Pressan - 16.09.1993, Side 22
HAMINGJUDAGAR FRAMUNDAN
22 PRESSAN
Fimmtudagurínn 16. september 1993
Uppgjör sumarsins
Sólin skein og
Pláhnetan fannst
Ekki leit út fyrir a& Pláhneta
Stefáns Hilmarssonar hefói það
af þegar púlsinn var tekinn á
aðsókn aá sveitaböllum sumars-
ins í júnilok. MeS betri meðal-
xiðsókn en Pláhnetan fram að
eim tíma voru flestar hinar stór-
Ijómsveitirnar; Todmobile, Ný-
dönsk, SSSól og GCD. Stjórnin
og Todmobile áttu aðsóknarmet-
Margir telja að SSSól hafi átt
fjölmennustu dansleiki sumarsins
en ekki eru allir sammála um
Dað. Því er haldið fram að Plá-
inetan hafi sigrað þrátt fyrir
Dyrjunarörðualeikana eftir að
útvarpsstöðin Bylgjan slóst í för
með þeim; auglýsti og sendi út
dansleiki þeirra hvað eftir ann-
að. Það er semsé umdeilt hvort
SSSól, eða Sláturfélag Suður-
lands Sól eins oa qárungarnir
kalla hana, eða Plannetan hafi
farið með sigur af hólmi eftir
sumarið.
Það er yfirleitt viðkvæmt mál
að fá nákvæmar tölur um að-
sókn að sveitaböllunum oa svo
er einnia nú; hvorki félagsneim-
ilin né hliómsveitimar eru tilbúin
að gefa þær upp.
Aosókn hjá hljómsveitinni
Todmobile var fremur jöfn allt
sumarið og átti hún hvorki
neina gígantíska toppa né
„bömmera". Stjórnin var rokk-
andi eftir að hafa farið vel af
stað, en hins vegar fór að síga
á óaæfuhliðina njá GCD frá og
meo miðju sumri og hafa þeir
nú gefið upp öndina í bili. Dán-
aö skólarnir skuli
vera byrjaöir aftur. Þaö
er ekki nóg með aö
skerandi hávær skóla-
bjalian veki mig eld-
snemma á hverjum
morgni, heldur er gjör-
samlega útilokað aö
sofna aftur fyrir æp-
andi grislingum úti í frí-
mínútum.
artilkynningu Pelican joekkja svo
flestir: hún var gefin ut stuttu eft-
ir endurfæðinguna.
Hljómsveitin Nýdönsk tók að
litlu leyti þdtt í sumarharkinu en
aerði vel það sem hún gerði.
Hún mun rrekar stíla upp ó vet-
urinn og skólana.
PLÁHNETAN
OG SLÁTUR-
FÉLAGIÐ.
Menn deila
om hvor
hljómsveit-
anna hafi
fariö meö
sigur af
hólmi.
POPP
Sýnishorn afgrósku
„Að vera endalaust að tala
um tónlist sem einhverja neð-
anjarðartónlist er auðvitað
þreytt dœmi. Tónlistin á Núll
og nix lýtur lögmálum (ókei,
hérna kemurþað enn einu
sinni) „undirganganna“.
ÝMSIR FLYTJENDUR
NÚLL OG NIX
SMEKKLEYSA
★★★
Allar götur síðan „Rokk í
Reykjavík“-bylgjan rann út í
sandinn hafa menn grátið þá
gróskutíma. „Þá var sko gam-
an“, hafa menn sagt í partíum
í gegnum árin og hlustað
hvarmvotir á Fræbbblana,
Purrkinn, Þey og alla hina.
„Þá voru tónleikar upp á
hvern dag og frábærar plötur
komu út í hverri viku,“ segja
menn og skála fyrir síldarár-
urn íslensks rokks.
1 sumar myndaðist svipuð
spenna í loftinu þótt hún yrði
ekki jafnalmenn. Bílskúrarnir
urðu á ný fullir af sveitum
sem spiluðu hrátt rokk og
reyndu að skapa eitthvað nýtt.
Svefnherbergi fyrrum tölvu-
leikjaspilara fylltust líka af
samplerum, hljómborðum og
öðrum framandi tólum. Það
að skapa tónlist sem er annað
og meira en léttpopp eða
sveitaballagutl konr inn úr
kuldanum. Hinn tvöfaldi
safhdiskur „Núll og nix“, sem
kom út í sumar samhliða út-
komu annars tölublaðs tísku-
tímaritsins Núllsins, mældi
þennan blóðþrýsting og kom
honum á framfæri. Þrjátíu og
þrjár sveitir spreyta sig á plöt-
unni. Samtals tekur diskurinn
tæplega þrjá tíma í hlustun
svo augljóst er að þetta er ekki
-útgáfa sem menn setja í tækið
til að njóta sem heildar, enda
engin heildarmynd til staðar.
„Rokk“ og „diskó“ (hugtökin
hér notuð sem aulaleg við-
miðun) skiptast á um að
hljóma í öllum sínum víðátt-
um, þannig að nokkuð ljóst er
að enginn friður hefur ríkt í
partíum vegna pakkans, held-
ur hefur eflaust verið slegist
um fjarstýringuna. Að vera
endalaust að tala um tónlist
sem einhverja neðanjarðar-
tónlist er auðvitað þreytt
dæmi. Tónlist hlýtur bara
annaðhvort að vera góð eða
slæm, skemmtileg eða leiðin-
leg. Það er þó til frillt af tónlist
sem hlýtur ekki hylli „al-
mennings“ af einhverjum
ástæðum, en sú tónlist er þó
hvorki merkilegri né ómerki-
legri fyrir vikið. Tónlistin á
Núll og nix lýtur lögmálum
(ókei, hérna kemur það enn
einu sinni) „undirganganna“.
Megnið af þeim 33 lögum
sem hér eru hafa aldrei heyrst
í almennu útvarpi, enda sér-
stæð og „öðruvísi“ og ekki
vænleg sem uppfyllingarefni
milli auglýsinga. Sumt af
þessu er verulega gott en ann-
að óspennandi.
Byrjum á diskóinu (eða
reifínu, sveiminu eða dans-
tónlistinni). Þar er margt vel
gert þótt íslenskir spilarar í
þeirri deild eigi ekki langa
sögu eða æfingu að baki. Ef ég
byrja enn og aftur á gamla
nöldrinu þá er frekar leiðin-
legt að heyra hve óíslenskir
diskópinnarnir eru. Hvert
einasta „danslag" hér ber
enskt heiti og jafnvel nöfn
sveitanna eru ensk. Þetta er
vitanlega brengluð þjóðernis-
kennd sem sýnir best það ægi-
vald sem anglósaxneskir
straumar hafa yfir unglingum
nú(ll)sins. Mér
þykir líka ótrú-
legt að þetta
efni eigi eftir
að lifa lengi.
Þá vekur
það nokkra
furðu hve hæg
mörg danslög-
in eru. Þetta er
eiginlega ekk-
ert diskó held-
ur þunglama-
legar tölvutos-
anir sem
minna á til-
raunastarfsemi
Eno og Kraft-
werk. Mind in
Motion, T-
World og
Passive Agr-
essive eiga lög
sem ættu öll
heima sem
upphafsstef í
Nýjustu tækni
og vísindum.
Maskínan er
með hratt
„hard core“-lag
og Muri með
eina popp-
sveimið. Sterkastur til leiks
mætir þó sautján ára strákur
sem kallar sig Secret Agent.
Lagið hans er virkilega hríf-
andi verk og sýnir mikla hug-
myndaauðgi. Bong (Eyþór og
Móa) eiga ágætt diskó en með
næfurþunnum bulltexta.
Allar helstu rokksveitir neð-
anjarðar eru hér mættar nema
HAM, sem birtist þó í skötu-
líkinu Funkstrasse með pott-
þétt lag, „Prófessorinn ráð-
leggur“. Hér eru FIRE-gengið,
Kolrössur, Púff, Stillupp-
steypa og Curver með ágætis
sýnishom. Einnig Yukatan og
Saktmóðígur, sem hafa verið
viðloðandi klíkuna. Allt gott
og blessað með það. „Þursa-
flokkurinn á sterum“, Akur-
eyringarnir í Hún andar eiga
fínt lag, það þjóðræknasta í
kassanum, og hin síefnilega
Rosebud er með glettilega gott
lag, „Beinagrind“. Hljómsveit-
in Xerox lofaði mjög góðu
með dauðalega nýbylgjurokk-
inu sínu, en lagði því miður
upp laupana áður en safnplat-
an kom upp.
Nokkur bönd falla mitt á
milli hefðbundinna skilgrein-
inga, eru utandeilda í
rokkreifinu. Bubbleflies eiga
þokkalegt lag sem þó er í anda
of líkt Bretunum í Stereo
MC’s til að geta talist mjög
spennandi. Islenskir tónar
blanda dansvæddum takti í
rokkið og koma með ágætis
SSSólarlegt lag. Júpíters disk-
óa upp gamalt lag og enn íjær
hefðbundnum merkimiðum
eru lög Bjarkar og Frostbite,
sem eru bæði af nýlegum
plötum þeirra.
Núll og nix er mjög þörf út-
gáfa. Þar er flagginu veifað og
mörgum gefinn kostur á að
hlaupa af stað á hlaupabraut
íslenskrar tónlistar. Eftir tíu ár
munu kannski einhverjir sitja
og grenja oní brennivínið sitt
og rifja upp rokk- og reifsum-
arið mikia, — sem kannski
aldrei varð._______________
Gunnar Hjálmarsson
POPP
fimmtudagurin~n"|
1 6. SEPTEMBER
• Einar Jónsson trúbador
fær væntanlega ekki ffcið til
að syngja einn, því hver sem
er getur troðið upp og farið
með ljóð, brandara og vísur
í opinn míkrófón Dansbars-
ins.
• Spinal Tab-kvöld verður
á Gauki á Stöng í tilefni
frumsýningar myndar
nokkurrar. Ýmsir ætla að
troða upp sem ekki vilja láta
nafns getið. Okkur hefur
borist til eyrna að þar verði
meðal annars Sniglabandið
á ferð.
• Deep Jimi and the Zep
Creams lofa engu um það
hvort þeir „múna“ eður ei.
Kveðjutónleikar verða með
þeim á Hressó í kvöld, því
nú skal halda til New York
að slá í gegn. Adios.
• Blackout er einhver
geggjuð rokkgrúppa sem
verður á Tveimur vinum.
• Júpíters í sinni fullkomn-
ustu mynd treður upp á
mexfkóska staðnum Cancun
í kvöld. Þar ku vera hægt að
dansa í miðjunni innan um
allar stjörnur Júpíters.
• Snæfríður og stubbamir
frá Þorlákshöfn ffcemja gleði-
og gerningatónlist á Fóget-
anum um helgina. Þeir ku
vera ákaflega hressir og al-
úðlegir í alla staði.
• Synir Raspútíns, Rokka-
billýband Reykjavíkur,
Radíus-bræður og DJ-FIo-
wer Power verða f þessari
röð á Pizza 67 við Tryggva-
götuna í tilefhi eins árs af-
rnælis pítsustaðarins. Það
mun vera dágott að ná þeim
aldri í þeim bransa, á þess-
um síðustu og verstu. Hvur
veit nema Makk-Davíð
Oddsson mæti á staðinn og
bragði eins og eina pítsu
með íslenskri skinku?!
• RokkabiJlyband Reykja-
víkur færir sig eftir góða
upphitun frá Pizza ’67 yfir á
Tvo vini þar sem stórdans-
leikur verður f kvöld. Band-
ið er fullt af rokki og lífi.
• Örkin hans Nóa gerir
víðreist um bæimi um þess-
ar mundir og gerir nú út frá
Gauknum.
• Langbrækurnar og
Abbadísimar þreyta fjórtán
laga prógrammið á Plúsn-
um í kvöld. í fyrsta sinn í
sögu staðarins er ókeypis
inn. Fögnum því.
• Jökulsveitin frystir alla á
Blúsbarnum með Margréti
Sigurðardóttur fremsta í
flokki. Við minnum á áfeng-
ismjólkurhristinginn.
• SÍN-tríóið leikur fyrir
bjórþyrsta gesti Rauða ljóns-
ins.
• Blackout er nú komin í
Fjörðinn og verður með
tónleika. Á Niels’ Public
House, sem Nillabar heitir
nú, verður hins vegar disk-
ótek og matar- og bjórkynn-
ing.
• Upplyfting og opinn
míkrófónn á hinum
krömmí Dansbar.
LAUGAR DAG U R I N N
1 8. SEPTEMBER
• Júpiters aftur í návígi á
Cancun í kvöld. Þar fer sam-
an litrík tónlist og litríkur
staður.
• Snæfríður og stubbamir
eru enn í bænum og ffcemja
sem fýrr gerninga- og ljúf-
lingstónlist á Fógetanum.
• örkin hans Nóa er yfir-
full af ýmiskonar dýrum.
Enn á Gauknum.
• Abbadísir og Langbræk-
ur í samkrulli á Plúsnum.
Næstum því orginal.
• Nýdanskir eru aftur
komnir á kreik. Og nú með
eitthvað nýtt í farteskinu eft-
ir að hafa setið sveittir við
lagasmíðar í sumar á rneðan
aðrir sóluðu sig.
• Jökulsveitin bræðir alla
með blús á Blúsbarnum.
Með í fbr er Margrét Sigurð-
ardóttir, sem einnig raddar
með Yrjunni.
• Gleðigjafarnir hinir
öldnu og ungu skemmta
gestum Hótels Sögu. Sem
væntanlega eru Benedikt
Davíðsson og co.
• Rokkhátíð á Hótel ís-
landi með gömlum görpum
sem fylla vit viðstaddra af
ýmsu efrri.
• SÍN affcur og nýbúnir, út-
hvíldir og allt. Á Rauða ljón-
inu.
• Klang og kompaní gera
sitt besta fýrir Gaflara í Firð-
inurn. Á Niels Public House
verður hins vegar dömu-
kvöld. AUir kokkteilar á 300-
kall fyrir kvendýr.
• Upplyfting á Dansbarn-
um. Matargestir Mongolian
Barbecue fá frítt inn.
SUNNUDAGURINN
1 9. SEPTEMBER
• Einar Jónsson aftur á
Dansbarnum og enn er
míkrófónninn opinn.
# Sniglabandið á Gauki á
Stöng, ekki í felulitum.
SVEITABÖLL
FÖSTUDAGURINN í
17.SEPTEMBER
# Sjallinn, Akureyri Sagt er
að sumarið hafi loks komið
þangað 3. september en
SSSól verður þar einnig um
helgina.
• Gjáin, Selfossi Tregasveit-
in hristir upp í bæjarbúum.
• Höfðinn, Vestmannaeyj-
um Vinir Dóra halda áffcam
yfirreið sinni um landið.
Reyndar em þeir nú komnir
út fýrir landsteinana.
LAUGARDAGU RIN N |
1 8. SEPTEMBER
• Sjallinn, Akureyri Rokka-
billyband Reykjavíkur stuðar
norðanmenn.
• Gjáin Selfossi Pínulitla
hljómsveit mynda þar þeir
Þorvaldur Halldórsson og
Gunnar Tryggvason.
• Höfðinn, Vestmannaeyj-
um Vinir Dóra halda áfram.