Pressan - 07.10.1993, Síða 7
Fimmtudagurinn 7. október 1993
M E N N
PRESSAN 7
Sigurð Sigurjónsson
Átján bíistjórar á
sendibílastöðina
Þröst
Mikil óánægja hefur verið
meðal starfsmanna ífá því að
Sigurður rak Bjarna frá stöð-
inni síðla sumars, en hann
gegndi trúnaðarstarfi fyrir fé-
laga sína. Þegar í ljós kom að
hann færi ekki að ósk starfs-
manna um að endurskoða
ákvörðunina fóru þeir að
hugsa sér til hreyfmgs. Einn
starfsmanna orðaði það
reyndar svo að Sigurður hefði
ofmetnast eftir sigurinn hjá
mannréttindadómstólnum og
talið að sér væru allir vegir
færir. Gunnar Þórðarson,
einn þeirra sem nú eru að
flytja sig, er mjög ósáttur við
gang mála og sagði ástæðumar
tvær. Annars vegar brottrekst-
ur Bjarna og einræðistilburði
Sigurðar og hins vegar að
stéttarfélagsgjöldunum væri
ekki skilað. Þetta hefur nú
orðið til þess að átján bílstjórar
hafa ákveðið að ganga til liðs
við sendibílastöðina Þröst og
ganga jafnframt í stéttarfélagið
Trausta. Þeir vom samþykktir
inn í Trausta á þriðjudags-
kvöldið. Það er mikill fengur
fyrir eina leigubílastöð að fá
átján bílstjóra til sín á einu
bretti og óneitanlega hefúr það
skapað nokkra öfund hjá öðr-
um stöðvum. Friðþjófur Jó-
hannsson segir að það sem
þeir hafi helst upp úr þessu sé
að nú geti þeir farið inn á
þann markað sem 3x67 hefur
sinnt, greiðabílaþjónustu með
smásendingar og pakkasend-
ingar. Hann staðfesti einnig að
inntökugjald hjá Þresti hefði
verið fellt niður, en venjulegt
inntökugjald nemur þar 28
þúsund krónum.
Hundruð þúsunda
skila sér ekki í
stéttarfélagið
Hinn angi þessarar sérstæðu
deilu tengist stéttarfélagsgjöld-
um sem innheimt eru af bíl-
stjórum Sendibíla hf. Þau
gjöld eiga að ganga til stéttar-
félagsins Afls en Sigurður hef-
ur ekki staðið fyllilega í skilum
á þeim. „Þetta er bara þjófhað-
ur á mínu fé. Ég hef talað við
lögmann ASÍ og hann segir að
ég geti kært þetta til Rann-
sóknarlögreglunnar og það
kemur vel til greina að gera
það ef ekki verður breyting á,“
segir Valgeir Magnússon, sem
lengi starfaði fyrir Sigurð.
Friðþjófur Jóhannsson er einn
þeirra bílstjóra sem hafa yfir-
gefið 3x67 en hann situr þó
enn sem formaður Afls, stétt-
arfélags bílstjóranna hjá 3x67:
„Það er búið að rukka hann
um þetta en hann hefur haft
þessa peninga í veltu og ekki
getað staðið skil á þeim til fé-
lagsins ennþá. Þar liggur
hundurinn grafinn og er
ástæðan fyrir því að ég er ekki
enn hættur sem formaður
Afls. Ég vil að annar maður
taki við þessu og þessi mál séu
í lagi, ég vil skila hreinu borði.
Gjaldkerinn bíður eftir að fá
einhverjar tryggingar fyrir að
þetta fé skili sér svo hægt sé að
ganga frá málinu.“ Reyndar
hefur deilan náð því stigi að
stjórnarformaðurinn, Gissur
Ingólfsson, hefur meinað hon-
um aðgang að svæðinu til að
tala við umbjóðendur sína.
Friðþjófúr segist hafa orð Sig-
urðar fyrir því að þessi gjöld
verði gerð upp og segist ekki
gera ráð fyrir öðru en að það
standi. Aðspurður segir hann
dómstólaleiðina ekki inni í
myndinni. Upphæðin sem um
ræðir nemur einhverjum
hundruðum þúsunda. Það
skal tekið ffam að ekki náðist í
Sigurð þrátt fyrir margítrekað-
ar tilraunir.______________
Pálmi Jónasson
lægsta verðið
eða besta búnaðinn
Wmva vkh
486SX/25 MHz
innifalið í verði:
• 4MB innra minni
• 130MB harður diskur
• Cirrus skjákort, 1MB
(einnig Local Bus)
• 14" 1024x768 NI.72HZ,
lággeislaskjár, flöktlaus
• 3.5" disklingadrif
• Hljóðlát vifta
• 1 árs ábyrgð
Kynningarverð
117.874." kr stgr
486DSX/33 MHz
innifalið í verði:
• 4MB innra minni
• 107MB harður diskur < 15ms
• Local Bus Cirrus skjákort,1MB
• 14" 1024X768 Nl, 72Hz,
lággeislaskjár, flöktlaus
• 3.5" disklingadrif
• Hljóðlát vifta
• 1 árs ábyrgð
BraVO LC-2 486SX/25MHZ
innifalið í verði:
• 4MB innra minni
• 120MB harður diskur < 15ms
• Local Bus Cirrus skjákort, 1MB
• AST14’1024X768 NI.72HZ,
lággeislaskjár, flöktlaus
• 3.5" disklingadrif
• Hljóðiát vifta, 238 pinna P0A sökkull
• 3ja ára ábyrgð
136.859.* kr. stgr. *" 148.903.' kr. stgr.
^ Microsoft Word 2.0 og Excel 4.0
á tilboðsverði með hverri tölvu
kr.39.900.*
og meiri ábyrgð
ef þú vilt
Komdu í verslun okkar eða hringdu í sölumenn
og fáðu nánari upplýsingar
EjS
EINAR J. SKULASON HF
Grensásvegi 10, 108 Reykjavík Sími 63 3000
Greiðsluskilmálar Glitnis,1
j