Pressan - 16.09.1993, Qupperneq 3
Fimmtudagurínn 16. september 1993
PRESSAN
Er teiti í vændum?
Það má enginn stíga
inn á nýja viðarpark-
etið á háum hælum
QwMBffimKÍ stranglega bannaðar.
Það er hámark ógæf-
unnar að missa glasið
því nýja viðargólfíð
má alls ekki fá skrámu.
Hver hefur ánægju af svona boðum
og bönnum?
Þú getur hent bannlistanum út í
hafsauga og sparkað af þér inniskónum.
Sænska fyrirtækið Perstorp býður þér
nefnilega réttu lausnina með PERGO,
harðjaxlinum á gólfefnamarkaðnum.
PERGO-parket er með náttúrulegri
viðaráferð sem þolir að mæta háum
hælum, fljúgandi glösum, glóandi
sígarettum, steikjandi sólarljósi og
þungum húsgögnum.
PERGO er nánast viðhaldsfrítt. Það
þarf aldrei að slípa gólfið eða lakka,
en þú þarft að vísu að skúra annað
slagið.
Þótt þú hafir þumalputta á hverjum
fingri áttu samt auðvelt með að leggja
PERGO.
Ef þú ert að svipast um eftir gólf-
efni á stofuna, ganginn, svefnherbergið
eða á eldhúsið, þá er þeirri leit lokið.
Komdu við hjá Ofnasmiðjunni eða
umboðsmönnum okkar og fáðu nýja
myndbæklinginn ókeypis.
HF.OFNASMIÐJAN, Háteigsvegi 7,
Reykjavík, Sími (91) 21220
HHPERGO
Harðjaxl í hópi gólfefna
ST egar verið var að byggja
Ráðhúsið á sínum tíma tóku
nokkrir óprúttnir pörupiltar sig
til og skírðu hiisið upp á nýtt að
næturlagi og hefur það síðan
verið kallað Náðhúsið. Naíngift-
in þótti í fullu santiutmi vió ^rv
salerni til afnota að hann gat
horft þar til himins ef hann
kærði sig um. Salemi óbreyttra
starfsmanna voru hins vegar
með hefðbundnu sniði en líklegt
er þó að menn hefðu vandað
smíðina betur hefðu þeir séð
fyrir óhappið sem varð á einu
þeirra nú í vikunni. Segir sagan
að háttsettur starfsmaður stofri-
unarinnar hafi gengið til náð-
hússins í venjubundnum er-
indagjörðum og læst að sér eins
og gengur. Ekki hafði hann
dvalist lengi í herberginu þegar
hann heyrði mikla skruðninga
fyrir ofan sig og áður en honum
tókst að kanna málið frekar féll
þungt farg ofan á höfuð hans.
Maðurinn vissi ekki hvaðan á sig
stóð veðrið en áttaði sig fljótlega
á því að plötur í lofti salemisins
hefðu gefið sig. Meiðsl manns-
ins voru ekki teljandi og gat
hann haldið áfram starfi sínu
eins og ekkert hefði í skorist
þegar hann hafði náð að jafna
sig. Þetta var sannkölluð slysa-
gildra á náðhúsinu í Ráðhús-
inu...
J. yrir tveimur vikum birtist í
PRESSUNNI smáffétt sem fjall-
aði meðal annars um leikverkið
Afturgöngur, sem Sigríður
Margrét Guðmundsdóttir hef-
ur tekið að sér að setja upp með
leikhópnum Frú Emilíu í vetur.
Vegna plássleysis í blaðinu þurfti
að stytta umrædda ffétt og vildi
þá ekki betur til en svo að nafn
höfundar skolaðist til og var
verkið ranglega kennt við ís-
'enska rithöf-
mdinn Árna
bsen þegar hið
étta er að verk-
ð samdi norska
eikskáldið
ienrik Ibsen.
Þessi mistök PRESSUNNAR
vöktu kátínu margra og voru
einn helsti brandarinn sem
sagður var á annars dauflegu
leiklistarþingi sem haldið var
um síðustu helgi. Nú þykir
starfsmönnum blaðsins bót f
máli að fleirum getur orðið á í
messunni, þvf í ágústheffi Sól-
on-ffétta, menningarsnepli sam-
nefnds veitingastaðar, sem Ing-
ólfur Margeirsson og Ólafur
Stephensen ritstýra, birtist
klausa þar sem þess er getið að
„sænski jöfurinn“ August
Strindberg eigi höfúndarrétt að
verkinu. Hafa menn nú í flimt-
ingum að verkið hljóti bara að
vera eftir Áma Strindberg...
Dagsljós er dægurmálaþátt-
ur sem fer í loftið hjá Rikissjón-
varpinu núna með haustinu.
Þeir sem eru við stjórnvölinn
þar á bæ ætla sér augljóslega að
hafa andlit þáttarins í lagi: Hin
bráðþekkilega Ólöf Rún Skúla-
dóttir fféttamaður verður aðaf-
þula Dagsljóss. Ólöf Rún er um
þessar mundir úti í Malavíu þar
sem hún er að gera sjónvarps-
þátt um þróunaraðstoð íslend-
inga...
Þúfærð PERGO PARKET - „þetta sterka“ hjá HF OFNASMIÐJUNNI, Háteigsvegi 7.
Betri verð og meiri gæði. Stgrverð frá kr. 1.897-2.699,- pr. fm.
Opið á laugardögum frá kl. 10-14.
-■m
- ■ f. v-.< iÉ! *
. f-1
Wxm: - A
f®)Peretorp Gulv A/S
UMIR FA INNISKONA A HEIIANN
VIÐ AÐ HAIDA GÓIFINU ÍIAGI.
HlNIR IFGGJA TJERGO.