Pressan - 16.09.1993, Page 40
1
HLUSTUM ALLAN
SÓLARHRINGINN
SÍMI 643090
s,
" jálfstæðismenn eru nú í
óðaönn að undirbúa sveitar-
stjórnarkosningarnar sem
haldnar verða í vor og hugsa
sér ýmsir til hreyfings. Yfir-
gnæfandi líkur eru á því að
Gunnar Jóhann Birgisson lög-
maður fari fram í prófkjöri í
| Reykjavík
ef af því
verður, en
hann leitar
nú logandi
ljósi að
heppilegu
húsnæði
undir kosn-
I ingaskrif-
stofu. Gunnar Jóhann mun
hafa fengið hvatningu ífá fjöl-
mörgum flokksfélögum sínum,
sérstaklega þeim yngri, en hann
hefur starfað ötullega fyrir
Sjálfstæðisflokkinn um árabil.
Stjórn fulltrúaráðs sjálfstæðis-
^félaganna í Reykjavík kemur
saman 12. október og tekur
ákvörðun um hvort prófkjör
verður haldið í Reykjavík og þá
hvenær...
Það er jafn mikið af trefjum í pakka
af Kellogg's All-Bran og í heilum sekk af kartöflum.
Við erum ekki að kasta rýrð
á kartöflur.
þær eru fyrirtaks fæða enda
sérstaklega auðugar af náttúru-
legum trefjaefnum, sem eru
líkamanum nauðsynleg til að
tryggja greiða meltingarstarfsemi.
Engu að síður neyta langflestir
Islendingar ekki nægilegs magns
trefja í daglegri fæðu.
Það er af þeirri ástæðu sem við
ráðleggjum þér að hefja sérhvern
dag á því að gæða þér á
Kellogg's All-Bran.
Kellogg's All-Bran er nefnilega
einhver trefjaríkasta fæða sem
þér stendur til boða.
Til að mynda er álíka mikið af
trefjum í I2kg af soðnum
kartöflum og í 750g pakka af
Kellogg's All-Bran.
Fáðu þér Kellogg's All-Bran og
þú eykur þinn innri styrk.
n
ómur hefur verið kveð-
inn upp í Héraðsdómi Reykja-
víkur í máli ákæruvaldsins
gegn Magnúsi Karlssyni, fyrr-
um markaðsstjóra Bláfells-
Heimalands hf., og Emi Karls-
* syni verslunarmanni. Menn-
^Whir eru fundnir sekir um að
hafa í sameiningu undirbúið
vátryggingarsvik Magnúsar í
þágu Bláfells-Heimalands hf.
Hefur Örn verið dæmdur í átta
mánaða fangelsi en Magnúsi
gert að sæta sex mánaða fanga-
vist, þar af
eru þrír
mánuðir
skilorðs-
bundnir. I
árslok 1991
tók Örn að
sér fyrir
Magnús að
fjarlægja að
kvöldlagi
ýmis tæki s.s. litsjónvarpstæki,
myndbandstæki, bíltæki og
hljómflutningstæki úr verslun-
inni Bláfelli og koma þeim í
geymslu. Daginn eftir tilkynnti
Magnús bæði lögreglu og Vá-
tryggingarfélagi Islands hf. um
þjófnað úr versluninni á rúm-
íega helmingi fleiri tækjum en
Örn hafði numið brott. Degi
síðar stöðvaði lögregla menn-
ina tvo þar sem þeir voru á leið
til Keflavíkur til að koma „-
stolnu“ tækjunum í verð og
reyndist hluti þeirra vera í bíln-
um. Þess má geta að Örn var
dæmdnr í sjö mánaða fangelsi,
þar af fjóra mánuði skilorðs-
bundna, í lok júní sl. fyrir að
falsa og selja skuldabréf í sept-
ember í fyrra og brjótast inn og
stela peningum og ýmsum
tækjum í mars sama ár. Áður
hafði hann tíu sinnum sætt
refsingu, þar af átta sinnum
síðustu fimm árin...