Pressan - 07.10.1993, Síða 14

Pressan - 07.10.1993, Síða 14
14 PRESSAN Útgefandi Blað hf. Ritstjóri Karl Th. Birgisson Ritstjórnarfulitrúi Siguröur Már Jónsson Markaösstjóri SigurðurJ. Ómarsson Ritstjórn, skrifstofur og auglýsingar: Nýbýlavegi 14 -16, sími 64 30 80 Faxnúmer: Ritstjórn 64 30 89, skrifstofa 64 31 90, auglýsingar 64 30 76 Eftir lokun skiptiborös: Ritstjóm 64 30 85, dreifing 64 30 86. tæknideild 64 30 87 Áskriftargjald 798 kr. á mánuöi ef greitt er með VISA/EURO en 855 kr. á mánuði annars. PRESSAN kostar 260 krónur í lausasölu Þriðja fj árlagafrumvarp Friðriks Komandi kynslóðir halda áfram að borga fyrir eyðslu þeirra sem nú lifa. Þetta er önnur meginniðurstaðan í þriðja fjárlagafrumvarpi Friðriks Sophussonar. Hin niðurstaðan er að Friðrik og ríkisstjórnin hafa gefizt upp við að taka á út- gjöldum ríkissjóðs og byrja haustið með stærri halla á fjár- lagafrumvarpi en áður hefur sézt. Það er rétt, sem stjórnarflokkarnir benda á, að tekizt hefur að halda aftur af útgjöldum í ýmsum málaflokkum, en þó sérstaklega hvað snertir almennan rekstrarkostnað. Það hefur gerzt með harmkvælum og þó ekki dugað nema til þess að mæta auknum útgjöldum vegna vaxta og afborgana af lán- um og vegna atvinnuleysis. Eftir stendur að því er virðist inn- byggður halli í ríkisrekstrinum upp á tíu til þrettán milljarða. Á honum hefúr ekki verið tekið og verður varla gert héðan af. Til þess skortir kjark, hugmyndaríki og samstöðu innan ríkisstjórnarinnar. Fjármálaráðherra ber því við að vegna kreppunnar hafi tekjur ríkissjóðs reynzt minni en ætla mátti. Þetta er rétt, svo langt sem það nær. Hins vegar má fullyrða að í góðæri og hagvexti hefði engin ríkisstjórn ráðizt í niðurskurð eins og þessi — hún hefði ekki komizt upp með það. Þannig hefur kreppan hjálpað ríkisstjórninni í niðurskurðinum. Hins vegar bendir ýmislegt til þess að niðurstöðutölur þessa fjárlagaffumvarps séu í rneira samræmi við raunveru- leikann en oft áður. Það er alþekkt aðferð við fjárlagagerð að forsendur fjárlagaffumvarps eru hannaðar með hagsmuni ríkisstjórnar í huga, en ekki raunverulegt ástand í efhahagslíf- inu. Þessa gætti við gerð síðustu fjárlaga eins og svo off áður, en sem betur fer virðast stjórnarflokkarnir hafa dregið úr blekkingunni í þetta skipti. í fyrra var í fjárlagaffumvarpi gert ráð fýrir mun minna at- vinnuleysi en Þjóðhagsstofnun spáði. Þegar tala Þjóðhags- stofhunar reyndist réttari jók það ríkisútgjöld og hallarekstur. Fjármálaráðherra talar um útgjöld vegna atvinnuleysis sem afleiðingu óvæntra breytinga á ytri aðstæðum. Það er tal manns sem nú sækja á eðlilegir timburmenn þegar blekking- arvíman er runnin af honum. f fjárlögum 1993 var gert ráð fyrir á annan milljarð króna í tekjur af sölu ríkisfýrirtækja. Stærsti liðurinn var sala Búnað- arbankans. Það vissu allir þá, sem voru með fullri rænu, að Búnaðarbankinn yrði ekki seldur á þessu ári eða þeim næstu. Til þess voru ekki pólitískar forsendur og hugsanlega ekki efnahagslegar heldur. Það kom þó ekki í veg fýrir að gervital- an væri notuð. í nýju fjárlagafrumvarpi er gert ráð fýrir fimm prósenta at- vinnuleysi, nokkru meira en aðrar spár gera ráð fýrir. Þar eru heldur engir draumórar um milljarðasölu einkafýrirtækja. Það veit á gott. Kannske skeikar þá ekki nema tveimur til fjórum milljörðum á tölum ffumvarpsins og þess sem verður endanleg niðurstaða. Það væri tímabær tilbreyting og gæti orðið til þess að Friðriks Sophussonar verði ekki aðeins minnzt sem fjármálaráðherrans sem gafst upp fýrir kerfisút- gjöldunum, heldur líka þess sem lagði ffam marktækt fjár- lagafrumvarp, hversu slæmt sem það er að öðru leyti. BLAÐAMENN: Bergljót Friöriksdóttir, Guörún Kristjánsdóttir, Jakob Bjarnar Grétarsson, Jim Smart Ijósmyndari, Kristján ÞórÁrnason myndvinnslumaöur, Pálmi Jónasson, Sigriöur H. Gunnarsdóttir prófarkaiesarí, Snorri Ægisson útlitshönnuður. PENNAR Stjómmál: Andrés Magnússon, Árni Páll Árnason, Einar Karl Haraldsson, Guðmundur Einarsson, Hannes Hólmsteinn Gissurarson, Hreinn Loftsson, Möröur Árnason, Ólafur Hannibalsson, Óli Björn Kárason, Þórunn Sveinbjarnardóttir, Össur Skarphéöinsson. Listir: Einar Örn Benediktsson, mannlíf, Guömundur Ólafsson, kvikmyndir, Gunnar Árnason, myndlist, Gunnar Lárus Hjálmarsson popp, Kolbrún Bergþórsdóttir bókmenntir, Martin Regal \eiklist. Teikningar: Ingólfur Margeirsson, Kristján ÞórÁrnason, Snorri Ægisson, Einar Ben. AUGLÝSINGAR: Ásdís Petra Kristinsdóttir, Pétur Ormslev. Setning og umbrot: PRESSAN Rlmuvinnsla, plötugerö og prentun: ODDI SKOÐA N I R Fimmtudagurinn 7. október 1993 STJÓRNMÁL Bömmer tilfjárlaga Þá er karpið við Austurvöll hafið að nýju og skemmtileg- ur vetur í vændum. Að vísu virðast Islandsmeistararnir í tuði innanhúss frá síðasta þingi hafa haff erindi sem erf- iði, því nú er verið að semja um vinnufrið á Alþingi gegn nefndaformennsku. Kannski það hafi liðkað fyrir samn- ingaviðræðunum þegar horfa mátti á hvernig farið er að austur í Moskvu þegar þingið er til vandræða — sumsé að þingmenn eru látnir ganga út í halarófu með hendur á höfði, teymdir inn í rútu og síðan ekið með þá í vetrarfrí til Omsk. Ástandið á Alþingi er að vísu ekki orðið þannig að ástæða sé til að rýma þingsali og senda þingheim til Raufar- hafnar, en að minnsta kosti verður fróðlegt að fýlgjast með fjárlagaumræðunni. Það er nefnilega svo skrýtið að fýlgjast með stjórnmálamönn- um ræða um ríkisfjármál því allir eru sammála um að skattar þurfi að lækka, en eng- inn vill finna eitthvað til að skera niður á móti. Eina hug- myndin sem heyrist er álagn- ing hátekjuskatts og vaxta- tekjuskatts, eins og Island sé fullt af ósköttuðum marg- milljónerum. Betur ef satt væri. En hver er vandinn? Heldur nokkur að 113 milljarða út- gjöld ríkisins samkvæmt fjár- lagafrumvarpi séu öldungis óumflýjanleg eða að siðmenn- ing muni leggjast af hérlendis ef betur er af klipið? Það er enginn vandi að skera niður fjárlögin. Lítum á nokkur fá- ránleg dæmi um verkefnaval ríkisins, en innan sviga eru út- gjöld í milljónum króna: Afleysingaþjónusta kúa- bænda (10); Álþjóðasamstarf þingmanna (25); Áfengisvarn- ir og bindindismál (29,4); Ár fjölskyldunnar (5,4); Bandalag íslenskra skáta (5); Byggða- stofnun (170); Byggingarsjóð- ur í þágu atvinnuveganna (40); Fálkaorðan (1,4); Félag Sameinuðu þjóðanna á Is- landi (0,6); Félagsmálaskóli ASÍ (18,9); Félagsstofnun stúdenta (5); Fiskeldisrann- sóknir (30); Fiskifélag Islands (6.3) ; Flugskóli Islands (10); Fullorðinsfræðsla (18); Hag- þjónusta landbúnaðarins (11.1) ; Hótel- og veitingaskóli Islands (42,3); Hússtjórnar- skólar (15,3); Icepro-nefnd (1,5); Jafnréttisráð (25); Kjararannsóknir (5,2); Kristnisjóður (18,3); Kvenna- sögusafn (0,8); Kvikmynda- eftirlit ríkisins (1,6); Listasafn ASÍ (2); Löggildingarstofan (11); Mannanafnanefnd (0,6); Matsnefnd eignarnámsbóta (2.3) ; Neytendasamtökin (3); Nýlistasafn (2); Rannsókna- deild fisksjúkdóma (18,8); Samvinnuskólinn (36,2); Sér- fræðileg aðstoð þingflokka (25.2) ; Skráning hlutafélaga (10,8); Stofhun Sigurðar Nor- dals (8,4); Sögusafn alþýðu (0,8); Söngmálastjóri þjóð- kirkjunnar (15,7); Umhverfi- svöktun (11); Ungmennafélag Islands (9,5); Örnefnastofhun (4.4) . Sum af ofantöldum verk- efnum jaðra við súrrealisma, önnur eru hugsanlega verðug en koma ríkissjóði nákvæm- lega ekkert við og enn önnur ættu auðveldlega að geta stað- ið undir sjálfum sér með þjónustugjöldum. En á með- an það er auðvelt að finna út- gjöld á borð við þessi og skera þau niður þá skilar slíkur sparðatíningur ekki miklu. Ófangreint nemur samtals 570,2 milljónum, svo það er ekki nema um 1/20 af hallan- um. Hér eru nokkrar hugmynd- ir, sem um munar. Leggjum alla tolla niður. Þeir skila að- eins 1.125 milljónum króna í ríkissjóð, en á sama tíma er kostnaður ríkisins af skatta- og tollamálum 1.444 milljón- ir! Halli ríkissjóðs mun kannski ekki minnka fýrir þær sakir einar að ríkið hætti að gera út tollheimtumenn, en hitt er ljóst að vöruverð myndi lækka til muna, neysla væntanlega aukast og hagur ríkissjóðs vænkast þegar auknar virðisaukatekjur skila sér. (Að því ógleymdu hvað lífið verður allt miklu skemmtilegra þegar búið verður að loka tollpóstinum.) Gerum aðskilnað ríkis og kirkju að veruleika og spörum 460,6 milljónir. Hættum öllum stuðningi við söfn, listastofnanir og annað í þeim dúr, þannig að menntamálaráðuneytið sinni menntamálum en ekki menn- ingarmálum. Þannig sparast 2.171,3 milljónir og munar um minna. Vitaskuld er við- búið að menningarvitar þjóð- arinnar reki upp ramakvein og haldi því fram að íslensk menning muni leggjast af fýrir vikið, en hvers virði er menn- ing sem einungis þrífst á opin- berri ölmusu? Auk þess er erf- itt að sjá að hvaða leyti Sin- fóníuhíjómsveitin, íslenski dansflokkurinn og Launasjóð- ur stórmeistara í skák koma íslenskri menningu við. Megnið af menningarfram- lögum ríkisins rennur nefni- lega til borgunar á sérkenni- legum áhugamálum lítils en háværs hóps, sem ekki vill fýr- ir nokkra muni leggja verk sín fyrir dóm íslenskrar alþýðu, sem nauðug viljug borgar brúsann. Til þróunarmála og al- þjóðastofnana renna samtals 602 milljónir króna. Megnið af þessu rugli má fjúka og lág- mark að unnt sé að spara helminginn. Hvað hefur þró- unarlandið Island að gefa öðr- um löndum þriðja heímsins og hvaða gagn höfum við af Sameinuðu þjóðunum? 466 milljónir renna til hinna og þessara „landbúnað- arstofnana“ eins og skattborg- ararnir eigi ekki nóg með að henda 5.216 miUjónum króna í búvöruframleiðslu, sem ekki getur borið sig öðru vísi en með slíkum bakreikningum. Burt með það. 1.944 milljónir renna til löggæslustofnana og öryggis- mála og það má víst ekki minna vera. Hins vegar eru um leið greiddar 1.856,2 millj- ónir til rekstrar sýslumanns- embætta vítt og breitt um landið, en þau eru 27 talsins. Þumalfingursreglan er sú að jafnmikið kostar að halda uppi yfirstjórn þeirra og að annast löggæslu í umdæmun- um. Fyrir nú utan það að þessum embættum má fækka að minnsta kosti um helming (og þannig ná niður yfir- stjórnarkostnaðinum) þarf enginn að segja mér að tekjur embættanna geti ekki haldið þeim uppi. Við skulum samt gefa okkur að það gangi erfið- lega og þess vegna sparist ein- ungis 800 milljónir. Færum heilsugæslu alfarið yfir á sveitarfélögin (sem geta þá sameinast í nafni hagræð- ingar) og spörum á einu bretti 1.578.1 milljón króna. Siglingamál kosta ríkið 1.100.2 milljónir króna, en enginn þeirra liða ætti að kosta ríkið krónu. Sveitarfélög eiga að annast hafnamál sín sjálf og annan kostnað er hægt að innheimta af þeim, sem þjónustunnar njóta. Og svona mætti vafalaust áfram telja. Takið eftir því að hér er búið að spara 7.178,2 milljónir án þess að snert hafi verið á viðkvæmum mála- flokkum eins og heilbrigðis- málum eða menntamálum og án þess að til fjöldauppsagna þurfi að koma. En það þarf meira til að stoppa í fjárlaga- gatið og þess vegna skulum við leggja 5% niðurskurð á línuna, því það er alltaf hægt að spara um 5% án þess að allt fari í rúst. Þá græðum við 5.300 milljónir í viðbót og er- um komin með hallalaus fjár- lög og gott betur, því við eig- um 2.631 milljón króna til góða. Og þá þarf nú ekki að spara mikið í viðbót til að geta lagt af alla eignaskatta (3.190 milljónir) svo dæmi sé tekið. Þegar við losnum við land- búnaðarruglið (5.216 milljón- ir) og aðra slíka pósta getum við hugað að lækkun eða af- námi tekjuskatts (sem skilar ekki nema 16.960 milljónum 'króna). Heimilin í landinu hafa þurft að spara þótt það sé erf- itt og sama á við um fýrirtæk- in. Hvers vegna skyldi ríkið ekki geta gert hið sama? Höfundur er blaðamaður. „Sum afverkefnum ríkisins jaðra við súrrealisma, önnur eru hugsanlega verð- ug en koma ríkissjóði nákvœmlega ekkert við og enn önnur œttu auðveldlega að geta staðið undir sjálfum sér með þjónustugjöldum... “ FJÖLMIÐLAR Æ, œ „Ef aðstandendur Dagsljóss finna þann vinkil beztan áfréttum afofbeldi í mið- bœnum að greina hugsanleg líffœraleg áhrifkjaftshögga eru þau ekki að reka dœgurmálasjónvarp, heldur einhvers konar rafvædda útgáfu af Húsfreyjunni. “ Ég veit ekki um ykkur, en mér var farið að dauðleiðast strax í öðrum þætti af Dags- ljósi, hinum upppeppaða dægurmálaþætti Ríkissjón- varpsins. Nei, annars, ég skrökva því; mér leiddist strax fýrsta kvöldið, en af innrættri kurteisi kunni ég ekki við að dæma af fyrsta þættinum. En líklega er rétt að treysta iðrun- um þegar kemur að sjón- varpsefni. Fyrsti þáttur byrjaði þokka- lega. Hæfilega poppaður og hraður, stutt innskot, en kannske svolítið Hemma Gunn-leg. Eitt atriði stóð upp úr: stutt kynning á myndlist- armanni, vel myndskreytt og klippt. Það er sérstaklega hróss vert að viðtali við manninn var sleppt, en það hefði næstum áreiðanlega eyðilagt atriðið (nema þessi tiltekni myndlistarmaður sé þeim mun skemmtilegri). Það er nefnilega hið talaða, ómyndskreytta mál sem mér sýnist hættulegast langlífi þessara þátta. Talandi höfuð í sjónvarpi halda ekki athygli manns nema þau hafi eitthvað ákveðið að segja; það hafa bæði Einar Kárason og Páll Óskar Hjálmtýsson hvor á sinn hátt og þess vegna voru þeir fínt efni tvö kvöld í röð. Kvikmyndagerðarmennirnir tveir, Ágúst Guðmundsson og Sigurbjörn Aðalsteinsson, höfðu hins vegar ekkert að segja um kvikmyndahátíð sem ekki hefði verið betur sagt með myndum. Tilraunir þáttastjórnenda til að spjalla saman á milli atriða eru vonlausar á meðan þau hafa ekkert að segja; það verð- ur vandræðalegt og sjálflægt tuð sem áhorfandanum finnst ekki koma sér við — eins og verið sé að neyða hann til að hlusta á samtöl fólks sem hann hefur engan áhuga á. Hið sama gilti um viðtal við Friðrik Sophusson og Sigríði Dúnu Kristmundsdóttur. Það virtist enginn vita um hvað það viðtal átti að vera; þau tvö sem spennandi par eða hann sem fjármálaráðherra eða hana sem fjármálaráðherraffú eða hana sem fyrrverandi stjórnmálamann. Þess vegna var viðtalið á endanum um ekki neitt nema gamla aula- brandarann um að hún væri fjármálaráðherrann á heimil- inu. Kórónan var þó tveggja kvölda viðtal við Vigdísi Finn- bogadóttur um Iðnó. Ég var að heyra eða sjá hana í tólfta skipti, söguna um hvað stemmningin var nú yndisleg og stórkostlegt fólk alltaf og alls staðar í þessu húsi þrátt fýrir eilífu þrengslin og vatns- elginn og peningaskortinn. Með fullri virðingu fyrir hennar hátign var útgáfa hennar af goðsögninni jafn- leiðinleg og óspennandi og síðustu tíu skipti sem hún var sögð. Ef ég væri illa innrættur myndi ég halda að Áslaug Dóra Eyjólfsdóttir hefði setið uppi með hundleiðinlegt tveggja kvölda efni en ekki kunnað við að kippa því út af því að það var forsetinn sem var í viðtali. Er ósanngjarnt að dæma eftir tvo þætti? Nei. Þvert á móti ætti að gera meiri kröfur til efnis, sem hefur verið í undirbúningi vikum saman og er því líklega rjóminn af hugmyndaflæðinu og sterk vísbending um ffamhaldið. Ef aðstandendur Dagsljóss finna þann vinkil beztan á fféttum af ofbeldi í miðbænum að greina hugsanleg líffæraleg áhrif kjaftshögga eru þau ekki að reka dægurmálasjónvarp, heldur einhvers konar raf- vædda útgáfu af Húsfreyj- unni. Húsfreyjan kemur reyndar enn út, en mig grunar að lesendum hennar fækki eftir því sem fjölgar í kirkju- görðunum. Kart Th. Birgisson

x

Pressan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.