Pressan - 16.09.1993, Qupperneq 6
6 PRESSAN
F R É TT I R
Fimmtudagurinn 16. september 1993
Söfnunarfé vegna baráttu Sophiu Hansen á eftirlilslausum reikningum
Barátta Sophiu Hansen við að fá forræði yfir dætrum sínum hefur
nú staðið vel á fjórða ár og enn sér ekki fyrir endann á málinu.
Kostnaðurinn er þegar kominn í milljónatugi. Sigurður Pétur Harð-
arson, sem stjórnað hefur baráttunni hér heima, hefur alltaf hald-
ið því fram að Benedikt Sveinsson kvensjúkdómalæknir hafi fjár-
gæslu með öllu innkomnu fé, en því neitar Benedikt staðfastiega.
Hann hefur eingöngu fjárgæslu með því fé sem kom inn við lands-
söfnun sem hófst í nóvember 1992. Aðrir reikningar eru honum
óviðkomandi og Sigurður Pétur virðist einn hafa yfirumsjón með
þeim. Þeir velta minnst á annan tug milljóna, en þar er öll plötu-
salan, merkja- og bolasala, baukasafnanir, frjáls framlög og allur
annar stuðningur. Meðlimir í stuðningshópi Sophiu hafa gefist upp
og segja að meginástæðan sé Sigurður Pétur. Hann sé einráður
og vilji ekkert gefa upp um innkomu og útlagðan kostnað. Tengsl-
um við barnafataverslunina Brosandi fólk, sem Rósa Hansen er
sögð reka, hefur einnig staðfastlega verið neitað en PRESSAN
sýnir fram á að þau eru bein og óumdeilanleg.
Eftirfarandi upplýsingar eru byggðar á traustum upplýsingum sem
PRESSAN hefur aflað. Sigurður Pétur Harðarson hefur neitað blað-
inu um aðgang að upplýsingum um fjármál söfnunarinnar.
V etr artíiiiiim
hjá SJÓVÁ-ALMENNUM
er frá níu til fímm
Haustið er komið og veturinn nálgast óðum.
Hjá SJÓVÁ-ALMENNUM skiptum við yflr í
vetrarafgreiðslutíma sem er frá
klukkan níu til fimm. Vetrartíminn gildir
frá 15. september til 1. maí.
SJOVAooALMENNAR