Pressan - 16.09.1993, Qupperneq 17
S Y N I N G A R
Fimmtudagurinn 16. september 1993
PRESSAN 17
heldur
Leikhús
• Fiskar á þurru landi.
Ólíkindagamanleikur Áma Ib-
sen í uppfærslu Pé-leikhópsins
sem sló rækilega í gegn á
Listahátíð í Hafnarfirði síðasta
sumar. Leikstjóri er Ásgeir Sig-
urvinsson og leikendur þeir
sömu og áðun Guðrún Ás-
mundsdóttir, Ari Matthíasson,
Aldís Baldvinsdóttir og Ólafur
Guðmundsson. Nú fer hver að
verða síðastur að sjá þessa
skemmtilegu sýningu. íslensku
óperunnikl. 20.30.
Með Berki Arnarsyni Ijósmyndara og Svani Krist-
bergssyni, skáldi og tónlistarmanni, kviknaði hug-
mynd seint á síðasta ári um uppbrot á hefðbundnu
formi listsýninga og nú um heigina kemur að því að
þeir hrindi henni j framkvæmd. Hugmyndin felst
einkum í því að höfða til allra skynfæra og skapa
breytilegt umhverfi í sýningarsalnum, sem tekur
bæði listamanninn og listunnandann út fyrir ákveðið
afmarkað svið. Þannig mun skáldið stíga dansinn
með myndverkum Ijósmyndarans og Ijósmyndarinn
hreyfa hugann í takt við tónlistina. Svo fylgir líka texti
og einhvers konar angan fýllir vitin. Áhorfandinn fær
að njóta.
Börkur og Svanur segjast með þessu viljá búa til
einhvers konar heim sem er andrúmsloft, ekki sýn-
ing. Ætlunin er að skapa stemmningu með mynd-
verkum, tónverkum og öðru sem hefur sefandi áhrif
á sýningargestinn og fær hann til að slaka á { um-
hverfi sem býður ekki upp á það, en í þeirri and-
stæðu felst ögrun listamannanna. Sýningarhúsið
sjálft mun svo einnig bera þess merki að eitthvað
óvenjulegt er á seyði innandyra.
Samvinna þeirra félaga á sér ekki langa lífdaga en
þeir kynntust fyrst fyrir rúmu ári þegar Börkur, sem
starfar hjá hönnunarfyrirtækinu Blue Source í Lond-
on, hannaði kápu á Ijóðabókina Banatorfur, en hana
gaf Svanur út árið 1992. Samstarf þeirra þurfti ekki
lengri tíma til að skila árangri, því nú er sýningin
komin á koppinn og verður opnuð næstkomandi
laugardag á efri hæð veitingastaðarins Sólons ís-
landusar. Sýningin ber yfirskriftina Brunahvammur —
nótt í galleríi og verður opin næstu vikur, bæði á
daginn og kvöldin.
BÖRKUR ARNARSON UÓSMYNÐARIOG
SVANUR KRISTBERGSSON, UÓBSKÁLD OG
TÓNLISTARMAÐUR. Krefjast þess að skiln-
ingarvitin séu í lagi.
MYNDIR/JIM SMART
• Spanskflugan. Frumsýning
á gamanleik Amolds og Bachs
um ástir og fomar syndir. Leik-
stjóri er Guðrún Ásmundsdóttir,
sem gerði nýja leikgerð af verk-
inu, en hún leikstýrði einnig
sýningunni í Iðnó fyrir rúmum
tuttugu árum. Með helstu hlut-
verk fara Bessi Bjamason,
Edda Heiðrún Backman, Guð-
rún Marinósdóttir og Helga Þ.
Stephensen. Fimmtíu þúsund
áhorfendur sáu Spanskfluguna
í Austurbæjarbíói og Iðnó 1970
en hvemig verðurflugunni tekið
nú, 23 árum síðar? Borgarleik-
húsinu kl. 20.
LAUGARAGU R I N~N~~|
1 8. SEPTEMBER
• Ferðalok. Fnjmsýning á nú-
tímaverki Steinunnar Jóhann-
esdóttur. Verkið gerist á okkar
dögum með sterkri skírskotun til
sögunnar og kvæðis Jónasar
Hallgrímssonar, Ferðaloka.
Leikstjóri er Þórhallur Sigurðs-
son. Með helstu hlutverk fara
Sigurður Siguijónsson, Hall-
dóra Bjömsdóttir og Amar
Jónsson. Þjóðleikhúsinu,
Smíðaverkstæði kl. 20.30.
• Spanskflugan. Gamanleikur
í leikstjóm Guðrúnar Ásmunds-
dóttur. Borgarieikhúsinu kf. 20.
• Fiskar á þurru landi. Ólfk-
indagamanleikur eftir Áma Ib-
sen í leikstjóm Ágeirs Sigur-
vinssonar. Nú fer hver að verða
síðastur að sjá þessa góðu og
skemmtilegu sýningu. íslensku
ópemnnikl. 20.30.
Leikhúsflóra borgarinnar verður sífellt fjölskrúðugri, enda
margir leikarar af yngri kynslóð sem velja þá leið að setja upp eig-
in sýningar utan stóru leikhúsanna. Nú síðsumars tóku nokkrir
atorkusamir leikarar sig til og stofnuðu Frjálsa leikhópinn, sem
hyggst fiumsýna „rapp“-verkið Standandi pínu eftir bandaríska
leikstjórann og leikskáldið Bill Cain i Tjamarbíói næstkomandi
sunnudag. Leikstjóri þessarar fyrstu sýningar Frjálsa leikhópsins
er Halldór E. Laxness, einn af stofhendum leikhópsins, en með
aðalhlutverk fer Gunnar Helgason. En hvað er annars átt við
með „rapp“-leiksýningu?
„Verkið, sem nefnist Stand-up Tragedy á frummálinu, fjallar
um hinn harða heim í einu af fátækrahverfum New York-borg-
ar,“ segir leikstjórinn, Halldór E. Laxness. „Leikritið gerist í kaþ-
ólskum gagnfræðaskóla fyrir spænskumælandi drengi og sagt er
ffá samskiþtum þeirra og kennarans, sem leikinn er af Felix
Bergssyni. Drengirnir eiga við ýmis félagsleg vandamál að stríða
og spúrningin sem reynt er að svara í verkinu er hvort hægt sé að
bjarga þeim úr eymdinni. Sagan er sögð á miklum hraða og not-
ast við tækni bandarískra grínista, en verkið dregur nafn sitt af
„Stand-up Comedy“, sem er ákaflega vinsælt listform í Banda-
ríkjunum. Inn í söguna er svo fléttað rapplögum með tilheyrandi
dansatriðum."
Leikritið er skrifað miðað við bandarískar aðstæður. Halldór
segir það þó engu að síður eiga fúllt erindi til okkar Islendinga,
enda taki verkið á ýmiss konar vandamálum nútímans sem við
hér uppi á íslandi höfúm ekki farið varhluta af. „í leikritinu er
fjallað um harða lífsbaráttu unglinganna; almennt trúleysi þeirra
á meðal, hlutverk fjölskyldunnar og upplausn hennar og síðast
en ekki síst eiturlyfjavandann." Leikendur í Standandi pínu auk
Felix og Gunnars eru Þorsteinn Bachmann, Gunnar Gunn-
stcinsson, Valgeir Skagfjörð, Þórir Bergsson og Vilhjálmur
Hjálmarsson, allt leikarar að mennt, að viðbættum áhugamönn-
unum Róbert Guðmundssyni og Páli Banoini. Þeir nímenning-
arnir ásamt leikstjóranum standa saman að Fijálsa leikhópnum.
En hvernig skyldi standa á því að engar konur eru í hópnum?
„Þetta æxlaðist nú svona,“ segir Halldór. „Við vorum allir
orðnir nokkuð þreyttir á „kvennaumræðunni“ sem tröllriðið
hefúr öllu hér síðustu ár og því má kannski líta á okkur sem ör-
lítið mótvægi við hana. Standandi pína gerist í strákaskóla svo
verkið gæti ekki hentað okkur betur. Ef þessi sýning gengur vel
og fjárhagshliðin verður ekki vandamál þá er jafúvel hugmyndin
að ráðast næst í að setja upp eitthvað af verkum Shakespeares.
Að sjálfsögðu yrði þá leikið á gamla mátann með karla í öllum
hlutverkum.“
SUNNUDAGURINN
1 9. SEPTEMBER
]
• Standandi pína. Hinn ný-
stofnaði Frjálsi leikhópur frnrn-
sýnir leikverk eftir Bandaríkja-
manninn Bill Cain, sem hlotið
hefur góðar viötökur vestan-
hafs. Verkið fjallar um harða
lífsbaráttu unglinga í New York-
borg. Leikstjóri er Halldór E.
Laxness. Með aðalhlutverk fer
Gunnar Helgason en aðrir leik-
endur enj Felix Bergsson, Þor-
steinn Bachmann, Gunnar
Gunnsteinsson, Valgeir Skag-
fjörð, Þórir Bergsson, Vilhjálmur
Hjálmarsson, Róbert Guð-
mundsson og Páll Banoini.
Tjamarbíói kl. 20.
• Júlía og Mánafólkið. Leik-
hópurinn Augnablik sýnir
bama- og fjölskylduleikrit eftir
Kari Aspelund og Friðrik Er-
lingsson. Leikstjóri er Ásta Am-
ardóttir en leikendur Bára Lyng-
dal Magnúsdóttir, Bjöm Ingi
Hilmarsson, Eriing Jóhannes-
son, Harpa Amardóttir og Krist-
ín Guðmundsdóttir. Leikhúsi
Fnj Emilíu, Héðinshúsinu kl.
14.
• Ferðalok. Nútímaverk Stein-
unnar Jóhannesdóttur í leik-
stjóm Þórhalls Sigurðssonar.
Þjóðleikhúsinu, Smíðaverk-
stæðikl. 20.30.
• Spanskflugan. Gamanleikur
í leikstjóm Guðrúnar Ásmunds-
dóttur. Borgarleikhúsinu kl. 20.
• Ferðin til Panama. Leikfélag
Akureyrar hefur leikferð sína
um Norðuriand og fmmsýnir
bamaleikritið Ferðina til Pan-
ama, byggt á sögum eftir þýska
bamabókahöfundinn Janosch
um litla bjöminn og tfgrisdýrið.
Leikstjóri er Ingunn Jensdóttir.
Leikendur eru Aðalsteinn Berg-
dal, Sigurþór Albert Heimisson,
Dofri Hermannsson og Ama
María Gunnarsdóttir. Fmmsýn-
ing í Grímsey kl. 17.