Pressan - 16.09.1993, Page 36
260 krónur
i lausasölu
(Vikuritid
PRESSAN fylgir
án endurgjaldsj
HAFA SKAL
SEM BETUR HLJOMAR
Sögukennari mótmælir lágum launum með einkennilegri sögukennslu
Davíð sagður vera alrískur
negrakóngur frá 17. öld
GUNNAR MEÐ RETTUNA: „Ekki alveg sama tilfinn-
ing en dugar þó.“
Reykjavík, 15. september.
„Það var ekki fyrr en í
þriðja tíma, þegar einn í
bekknum leit í bók, sem við
tókum eftir að ekki var allt
með felldu með sögukennsl-
una,“ sagði Þórunn Hall-
dórsdóttir, menntaskólamær
í Reykjavík, en hún og bekkj-
arfélagar hennar urðu fórn-
arlömb undarlegrar aðferðar
kennara þeirra við að mót-
mæla lágum launum nú í
vetrarbyijun.
Samkvæmt heimildum GP
neytti kennarinn, Gunnlaugur
Rafn Ásmundsson, sérhvers
færis til að ljúga að bekknum.
Mun hann hafa kokkað upp
helstu staðreyndir íslands- og
mannkynssögunnar til að ná
sér niðri á ríkisstjórninni.
„Eftir því sem við komumst
næst sagði hann bekknum að
Davíð Oddsson hefði verið
afrískur negrakóngur á sautj-
ándu öld,“ sagði Jón Þórðar-
son rektor og hélt áfram: „Jón
Baldvin var sagður vera púk-
inn á fjósbitanum úr íslensk-
um þjóðsögum. Friðrik Sop-
husson var sagður persóna úr
Vesalingunum eftir Hugo og
Halldór Blöndal danskur ein-
okunarkaupmaður. Sighvatur
Björgvinsson var sagður vera
galdralæknir að vestan sem
brenndur hefði verið á báli. Þá
sagði hann að Þorsteinn Páls-
son væri marbendill. Nú, og
til að skemmta skrattanum í
sér þá sagði hann að Baldur
Hermannsson hefði verið nið-
ursetningur í Flóanum."
„Sagan refsar ranglátum
mönnum,“ var það eina sem
Gunnlaugur vildi láta eftir sér
hafa.
Bekkurínn saf dotfallinn
yfir hinni nýju söguskoö-
un Gunnlaugs þegar Ijós-
myndara GP bar að garði.
Ungur Reykvíkingur snýr
bann við reykíngum
Hefup læii aö
reykja meö eyranu
„Þegar ég var búinn að lesa
þessar bannsettu reglugerðir,
sem banna reykingar á öllum
mögulegum og ómögulegum
stöðum, tók ég eftir að þær
kváðu bara á um bann við
reykingum um munninn,“
Davíð Oddsson vígir sjoppu í Breiðholtinu:
Kevpti bland í
______i______
nni# o
■«£ S% iu|
„Auðvitað er það við hæfi
að forsætisráðherra vígi
sjoppur. Ég sé eldcert athuga-
vert við það, enda koma kjós-
endur mínir hingað,“ sagði
Davíð Oddsson forsætisráð-
herra þar sem hann kom út
úr sjoppunni Þremur staur-
um með bland í poka. Hann
var fyrsti viskiptavinurinn
þegar sjoppan var opnuð í
morgun.
„Þetta framtak Davíðs er
einhver besta kynning sem við
gátum fengið, enda hefur ver-
ið fullt út úr dyrum síðan
hann kíkti inn,“ sagði Ófeigur
Njarðarson sjoppueigandi.
Hann sagði að
Davíð hefði verið
sérlega skemmtilegur
viðskiptavinur.
„Það var eins
og það kæmi
annar andi í
sjoppuna
eftir að
D a v í ð
var hérna.
Menn eru
eitthvað svo léttir
á sér og gamanyrði
á allra vörum,"
sagði Ófeigur.
DAVIÐ ODDSSOl
Vígði söluturninn Þrjá staura í Breiðholti.
Nýjar upplýsingar um skinkumálið
Jón Baldvin er
með umboð fyrir
danska skinku
Reykjavík, 15. september.
Samkvæmt upplýsingum sem embættismenn í Iandbúnaðar-
ráðuneytinu hafa látið leka frá sér virðist sem Jón Baldvin Hanni-
balsson utanríkisráðherra hafi umboð fyrir danska skinku. Telja
þeir að það sldpti máli og skýri að nokkru hve fest ráðherra sækir
málið.
„Ég vil hvorki neita þessu né játa né yfirhöfuð láta neitt eftir mér
hafa,“ sagði Sveinbjöm Dagfinnsson landbúnaðarráðuneytisstjóri
aðspurður um málið.
Svo virðist hins vegar sem skinkumálið hið fýrra blandist nú sam-
an við skinlcumálið hið síðara. Þegar grannt er skoðað þá vom Jón
Baldvin og Bryndis með í farteskinu bita frá fyrirtækinu „Den gode
gamle Flæskesteg“ þegar þau voru gripin. Bitann átti að nota í mark-
aðskynningu.
„Eg fæ ekki séð hvaða máli skiptir hvaða viðskiptasambanda ég
kann að hafa aflað mér erlendis, svo framarlega sem ég geri það í frí-
tíma mínum.“
sagði Gunnar Þór Smárason
reykingamaður. Gunnar hefur
sent þeim sem vilja banna
reykingar langt nef, eða réttar
sagt langt eyra, því hann fann
agnúa í reglugerðinni.
„Það er ekkert þarna sem
bannar mér að reykja með
þessum hætti,“ sagði Gunnar.
Þegar málið var borið undir
Sigurð Líndal lagaprófessor
kom fram að Gunnar hafði rétt
fyrir sér. „Þetta sýnir vel í hvaða
ógöngur reglugerðafrumskóg-
urinn er kominn. Menn em að
banna hitt og þetta en átta sig
ekki á því að náttúran hefur
sinn gang. Það var viðbúið að
fram kæmu menn sem gætu
reykt framhjá reglunum,“ sagði
Sigurður.
„Auðvitað er þetta ekki alveg
sama tilfinning en þetta dugar
þó. Þar að auki losna ég við
gula fingur sem fylgja venjuleg-
um reykingum," sagði Gunnar.
Starfsfélagar Gunnars segjast
ekki vera hissa á þessu. „Hann
er mesti nikótínisti sem ég hef
kynnst. í raun hefur hann verið
óstarfhæfur í mörg ár vegna
fiíknarinnar, en það hefur bjarg-
að honum að vinna hjá opin-
bem fyrirtæki,“ sagði Kolbrún
Sigþórsdóttir samstarfskona.
Hagstæðar
og Qölbreyttar"
sólarlandaferðir
- fyrir íslenskan saltfisk!
kU
Reykjavík
Immirfgham Hamborg '^Anttt'erpen Röfterdam
1 1 1 1
Barcelona Barcelona Barcelona Barcelona
Bilbao Bilbao Bilbao Bilbao
SanSebastian SanSebastian SanScbastian SanSebastian
Flutn.tími: 6 dagar 8 dagar 9 dagar 10 dagar
Afh.dagur: hriðjud. RmmTucÍ. Föstud. Laugard.
* Miðað er við 6 - 10 daga ferðir með gámi aðra leiðina. Brottför alla miðvikudaga.
Flutningur EIMSKIPS á saltfiski til Spánar er eitt dæmið um sveigjanlega, hag-
kvæma og örugga þjónustu við saltfisksútflytjendur til Miðjarðarhafslanda. Val á
milli nokkurra leiða til áfangastaðar gefur kost á mismunandi verði og afhend-
ingartími er sveigjanlegur. Öflugur bílafloti erlendis og sérhæft starfsfólk EIMSKIPS
hér heima og á skrifstofum okkar í Evrópu annast öruggan flutning alla leið.
Fyrsta flokks kæligámar tryggja kjörhitastig á flutn-
ingstíma (1-4 °C) og í Sundahöfn eru kæligeymsl-
ur sérútbúnar með geymslu á saltfíski í huga.
VIÐ GREIÐUM PÉR LEIÐ
EIMSKIP
Óvenjulegt þjófn-
aóarmál upplýst
Si gamla
túniðsitt
fynip utan
Mogaainisíö
Reykjavík, 15. september.
„Það kom auðvitað mjög á
mig þegar ég þekkti þarna
aftur gamla túnið mitt þar
sem verið var að leggja það
fyrir utan Moggann. Ég var
ekki í nokkrum vafa um að
þetta væri mitt gras, ég þekld
það hvar sem er,“ sagði Jón
Gissurarson, bóndi úr Fljóts-
hlíðinni, en harla óvenjulegt
þjófnaðarmál hefur nú verið
upplýst. Svo virðist sem
þarna hafi komið í leitimar
tún Jóns bónda, sem hvarf
fyrr í sumar.
„Ég hafði ekki farið út á tún
í nokkum tíma í júlí, en þegar
ég fór þangað til að huga að
\
JON BONDI GISSURAR-
SON: Segist þekkja túnið
sitt hvar sem er.
slægjunni var sem svaraði
þriggja hektara túni horfið. Ég
var satt best að segja alveg
óhuggandi eftir hvarfið, þar
sem mér var þetta tún mjög
kært. Tvö af bömum mínum
komu þar undir, þannig að
túnið hefur sérstaka þýðingu í
íjölskyldu minni.“
„Auðvitað látum við mann-
inn fá túnið sitt aftur ef hon-
um tekst að sanna eignarhalc
sitt. Mogginn vill ekki lig
undir ámæli fyrir að taka ann-
arra manna tún ófrjálsri
rendi,“ sagði Haraldur
Sveinsson framkvæmdastjóri.
Rétt áður cn GULA PRESS-
’AN fór í prentun virtist h
vegar vera fengin farsæl lai
í málinu. „Jú, það er rétt, [
er lausn í sjónmáli. Bæði er
að að mér þykir túnið fara
1 þama fyrir utan Moggann
'ð minnsta kosti er ljóst aé
í fleirj sjá það en áður. Þa
kontið til tals að ég fá
” -f-am á túninu, en
3ið
AUK / SlA K109D21-488
NY GERÐ
Corolla árgerð '94, 90 hestöfl.
Verð 1074 þúsund.
<gg> TOYOTA
Tókn um gæði