29
Fimmtudagurinn 29. júlí 1993
S K I L A B O Ð
„Feiminn aö
eðlisfari“
„Það er frekar lítið fyrir stráka að gera í
módelstörfum á Islandi. Stærstu verkefnin
eru auðvitað lopinn og svo eru gosdrykkja-
auglýsingar og ýmislegt tilfallandi. í mínu
tilfelli lít ég á þetta sem ágætis aukavinnu,
en ég er reyndar aðeins í þessum verkefhum
á sumrin því ég er í námi í Bandaríkjunum.
Mér finnst týpurnar sem eru í tísku hafa
breyst, það er meira „in“ að vera röff og
hipp og módelin eru hætt að brosa.
Hvað varðar sjálfan mig þá er ég frekar
feiminn að eðlisfari, en það gleymist allt
þegar maður er kominn upp á svið. Það
gæti vel hugsast að ég reyndi að fá eitthvað
að gera við þetta í Bandaríkjunum samliliða
náminu. Að mínum uómi er þetta ágætis
starf og ég hef gaman af þessu. Annars
myndi ég ekki vinna við þetta."
„Gangandi
heröatré á
tískusýning-
um“
„Ég hef ekki lagt neinn sérstakan metnað
í þetta og er algjörlega laus við drauma um
frægð og frama erlendis. Mér finnst módel-
bransinn á Islandi byggjast á einhverri líkn-
arstarfshugsjón. Verkefnin eru alls ekki
næg, hvað þá fýrir tröllvaxinn síðhærðan
mann eins og mig sem passar ekki alveg inn
í þessar stöðluðu ímyndir. I dag er minna
höfðað til sterks fegurðarsjónarmiðs. Það er
miklu fiekar farið að gefa annars konar týp-
um sjens. Ég myndi til dæmis telja mig sjálf-
an algjöra sönnun á þessu lögmáli, með eins
meters skarð milli tannanna og að eigin
dómi ekkert smáfríður.
Ég presentera ekki sjálfan mig sem módel
og finn ekki fyrir neinni andúð þar að
lútandi, það er heldur á hinn veginn. Ég tek
ekki þátt í tískusýningum, ekki af því að
mér finnist það hallærislegt, heldur finnst
mér skipulagið þar miklu minna og í raun-
inni er rnaður bara gangandi herðatré í slík-
um sýningum. Mér finnst það bara pirrandi
og ákvað snemma að vera ekkert að taka
þátt í því.“
„Engin löng
og staöföst
augnaráö“
„Það er engin alvara í þessu hjá mér enn
sem komið er, en ef ég fengi tækifæri á að
leggja þetta fýrir mig þá myndi ég taka því.
Ég er ekki gamall í þessum bransa, en ég hef
tekið þátt í myndatökum og tískusýningum
og núna síðast var ég í myndatöku fyrir
tímaritið Núllið sem kemur út í október.
Annars finnst mér bara gaman að þessu
þegar það er eitthvað að gera. Ég finn ekki
mikið fyrir því að mér sé sýnd sérstök at-
hygli bara vegna þess að ég hef verið í sýn-
ingarstörfum og ég hef ekki orðið var við
löng og staðföst augnaráð á skemmtistöð-
um. Það er þá helst að fólk komi til manns
og segi að því hafi fundist góð þessi eða hin
myndin sem birtist af manni.“
Kjartan I.Hrannarsson
23 ára og á skrá hjá lcelandic Models. Hann nemur auglýsinga- og fjöl-
miðlafræði í Bandaríkjunum.
SlGURÐUR ÓLAFSSON 24 ára athafnamaður í Reykjavík og nemi í Mynd-
lista- og handíðaskóla íslands.
PÁLL BANINE 21 árs og hálfur Marokkómaður. Hann er á skrá hjá fyrir-
sætuskrifstofunni Wild.
■ . •