Pressan - 16.09.1993, Qupperneq 8
FR ETT I R
8 PRESSAN
Fimmtudagurinn 16. september 1993
Heildarkostnaður
við baráttuna
Sigurður Pétur segir að
heildarkostnaður við baráttu
Sophiu Hansen sé nálægt 30
milljónum króna, en ekki
fékkst nein skipting á þeim
kostnaði eða gögn því til
sönnunar. Þá sagði hann að
innkoman fælist í rúmlega 10
milljónum króna sem komið
hefðu inn við landssöfnunina
og 4,45 milljónum í styrk ffá
utanríkisráðuneytinu. Síðan
sagði hann að þau hefðu selt
um 5.000 eintök af plötunni
Börnin heim og í vor hefði
innkoman af henni verið orð-
in 6,5 milljónir króna. Tals-
vert hefði selst síðan en á móti
kemur kostnaður við plötuna,
skattar og skyldur. Hann sagði
skuldir þeirra vegna barátt-
unnar nema 10-12 milljónum
króna.
PRESSAN hefur sannreynt
að innkoma við landssöfnun-
ina hefur verið 10,4 milljónir
og styrkur utanríkisráðuneyt-
isins er 4,45 milljónir króna,
en í báðum tilfellum eru ein-
göngu greiddir reikningar sem
framvísað er til samþykktar
eða synjunar. Þá má einnig
nefna að Sophia fékk menn-
ingarstyrk ff á VISA í fyrra upp
á 250 þúsund krónur. A
gömlum sölulista fyrir plöt-
una Börnin heim kemur ffam
að þá hafði platan selst fyrir
9,15 milljónir króna. Samtals
er það á milli 24 og 25 millj-
ónir króna.
Þá er ótalið það sem hefúr
komið inn í ffjálsum ffamlög-
um í gegnurn tíðina, svo og
með bolasölu, merkjasölu,
sölu í Kolaportinu, styrktarhá-
tíðum og fleiru, að ógleymd-
um söfnunarbaukunum sem
dreifðir eru víða um land,
PRESSAN hefur traustar
heimildir fyrir því að bauk-
arnir séu opnaðir á skrifstof-
unni án nokkurs eftirlits. 400
baukar voru sendir út og kost-
aði hver þeirra 18 krónur. Þeir
voru einnota en reynt að end-
urnýta suma þeirra með því
að líma yfir þá aft ur.
Samkvæmt yfirliti sem
skrifstofan sjálf lét gera var
greiddur kostnaður vegna
Sophiu Hansen samtals lið-
lega 17,5 milljónir króna. Lög-
ffæðikostnaður er þar skráður
nærri 7,5 milljónum króna, en
samkvæmt heimildum
PRESSUNNAR er þar reikn-
aður allur uppihaldskostnað-
ur og ferðakostnaður lög-
manna. f ferða- og uppihalds-
kostnað eru gefnar upp 6
milljónir, 1 milljón í húsaleigu
í Istanbúl, þýðingar eru 700
þúsund krónur, síma- og
skeytakostnaður 1,5 milljónir
og annar kostnaður rétt tæp-
lega 1 milljón króna.
Söfnunarfé notaö
í verslunarrekst-
ur
Það vakti nokkra athygli
þegar systir Sophiu, Rósa
Hansen, opnaði verslun með
tyrknesk barnaföt á Vestur-
götu 23 í desember 1992.
Verslunin Brosandi fólk er í
húsnæði sem samkvæmt veð-
bókarvottorði er að fullu í
eigu heildverslunarinnar Ist-
anbúl. Það er heildverslunin
sem Halim A1 rak hér á landi
en var alla tíð í einkaeigu Sop-
hiu. Búðin sjálf er ekki hluta-
félag og einu opinberu upp-
lýsingarnar sem fengust um
hana var að forráðamaður
hennar væri Rósa Hansen.
f viðtali við PRESSUNA um
síðustu áramót sagði Rósa að
tilgangurinn með versluninni
væri að rétta við fjárhag fjöl-
skyldunnar og þar kom einnig
fram að um síðustu áramót
hafði Rósa farið sautján ferðir
til Tyrklands. Þar segist hún
njóta dyggilegrar aðstoðar
Sophiu við innkaupin, hún
talar tyrknesku en ekki Rósa.
PRESSAN hefur skjalfestar
upplýsingar um að söfnunarfé
hafi verið notað vegna rekstr-
ar þessarar verslunar. Nefna
má DHL-hraðsendingu sem
Brosandi fólk sendi til Tyrk-
lands, en hún innihélt gallaða
kjóla. Reikningurinn hljóðaði
upp á 18.915 krónur og var
greiddur út af hlaupareikningi
3094 — þeim fjárgæslulausa
sem plötusölufé er greitt inn á.
Undir þá ávísun skrifaði Sig-
urður Pétur Harðarson. Þann
24. maí borgaði verslunin
Brosandi fófk reikning hjá ör-
yggisþjónustunni Vara upp á
100 þúsund krónur. Sama dag
fór 100 þúsund króna tékki út
af tékkareikningi þeim sem
plötusalan fer um og er án
fjárgæslu Benedikts Sveins-
sonar.
Rökstuddur grunur er um
að fleiri þættir í rekstrinum
hafi verið greiddir af söfnun-
arfé, en það hefur ekki fengist
tryggilega staðfest. Eins og að
ofan greinir vildi Sigurður
Pétúr ekki veita upplýsingar
né heldur kannaðist hann við
að Sophia tengdist versluninni
nema óbeint.
Þegar barnaföt fyrir versl-
unina eru send frá Tyrklandi
er Sophia Guðrún Hansen
skráð sem viðtakandi á farm-
bréfum Flugleiða. Greiðandi í
Landsbanka er einnig skráð
Sophia Guðrún Hansen. Það
er aðeins þegar varan er af-
greidd úr tolli og virðisauka-
skattur greiddur sem móttak-
andi er Brosandi fólk, fata-
verslun. Sophia er því skráður
eigandi að verslunarhúsnæð-
inu, kaupandi vörunnar, inn-
flytjandi og greiðandi. Reikn-
ingar sem stílaðir eru á Sophiu
vegna barnafatanna eru að
minnsta kosti 2-3 milljónir
króna og um er að ræða að
minnsta kosti nokkrar send-
ingar.
Rekstur verslunarinnar
sjálfrar hefúr hins vegar ekki
gengið sem skyldi og fyrstu
mánuði ársins hefur mánað-
arsala aldrei verið yfir 50 þús-
und krónur samkvæmt
traustum heimildum PRESS-
UNNAR. Verslunin hefur
reyndar verið lokuð um
nokkurt skeið vegna ferðalaga
Rósu.
Sigurður Pétur
illa liöinn
í raun eru það tveir tengdir
stuðningshópar sem unnið
hafa við baráttu Sophiu Han-
sen. Sá fyrri leystist að mestu
upp í lok síðasta árs en þrír
aðÚar héldu þó áfrarn. Heim-
ildamenn PRESSUNNAR
gáfu allir upp sömu ástæðuna
fyrir brotthvarfi sínu, ofríki
Sigurðar Péturs. Þau segja að
ummæli hans hafi sífellt
stangast á við það sem áður
var sagt og engin leið hafi ver-
ið að fá upplýsingar sem
tengdust bókhaldi skrifstof-
unnar. Það eina sem PRESS-
AN fékk ffá forsvarsmönnum
var ábending um dreifibréf
sem sent var á aðra fjölmiðla.
Engin nákvæm eða sundurlið-
uð gögn fengust og viðmæl-
endur PRESSUNNAR höfðu á
' orði að ótrúlegt væri að ekki
væri hægt að sjá gögn um op-
inberar safnanir. Enginn sem
rætt var við kannaðist við að
nokkur sæi um endurskoðun
reikninga.
Pálmi Jónasson og Sigurður
Már Jónsson
TRYGGINGASTOFNUN
RÍKISINS
Styrkir til
bifreiðakaupa
Tryggingastofnun ríkisins veitir viðtöku umsóknum vegna styrkja
sem veittir eru hreyfihömluðum til bifreiðakaupa.
Nauðsyn bifreiðar vegna hreyfihömlunar skal vera ótvíræð.
Umsóknareyðublöð vegna úthlutunar 1994 fást hjá
afgreiðsludeild og upplýsingadeild Tryggingastofnunar ríkisins,
Laugavegil 14, og hjá umboðsmönnum hennar um allt land.
Umsóknarfrestur er til 1. október.
Tryggingastofnun ríkisins
Spurningar og svör um símtæki
Fátt um svör hjá lögmanninum
Síðastliðið þriðjudagskvöld
lokaði Sigurður Pétur Harðarson
á allar upplýsingar varðandi fjár-
öflun í tengslum við baráttu Sop-
hiu Hansen. í hádeginu á mið-
vikudag bauð hann PRESSUNNI
hins vegar að senda símbréf til
Gunnars Guðmundssonar lög-
manns. Gunnar átti síðan að
svara þeim spumingum sem hon-
um hentaði. Hér á eftir fer spurn-
ingalisti PRESSUNNAR og þau
svör sem bárust frá Gunnari.
Spurningar
PRESSUNNAR:
„1. Hver er heildarkostnaöur við
baráttu Sophiu? Vinsamlega gefiö
okkur sem nákvæmasta skiptingu á
því.
2. Hverjar eru heildartekjur safn-
ana og vörusölu? Vinsamiega gefiö
okkur sem nákvæmasta skiptingu á
því.
3. Er einhver fjárgæsluaöili með
tékkareikningi nr. 3094 (piötusala)
og nr. 16005 (eldri söfnun, m.a. vís-
aö til í Manniffsviötali viö Sophiu)?
4. Hvaöa eftiriit er með þessum
reikningum? Vinsamlega nafngreiniö
þá sem fylgjast meö notkun þeirra.
5. Hver hefur eftirlit meö fé sem
kemur úr söfnunarbaukum? Hver
tekur upp úr þeim og hvernig og
hvert fara þeir peningar? Hversu
miklir hafa þeir veriö?
6. Ertu relöubúinn að leyfa okkur
aö yfirfara tékka sem viö höfum ver-
ið aö spyijast fyrir um í bönkum?
7. Hversu margir launaðir starfs-
menn eru á ykkar vegum og hversu
margir hafa þeir veriö?
8. Hver eru tengsl Sophiu og Sig-
uröar Péturs viö verslunina Brosandi
föik? Hefur söfnunarfé veriö notaö í
tengslum viö rekstur hennar?“
Svör
Gunnars Guðmundssonar:
„Sem svar við ofansendu bréfi
er vert að taka fram. Allar um-
beðnar upplýsingar varðandi
upphæð á söfnunarfé sem safnað-
ist í söfnunarátakinu Börnin
heim á síðastliðnu ári hafa marg-
oft komið fram í fjölmiðlum.
Fjárgæsla hefur verið innt af
hendi vegna þess fjár sem safnað-
ist í söfnunarátakinu. Öll skilyrði
hafa verið uppfyllt vegna þessa
fjár.
Enginn launaður starfsmaður
hefur verið í vinnu hjá stuðnings-
hópnum.
Vegna sölu á hljómplötunni
Bömin heim hefúr verið greiddur
ýmis kostnaður, meðal annars
höfundarlaun, framleiðslukostn-
aður, póstkostnaður, skrifstofu-
kostnaður og annar kostnaður
sem til hefúr fallið vegna sölunn-
ar. Greidd hafa verið sölulaun til
sölumanna vegna plötunnar, sem
í flestum tilfellum hafa verið end-
urgreidd í formi framlaga inn á
söfnunarreikninginn. Sala á
hljómplötunni Börnin heim er
rekin sem sérstakt fýrirtæki og er
ekki í neinum peningalegum
tengslum við söfnunarreikning-
inn. Allur þessi rekstur fer í gegn-
um hlr. 3094.
Tengsl Sophiu við verslunina
Brosandi fólk Vesturgötu 23 eru
einungis fjölskyldulegs eðlis, þar
sem systir hennar á og rekur
verslunina.“
Eins og sjá má í svarinu kýs
lögmaðurinn að víkja sér undan
flestum spurningum. Þó kemur
greinilega fram að fjárgæslan á
eingöngu við þann reikning sem
tengist landssöfnuninni en ekki
hinum reikningunum. Ekki eru
tilgreindir neinir eftirlitsmenn
eða fjárgæsluaðilar með öðrum
þáttum söfnunarinnar.
Ennfremur hefur PRESSAN
traustar upplýsingar um að söfn-
unarfé hafi runnið í rekstur versl-
unarinnar Brosandi fólk.