Pressan - 07.10.1993, Síða 5

Pressan - 07.10.1993, Síða 5
S K I LABOÐ Fimmtudagurinn 7. október 1993 PRESSAN 5 -Nýleg a fór ffam lokað út- boð á vegum Pósts og síma vegna söfnunar auglýsinga í næstu símaskrá. Átta aðilar urðu til að senda inn tilboð, en tslenska auglýsingastofan hreppti hnossið. Það eru reyndar áhöld um hversu mikil happafengur þetta er, þar sem skammur tími er til stefnu og mikil vinna við söfn- unina. Gert er ráð fyrir að auglýsingar fyrir um 140 millj- ónir króna safhist og ef auglýs- ingastofan fær á bilinu 10 til 14 prósent, sem margir telja líklegt, er um verulegar upp- hæðir að tefla. Þá liggur fyrir nú að símaskráin næst verður í breyttu formi þar sem um tvær bækur verður að ræða. Önnur verður heimilaskrá og hin um atvinnufyrirtæki... -^/tenn í auglýsingabrans- anum segja að mikil umbrot séu í auglýsingamálum Morg- unblaðsrisans þessa dagana. Nú er farið að koma út „Kjör- seðlablað“ sem er unnið af sérstökum verktaka utan Morgunblaðsins. Mun það vera í fyrsta skipti sem blaðið semur við aðila úti í bæ um vinnu af þessu tagi. Er talað um að þetta sé djörf tilraun blaðsins eru hins vegar skiptar skoðanir um ágæti þess vegna óvissu um hvaða áhrif þetta hefur á stóra viðskiptavini sem geta samið um augiýsingaverð með tvennum hætti, innan og utan Morgunblaðsins... ÍZ eir sem hafa velt fyrir sér sameiningarmálum vinstri- blaðanna hljóta að fylgjast með væntanlegri fjölmiðla- keppni í knattspyrnu sem fram fer á laugardaginn. Þar bregður nefnilega svo við að Tíminn, Vikublaðið og Al- þýðublaðið senda sameiginlegt lið til keppni og verður þetta að teljast fyrsta alvarlega til- raunin til að sameina þessa fornu fjendur... I. j itt þeirra heimildar- ákvæða sem lögð voru fram með fjármálafrumvarpinu laut að Sölunefnd varnarliðseigna. Þar fór Friðrik Sophusson fjármálaráðherra ffam á heim- ild til handa utanríkisráðu- neytinu að selja hús Sölu- nefndarinnar á Grensásvegi og ráðstafa andvirðinu til kaupa á húsnæði undir utanríkisráðu- neytið. Lengi hafa verið hug- myndir meðal núverandi rík- isstjórnar um að leggja niður veldi Alfreðs Þor- steinssonar varaborgar- stjórnarfull- trúa í Sölu- nefndinni, og þarna virðist vera komin alvarleg tilraun til þess... ekktasti ferfætlingurinn í Hafnarfirði er trúlega köttur- inn Bjartur. Kisinn sá nýtur mikilla vinsælda í bænum, en hann gerir sig oft heimakom- inn í öðrum húsum og óskar eftir takmarkalausri athygli. Svo einkennilega vill til að kisi kýs helst að banka upp á hjá þekktum stuðningsmönnum FH svo og fylgjendum Al- þýðuflokksins. Meðal þeirra sem fá reglulega heimsókn eru Gils Stefánsson, faðir hand- boltahetjunnar Héðins Gils- sonar, og Ingvar Viktorsson bæjarstjóri, sem er hvort- tveggja í senn, eldheitur krati og FH-ingur. Framan af gætti engrar tortryggni í garð kisa, sem er enda hinn elskulegasti, en þegar fféttist hverra manna hann væri tóku hins vegar á renna á Hafnfirðinga tvær grímur. Bjartur víðförli reynd- ist vera son- ur Rósu Guðbjarts- d ó 11 u r , fféttakonu á Stöð 2, og Jónasar Sig- urgeirsson- ar, ritstjóra H a m a r s, málgagns sjálfstæðismanna í Hafnarfirði. Af öðrum ætt- ingjum hans má nefna nafna hans Guðbjart Jónsson, prentsmiðjueiganda og forkólf í Sjálfstæðisflokknum, sem eins og aðrir í Ijölskyldunni er yfirlýstur stuðningsmaður Hauka. Er það nú mál manna í Hafharfirði að Bjartur hljóti að vera sérlegur útsendari sjálfstæðismanna og Hauka, gerður út af örkinni í því skyni að njósna um andstæðing- ana... íkniefnalögreglan hefur krafist fimm vikna framleng- ingar á gæsluvarðhaldi yfir Ól- afi Gunnarssyni, meintum höfuðpaur fíkniefnahrings, sem talið er að hafi staðið fyrir innflutningi á fimmtán kíló- um af hassi og þremur kílóum af amfetamíni. Innkaupsverð í Hollandi á þessum efnum er um fjórar milljónir króna, en til dreifingar innanlands væri hægt að selja það á vfir þrjátíu milljónir króna. I smásölu væri hins vegar hægt að fá ná- lægt sjötíu milljónum króna fýrir þetta magn... c vJannanir gegn Ólafi Gunn- arssyni eru einkum fengnar með símhlerunum og hljóð- ritun á samtölum hans við Guðmund Gest Sveinsson og Vilh j álm Svan Jó- hannsson. U p p h a f málsins má rekja til þess að Jóhann Jónmunds- son og Vil- hjálmur Svan voru gripnir á Keflavíkurflugvelli með tvö kíló af hassi og nærri kíló af amfetamíni. Þegar þeir voru í gæsluvarðhaldi var komið fyr- ir hlustunarbúnaði í bíl Ólafs og síðar voru hljóðrituð sam- töl Ólafs, Vilhjálms og Guð- mundar á heimili Vilhjálms Svan í miðborg Reykjavíkur, auk þess sem símtöl Ólafs voru hljóðrituð... I Ieimskórinn býr sig nú undir stórmótið í Ósló sem haldið verður í tengslum við vetrarólympíuleikana. Um hundrað manns mættu á fyrstu æfingu á ársnámskeiði, sem stendur þar til næsta haust, en þátttökugjaldið er 11 þúsund krónur. Margir hafa þó helst úr lestinni og finnst þeim innheimtuaðgerðir Júlí- usar Steinars Birgissonar ansi hörkulegar. Fólk sem borgaði inn á námskeiðið en hætti eftir fyrstu æfingu er rukkað um fullt gjald og hótað lögsókn sé ekki borgað strax. Einnig hef- ur fólk borgað inn á Oslóar- ferðina en hætt við og illa gengur að fá endurgreitt... LelðPétting f PRESSUNNI í síðustu viku var sagt frá ákæru sak- sóknaraembættisins á hendur nokkrum aðilum vegna rekstrar Ferðamiðstöðvarinn- ar og Ferðamiðstöðvarinnar Veraldar. Þar var nafh íslaug- ar R. Aðalsteinsdóttur nefnt að ástæðulausu. í þeim skjöl- um sem blaðið hafði kom ekki ffam að ákæra á hendur henni hefði verið felld niður. Hún á engan hlut að máli og er beðin velvirðingar á þessum mistök- um. Ritstj. apgggii m Fyrír upplýst fólk ufi fcastefiani Þjya. blásarasveitin tókur og sbpar hina einu réttu OtíOllMfWt steraningu. Jóðlkeppni þar sem vegleg verðlaun verða veitt. Undankeppni í kappdrykkju. Lðwenbran partýspilið gefið gtstum. tóurtiri: Oktoberfest að hætti Notð- anmanna á öllum berri bjórstöðum bæjarins. Fefti Dwgarlne og Caukur á Stöng: Ekta þýsk oktoberfest tónlist leikin af hinum einu sonnu We FWtlen BÚOdiener. tówenbráu partýspilið gefiá gestum. Kappdrykkja heldur áfram. Magnús Einarsson trúbador; verður einnig staddur á Feira dvergnum og j spilar af fmgrum ftam. Akureyri: Oktoberíest að hætti Norð-; anmanna á öllum betri bjómöðum baejarins. j r k \ HJ j J <LJ MIÐVIKUDAGUR 13.10. FIMMTUDAGUR 14.10. FÖSTUDAGUR 15.10. LAUGARDAGUR 16.10. Café Crart og Hafoarftöröar: t>ýsb biásara- Btfiín o§ Ka'jstifráin: Díe FídeUa MðK&ener Sókm fstasútts og Vitinn Sanögerði. Hresso lokatiátið: Die Fideieu MiUKhener á sveitin leikur af sinni alkunnu snilld og scr um að sbpa réttu stemninguna Á VrtaUBffl: Vanir menn ásamt Þuríði útopnu með aliskonar tónlist. Úrslit í heldur uppi heiimiklu bæheimsku stuði. Jóðlkeppm, undankeppni í bppdtykkju. Sigurðardóttut. bjórþambi, leynisöngvari. Ýmsar skemmti- Kappdrykkja og fleira sbmmtilegt að hætti Löwenbrau partýspilið. SÓlOfl íslanaus: Hörku stuð og svriflft með legar uppikomur. Garðurinn opnaður undir hússins. Dúndur Oktobcrfest stemning. Atoeyrfc Oktoberfcst að hætri Norð- hinni eiou og sönnu Die Fiðeiefl MttOChesef tjaldi. Akureyri: Oktobetfcst að hætti Norð- anmanrn á öllum betri bjómöðum bæjarins. UtKlankeppni í bjórfwmbi og margrgert sér Akureyri: Oktoberfest að hætti Norð- anmanru á öllum betri bjómöðum bæjarins. tii skeramtunar. anmanna á öllum betri bjórstöðum bæjarins. Alureyri: Oktoberfest að httti Norð- anmanna á öilum betri bjórstöðum bæjarins.

x

Pressan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.