Pressan - 16.09.1993, Page 4
G R A F I T
PRESSAN
F R E TT I R
Fimmtudagurinn 16. september 1993
Skemmtanalíf
Hommar í stríði við
Veitingastaðurinn 22 hefur til fjölda ára verid
helsti samkomustaður samkynhneigðra, en nú
ber svo við að nokkrir hommar hvetja alla þá
sem sýna málum þeirra einhvern skilning að
beina viðskiptum sínum annað.
HVERT KILO flf
LAfllBAKJÓTI
LfEKKAR Ufl)
HCILRR
100
KROIUIR
Bestu haupin í Iwnbahjöti á aðeins 398kr./hg.
ínœstuvershm
Verðið á 1. flokks
lambakjöti í
hálfum
skrokkum
lækkar um heil
20%. Fáðu þér
ljúffengt lambakjöt í
næstu verslun á i
frábæru verði, aðeins
398 krónur kílóið.
Mi
*Leiðbeinandi smásöluverð
GllÐMUNDUR KflRL. Hann er mjög ósáttur við þjónustuna sem hann fær á veitingastaðnum 22.
Hommar hafa verið að dreifa
miðum þar sem á stendur að
rekstraraðilar 22 mismuni fólki
eftir kynhneigð. Að þeir hafi
jafnvel gengið svo langt að vísa
fólki út og meina því inngöngu
ef það er samkynhneigt. Guð-
mundur Karl Friðjónsson er
einn þeirra sem setja út á rekstr-
araðila 22. „Þessi hómófóbía
hefur verið að byggjast smátt og
smátt upp hjá rekstraraðilum
þessa staðar. Ekki það að þeir
hafi nokkurn tíma sýnt sérstaka
kurteisi. Svo dæmi sé tekið þá
lýsti þessi hómófóbía sér vel í
vetur þegar MSC (leðurklúbb-
urinn) stóð fyrir karnivalhátíð.
Nokkrir klúbbfélagar fóru af
karnivalinu á 22 til að skemmta
sér enn betur og þar á meðal
tveir sem voru í „dragi“ og einn
klæddur sem dauðinn. Þeim var
ekki hleypt inn vegna klæða-
burðar. Þær erjur leystust upp í
mikil slagsmál fyrir utan staðinn
og gervineglurnar fuku í allar
áttir. Þá fyrst fann maður al-
mennilega fyrir þessum for-
dómum. Átti greinilega að fara
að útiloka vissan hóp viðskipta-
vina. Þetta endaði auðvitað með
því að drag-drottningarnar voru
bornar ofurliði af fílefldum
dyravörðum. Þessu var ekki tek-
ið þegjandi heldur mótmælt
kröftuglega með bleikri vatns-
málningu sem skellt var á húsið
um nóttina. Nýlega bar það svo
við að skömmu fyrir lokunar-
tíma varð tveimur karlmönnum
það á að kyssast, ósköp sakleys-
islega, hálfgerðum mömmu-
kossum sem hefðu allt eins get-
að verið kveðjukossar. Þá ber
þar að annan eigenda staðarins.
Hann æstist upp við þessa sýn
og sagði: „Ekkert svona hér!“ Ég
get ekki séð að það sé hans hlut-
verk að vera einhver sið-
gæðisvörður fyrir landsmenn.
Það er nokkuð ljóst að svona
framkoma yrði ekki sýnd gagn-
kynhneigðum. Þessi viðbrögð
hans voru ögrandi, þannig að
þeir sem um ræðir espuðust
upp og þótti við hæfi að reyna á
hversu langt þeir gætu gengið.
Og það var ekki mjög langt,
svona u.þ.b. fram að eyrna-
sneplanarti. Þá voru þeir teknir
og bornir út af dyravörðum og
eigendum! Við þetta atvik tók
steininn úr og það er löngu
tímabært að vekja athygli á
þeirri mismunun sem samkyn-
hneigðir þurfa enn í dag að búa
við. Einnig langar mig til að
benda samkynhneigðum á að
reyna að sýna samstöðu í verki
og ekki fleygja sjálfsvirðingunni
út um gluggann fyrir hugsanleg-
an bólfélaga sem kynni að leyn-
ast í skúmaskotum þessa stað-
ar.“
PRESSAN hafði samband við
Davíð Pálmarsson, annan eig-
enda veitingastaðarins 22, vegna
þessa sérkennilega máls. Hann
segist ekki skilja hverju þetta
sæti. „Mér virðist þetta í hæsta
máta einkennilegt mál og
ósanngjarnt, enda virðast þeir
sem kalla sig homma í sókn ekki
vera fjölmennur hópur. Eftir því
sem ég kemst næst er þessi gern-
ingur sprottinn af ákveðnu at-
viki, þar sem tveir aðilar voru
með tilburði sem fólk hefur í
frammi þegar það er komið
heim og er í einrúmi. Veitinga-
staðurinn 22 er einn fárra staða
sem sýna fordómaleysi þegar
samkynhneigð er annars vegar.
Aftur á móti höfum við þá reglu
að fólk sýni háttvísi og sú regla
var þverbrotin í þessu ákveðna
tilviki. Þetta mál er bull frá upp-
hafi til enda.“