Pressan - 29.07.1993, Blaðsíða 38

Pressan - 29.07.1993, Blaðsíða 38
RYKDJOFLAR 38 PRESSAN Fimmtudagurinn 29. júlí 1993 Myndlist • Wenni Wellsandt, listamaðurinn þýski, sýn- ir í Galleríi 1 1. Þar getur að líta blekmyndir, unnar með gamalli kínverskri aðferð, og myndir unnar með blandaðri tækni á ■“’akvarellpappír. • Bjarni H. Þórarins- son hefur hengt upp verk sín á Mokka. • Norræni textílþríær- ingurinn, sá sjötti í röð- inni, stendur yfir að Kjar- valsstöðum. Sýnd eru 52 verk eftir 36 lista- mennn frá fimm Norður- löndum. • Stefán frá Möðrudal sýnir á Sólon íslandus. • Gunnar Magnús Andrésson á verkin í neðri sölum Nýlista- safnsins. Síðasta sýn- ingarhelgi. Opið daglega kl. 14-18. • Victor Guðmundur Cilia sýnir myndraðir í efri sölum Nýlistasafns- ins. Síðasta sýningar- helgi. Opið daglega kl. 14-18. • Sonia Renard & Vol- ker Schönwart sýna málverk og grafíkmyndir í Portinu. • Werner Möller, myndlistarmaðurinn þýski, sýnir málverk, skúlptúra, glerverk og - textílverk í Hafnarborg. Síðasta sýningarhelgi. • Craig Stevens hefur hengt upp málaðar Ijós- myndir f kaffistofu Hafn- arborgar. Síðasta sýn- ingarhelgi. • Alvar Aalto. Afmælis- sýning Norræna hússins á verkum Alvars Aalto. • Elín Jakobsdóttir, skosk-íslensk listakona, sýnir málverk og teikn- ingar í húsakynnum Menningarstofnunar Bandaríkjanna. Opið alla - virka daga kl. 8.30- 17.45. • Steinunn Marteins- dóttir, Bragi Ásgeirs- son, Sigríður Ásgeirs- dóttir og Olga Soffía Bergmann sýna að Hulduhólum, Mosfells- bæ. Opið daglega kl. 14- 19. • Katrín Sigurðardóttir sýnir rýmisverk, saman- sett úr teikningum og þrykki, í Galleríi Sævars Karls. Síðasta sýningar- helgi. t- • Markús ívarsson. Sýning á verkum ýmissa íslenskra listamanna, úr safni Markúsar ívarsson- ar, í Listasafni íslands. Opið alla daga nema mánudaga kl. 12-18. • Carlo Scarpa, lista- maðurinn og arkitektinn, er höfundur verkanna sem nú eru í Ásmundar- sal. • Bragi Ólafsson held- ur sýningu á Ijóðum sín- um að Kjarvalsstöðum. Opið daglega kl. 10-18. • Ásmundur Sveins- son. Yfirlitssýning í til- efni aldarminningar hans. Opið alla daga frá 10-16. • Jóhannes Kjarval. Sumarsýning á verkum Jóhannesar Kjarvals að Kjarvalsstöðum, þar sem megináhersla er lögð á teikningar og manneskjuna í list hans. • Ásgrímur Jónsson. Myndir eftir Ásgrím Jónsson úr íslenskum þjóðsögum. Opið um helgar kl. 13.30-16. Gerningaþjónusta ^nfccno s Nú nýverið lauk 16 daga gemingahátíð. Það kom fram í umfjöllun um þessa hátið að gerningalist hefur að mestu legið niðri síðasthðinn áratug. Þó hafa verið nefnd nokkur nöfn sem hafa þráast við, en óvart hefur láðst að geta öfl- ugrar gerningastarfsemi In- ferno 5 hópsins síðasta ára- tuginn hér heima og erlendis. Þessi grein á að leiðrétta fá- fræði ef sú er ástæðan. Hún er eftir listráðunaut Inferno 5, hollensk/ungverska listsagn- fræðinginn Jafet Melge er stundum dvelur hér á landi. Greinin átti að birtast í menn- ingarkálfi eins dagblaðanna 10. júli síðastliðinn í tilefhi af gerningi Inferno 5 í Nýlista- safninu. En af einhverjum ástæðum var henni hafriað á síðustu stundu. Félagar gerningaþjónustu Inferno 5 voru alltaf meðvit- aðir um að framkvæma hug- sjónimar listin út um allt, list- in til alþýðunnar, listin á göt- una, listin til útlanda og listin á heimilin. Þetta var viðleitni til þess að þenja út vanþakk- láta íslenska menningu. In- ferno 5 notaðist mikið við þjóðleg minni, sérstaklega er- lendis. Fisk, kjöt, torf, mold, bókmenntir, lykt, ritrusl og annan úrgang mannshugans. Eftir þá stuttu gerningadellu sem gekk yfir hér á landi í kringum 1980 og náði há- marki með ævintýrum Bruna BB sem ollu opinberri móð- ursýki í umfjöllun um gern- ingalist, hafa meðlimir In- ferno 5 verið meðal þeirra fáu sem þrjóskast við og reka margmiðla gerningastarfsemi, en hún hófst undir merkjum félagsins 1985. Meðlimirinir áttu flestir fortíð í myndlist, skáldskap og tónlist og fikt- uðu við kvikmyndatökur í tómstundum, leiklist var alltaf víðsfjarri. Klisjan um að brjóta niður veggi á milli listgreina og sameinast í félagsþörf ein- mana og einangraðra lista- manna varð stundum að veruleika. Inferno 5 menn sóttu í byrjun andagiff sína og ýmis áhrif frá framsæknum listhreyfingum í upphafi ald- arinnar. Þótt ekki væri farið eftir utanaðkomandi upp- skriftum, þá var reynt að fanga svipaðan anda. Til að mynda var gerningurinn „Allt sem börnum er bannað“ byggður á fegurð fæðunnar, hljóðljóðatónlist og áhrif lykt- ar á hugsun okkar. Á þessum tíma sóttu sumir unglistamenn andagiff sína í formúlusúrrealisma. Inferno 5 hafði sótt til anda dadaismans áður og því varð að finna eitt- hvað nógu ósnert. Það var sjónrænn sannleikur „klum- bismans", að upplifa heiminn klumbrænt. Það var gert með hinunr hugvíkkandi endur- tekningardansi klumbuvera er dró fólk í lifandi leiðslu, „BClumbudansins í Hruna" en hann hefur verið settur upp víða í misjöfnum útgáfum. Það var ein af fyrstu marg- miðla sýningum á íslandi sem byggist á endurtekningarselj- un viðtakandans. I Ljóðsen, hljóðsen var hljóðljóðahefð- inni framhaldið með því að hugleiða galdur raddarinnar og reyna komast að kjarna tungumálsins með því að hlusta á hin jarðnesku og náttúrulegu hljóð líkamans án yfirborðslegra umbúða orða, eða reglur söngs og tóna. Fórna orðunum til að komast að kjarna ljóðsins. Þó var stuðst við reglurnar í Ólsen, Ólsen. Ljóðin komu upp eftir spilinu sem var á borði eða dregið á hendi og varð flytj- andinn yfirleitt að hlýta þeirri orðaröð þótt leyfilegt væri að svindla örlítið eftir andartak- inu. Með fótboltahöfðum og svarthvítri stemmningu var einnig komið inn á hin klass- ísku trúarbrögð sem virðast vera hin nýja útrás mannsins fyrir stríðstrúar og reglukerfis- þörf. Daglegar athafnir al- mennings þar sem lífið geng- ur út á úrslit leikja. I helgileiknum Chrysocolla var haldið á vit hinnar fornu heiðni og náttúrutrúar með gerfigöldrum og heimatilbún- um helgiathöfhum. Heimarn- ir eru margir eins og hugar- heimarnir og það er glæpsam- legt að reyna að hefta hið frjálsa hugarflug og samræma veruleikann. Baráttan hefur frá upphafi staðið um frelsi hugans, ímyndunaraflinu verður ekki miðstýrt. I „ísland er best“ hugleiddi Inferno stöðu íslenskrar listar á stofh- anaveggjum. Menningarmell- ur og dellur og öll íslensk list sem hefur verið gefin gaumur erlendis. Segja má að margmiðlasýn- ingin Rykdjöflar hafi verið bókmenntaleg því „Klumbu- dansinn“ byggðist eingöngu á sjón og tónrænni skynjun. í Rykdjöflunum er meginþráð- urinn, menningarlegur úr- gangur með bókmenntalegu ívafi og sköpun ryksins. Orða- happdrætti skuggamynda- ljóða og tilviljunarkenndur flutningur texta. Þar kom skýrt fram þráhyggja Inferno 5 um forgengileikann, rykið og ritruslið sem úrgangur hugans. Fegurð og gildi um- búðanna, trúir þeirri nútím- aklisju að stórmarkaðir og sorphaugar séu hin sönnu listasöfn okkar tíma. Einnig voru okkar daglegu heimilis- og skrifstofustörf sýnd í nýju ljósi. í „Upplýsingafjöru“ var verið að hvíla fólk á upplýs- ingaflóðinu og í „Svona eru jólin“ var viðleitni til að lengja jólin. En allir þessir gemingar ásamt gerningi Áma Ingólfs- sonar vom sama kvöldið. I „Rykgöldrum" var búin til lifandi list fyrir sundlaugar- gesti. I „Eitthvað er í hafinu“ kom vel ffani hin rómantíska afstaða Inferno 5. Þar voru framkvæmdar athafnir í kringum undarlega fiska, hafrasl og rómantíska nátt- úrufræði með sjávrænni sýn. Hugleiðing um hafið og leyndardóma undirdjúpanna en kenningar eru uppi um að þar megi finna ýmis svör til að leysa spurningar í hafdjúpi mannshugans. í „Sköllóttu Trommunni" var höfuðið túlkað sem sköllótt tromma og hjartað kjöttromma. I „Heilun“ var haldið áffarn að spinna í kringum margbreyti- leika heilans, innri heima og nrusteri þeirra, mannshöfuðið og ósjálfrátt hugmyndaflæði, lokuð hólf hugans. í „Níundu nóttinni" var hin gamla trú og goðaffæði sett í miðla hinnar nýju náttúru borgarbarna er þrá eitthvað „frumstætt“, samhengi í veruleika lífsins og náttúrunnar. Samhangandi huga og veruleika þar sem ráðist er á hina sígildu veggi drauma og skipulagðs hvers- dagsleika. Fornir kraftar eru enn á sveimi í hugum okkar. í „Mannlegu eðli“ var gerð forkönnun á því hvað fólki fyndist mikilvægast í lífinu. Kom í Ijós að það voru hugvit, náttúrulegar hvatir (hinar ffumstæðu hvatir fýrir mat og peninga) og listir. Þrír fórn- fúsir einstaklingar í baðkörum voru síðan baðaðir upp úr efnismynd þessara þarfa af fulltrúum trúarbragðanna, neyslunnar og úrgangsins við mikinn ilm svo hinir háþró- uðu áhorfendur ældu. Gern- ingar Inferno 5 voru án leik- rænnar tilgerðar. Þeir voru ákveðnar og raunverulegar at- hafnir sem mætti kalla list- rænar aðgerðir. Þótt nútímagerningurinn hafi fýrst verið framkvænrdur sem andlist af skáldum og listamönnum fútúrista og dadaista á öðrum áratug þess- arar aldar, og því talið ungt listform, er hann kannski einnig það elsta. Hann er e.t.v. hægt að rekja til fornra helgi- athafna og galdra sem þróuð- ust síðan í helgileiki kirkjunn- ar. Hann er undanfari leiklist- ar sem er frekar ungt listform. Gerningurinn er þannig tengdur hinum forna gjörn- ingi að hver athöfn getur verið ómeðvituð eða meðvitaður galdur. I gerningum Inferno 5 var haft að leiðarljósi að skapa innri eða ytri viðbrögð við hinu eilífa augnabliki. Hin seiðandi endurtekning er höfðar til flestra skynfæra og leiðir þann sem nennir að sitja í ókunnugt ástand nýrrar meðvitundar. Seidd var fram stenmning með athöfnum er fönguðu hugarástand áhorf- andans og ollu listrænni leiðslu. Ekki drama með byrj- un og endi heldur tímalaus hringur án úrlausnar, atburð- ur og upplifun augnabliksins. Nú þegar níu ár eru liðin síðan Infemo 5 hóf starfsemi með seiðandi síbyljuflæði og frumstætt hljómfall tromm- unnar í Nýlistasafninu er kominn tími til að fóma sjálf- um sér og rísa upp aftur í nýj- um ham. En kæru vinir og viðskiptavinir, örvæntið ekki, þrotabú Gerningaþjónustu Inferno 5 getur alltaf risið upp aftur, jafhvel í gegnum miðla. Trékyllisvík 1993, Jafet Melge.

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.