Pressan - 07.10.1993, Side 31

Pressan - 07.10.1993, Side 31
Fimmtudagurinn 7. október 1993 ROKKVEISLA PRESSAN 31 Sjaldan hafa verið gerðar jafnmiklar væntingar til óþekktrar hljómsveitar og ungsveitarinnar Bubble Flies. Hljómsveitin var stofnuð í apríl á þessu ári og hefur að- eins gefið út eitt lag, lagið Strawberries, reyndar feikigott lag, sem er að finna á safiiplöt- unni Núili og nixi sem kom út á vordögum með tímaritinu Núllinu. Þann 22. október næstkomandi fá meðlimir hljómsveitarinnar hreint ótrú- legt tækifæri sem allar hljóm- sveitir með vott af metnaði dreymir um; Bubble Flies fá nefnilega að spila á útgáfútón- leikum í Valsheimilinu (merkilegt nokk) með bresku hljómsveitinni Freaky Realist- ic — sem spáð er mikilli vel- gengni — með hvorki meira né niinna en útsendara blaða eins og Melody Maker, New Musical Express og Select stadda á áhorfendastæðunum. „Við erum drullusmeykir en jafnframt mjög spenntir. Þetta er ákveðið kikk. Blaðamenn- imir hljóta að segja ffá okkur fyrst þeir eru að koma hingað á annað borð. Þótt ekkert birtist nema bara nafnið væri það meiriháttar kikk því mað- ur er búinn að liggja yfir þess- um blöðum síðan maður man eftir sér,“ segir einn meðlima bandsins, Davíð Magnússon gítarleikari, sem var rétt í því er viðtalið var tekið að skríða út af sjúkrahúsi eftir að hafa lent í slysi úti á reginhafi. Svo illa vildi til að taumur slóst í auga hans með þeim afleið- AKIAMORI. Við hlið hennar má greina þann meðlim Freaky Realistic sem hvað mesta athygli hefur vakið; Justin flnderson. leikakvöldinu mikla. En úr hvaða jarðvegi er Bubbleflies sprottin? „Þeir Þórhallur og Pétur, sem sjá um hljómborðið og tölvugræjurnar, eru úr Hard Core-dansmúsíkinni en það má segja að við Palli Banine, sem syngur, séum rokkarar. Við erum innblásnir af Smiths og svona Indie-tónlist. Við héngum alltaf í Gramminu á sínum tíma.“ Saman mynda þeir fjórir kjarnann. Davíð segir plötuna geðklofa, sem sé í sjálfu sér bara eðlilegt því bandið er svo ungt. „Svo erum við að fá ákúrur fyrir að syngja á ensku. Við héldum að Jet Black Joe hefði brotið ísinn en svo er elcki. Við vonumst bara til að fólk hlusti á olckur með opn- um huga.“ Að öðm leyti segir DflVÍÐ MAGNÚSSON OG PÁLL BflNINE. Einhver talaði um sætustu og efnilegustu hljómsveitina. Þeirfá ótrúlegt tækifæri og það (Valsheimilinu á Hlíðarenda. ingum að augnbotninn sprakk. í kjölfar þess missti hann sjón á öðm auga. Hann vill þó ekki gera mikið úr því og seg- ist hvort eð er hafa ædað að taka sér frí frá sjón- um í október til að þjappa saman hljóm- sveitinni fyrir tónleik- ana, enda mikið í húfi. Það er að nokkru leyti fyrir tilstilli skífuþeytis- ins og íslandsvinarins Daves Sakrah — sem lagt hefur leið sína noklcrum sinnum til Is- lands vegna villts skemmtanalífs — sem Bubble Flies hafa komist í þessa spennandi að- stöðu. Sakrah verður hljómsveitunum tveim- ur til aðstoðar á tón- Davíð þá félaga mikla partíkalla. (Það hefiir víst ekki farið framhjá mörgum.) Þeir séu ffægir sukkarar og þar af leiðandi boði tónlist þeirra djamm og hamingju, enga óhamingju. Með þeim á væntanlegri skífu, sem ber nafnið The World is still Ali- ve, leika Magnús Kjartansson, faðir téðs Davíðs, Anna Mjöll Ólafsdóttir er gestasöngkona, Ásgeir Óskarsson er á trommur, Ragnar Óskarsson á bassa og Tóti nokkur og Ýmir. Þess má og geta að Da- ve Sakrah fórum höndum um nokkur lög plötunnar. Um hina sveitina, Freaky Realistic, hefur mikið verið ritað í breskum blöðum. Hef- ur hún fengið ffábæra dóma í hvívetna en er nú að gefa út sína fyrstu stóru skífú. Hljóm- sveitin spilar danstónlist með „funk-, rokk-, hiphop- og poppívafi“. Meðlimir hennar eru þrír og af ólíkum upp- runa; Michael Lord er svartur rappari, Aki Amori er japönsk söngkona og Justin Anderson er breskur lagahöfundur sem syngur einnig. Hann er sá í hljómsveitinni sem hvað mesta athygli hefur vakið enda sagður ffábær á sviði og hafa þúsund andlit. Einhver hafði á orði að það mætti bæði greina í honum Jökul Tómasson útlitshönnuð og Friðrik Weisshappel verslun- areiganda. Þess má geta að Friðrik hefur tekið það hlut- verk að sér að vera kynnir kvöldsins. MYNDLIST Högna Sigurðardóttir í góðum félagsskap FIMM NORRÆNIR ARKITEKTAR KJARVALSSTÖÐUM Er yfirleitt hægt að dæma um byggingu fyrr en hún er risin og hefur verið í notkun í mörg ár? Og er nokkur fær um að dæma hana annar en sá sem notar hana? Eitt er víst að gagnrýni á arkitektúr er margslungið mál, því það eru svo margir þættir sem hægt er að taka tillit til. Praktíska hlið- in er stór þáttur, efnið og að- ferðirnar sem beitt er við smíðina, sú tækniþekking og hugsanlega tækninýjungar sem þar koma fram. Svo er það spurningin um hversu vel byggingin þjónar hlutverki sínu, hvernig hun lagar sig að þeirri þjóðfélagsgerð sem er til staðar á hveijum tíma. Þá má tíunda ýmis fagurffæðileg viðhorf. Er byggingin falleg? Hvemig fellur hún inn í um- hverfið? Hefúr hún eitthvert menningarsögulegt gildi? Býr hún yfir nýjungum í bygging- arlist? Síðan eru ýmsar óræð- ari spurningar sem varða samskipti hússins við um- hverfið og fólkið sem um- gengst það. Býr það yfir sögu, eða táknrænni merkingu? Og er sjálfsagt margt ótalið. Það er borin von að sýning á arkitektúr geti gefið okkur heildaryfirsýn yfir alla þætti byggingarinnar. Það er út af fyrir sig spurning hvort það sé yfirleitt til slík heildaryfirsýn? Eitthvað hlýtur alltaf að verða útundan, jafnvel arkitektinn getur ekki vitað allt um húsið sem hann hannar. Sýningar á arkitektúr geta ekki, og eiga ekki, að reyna að sýna okkur allt. Þær verða að reyna að velja úr þau atriði sem geta gefið okkur tilfinningu fyrir heildarmyndinni. Of margar teikningar ragla mann í rím- inu. Það þarf kunnáttu og reynslu til að geta lesið úr þeim ólíku upplýsingum sem hægt er að styðjast við, en sumt er aðgengilegra en ann- að. Það er nauðsynlegt að hafa þessi atriði í huga þegar skoð- uð er sýning á arkitektúr, líka til að sigrast á óþolinmæði sem grípur mann, því áhorf- andinn þarf að leggja töluvert á sig til að komast inn í bygg- inguna, ef svo má segja, og heimfæra þær upplýsingar sem hann fær upp á eigin reynslu. Sýningin á fimm norræn- um meisturum á Kjarvals- stöðum er farandsýning frá Finnlandi, en meistararnir eru Högna Sigurðardóttir- Anspach, fædd og uppalin í Vestmannaeyjum en hefur starfað í Frakklandi, Norð- maðurinn Sverre Fehn, Dan- inn Knut Holscher, Svíinn Peter Celsing og Finninn Aamo Ruusuvuori. Allir eru þeir af sömu kynslóð, fæddir á þriðja áratug aldarinnar (Daninn yngstur, fæddur 1932), þannig að samanburð- urinn er athyglisverður og veitir líklega góða yfirsýn yfir efnistök norrænna arkitekta sem byija að láta til sín taka á sjöunda áratugnum. Ágætlega hefur tekist til með þessa sýningu. Hún er aðallega byggð upp á módel- um og ljósmyndum, en minna lagt upp úr teikning- um en off er á slíkum sýning- um. Einnig er reynt að gefa persónulegt sjónarhorn á hvern og einn. Magninu er stillt í hóf þannig að það er ekki óvinnandi vegur að komast í gegnum sýninguna án þess að eyða heilum eftir- miðdegi. Högna & co. Áhugi okkar íslendinga beinist fyrst og fremst að Högnu Sigurðardóttur, sem hefur náð talsverðum ffama í Frakklandi og hlotið þá ein- stöku upphefð að vera valin í akademíu ffanskra arkitekta. Þær byggingar sem Högna hefur unnið að í Frakklandi og gefur að líta hér eru allar opinberar byggingar. Svip- mót þeirra ber með sér að þær hafa ákveðnu hlutverki að gegna sem býður ekki upp á neinn leikaraskap. Efna- hags- og fjármálaskýrslumið- stöðin í Savigny-le-Temple er enginn skemmtistaður, bygg- ingin rís upp úr síki eins og fimm tröllauknir skjalaskáp- ar. En það er einkenni á bygg- ingum hennar að henni tekst að leysa upp strangleikann með hrynjandi sem byggist á reitaskipan og endurtekn- ingu. Það má kannski orða það svo að hún laði fram músíkina í byggingunni með línum, flötum og blokkum, taktfasta músík sem er aldrei einhæf. En það er óneitanlega módernískur bragur á húsum hennar. Hún leyfir sér enga óþarfa útúrdúra, engar súlur og bogagöng. Eitt sterkasta einkennið á byggingum hennar er hvíti liturinn. Pi- erre Villette-barnaskólinn er ekki aðeins hvítur, hann er hvítari en spítali. Gólf, hand- rið og ljósabúnaður, hvert smáatriði er hvítt utan sem innan. Áherslan á hvíta litinn endurspeglar hinn mó- derníska hugsunarhátt bak við byggingarnar. Hvíti litur- inn segir manni: hér er ekki verið að skapa smekklegt um- hverfi, heldur verklegt, prakt- ískt. Hann dregur athyglina ffá umbúnaðinum að nota- gildi rýmisins. Hvíti liturinn er líka talinn „hlutlaus", hann höfðar ekki til tilfmninganna eða býður upp á táknrænar eða listræn- ar skírskotanir. Hvíti liturinn segir því ennfremur: þetta er lýðræðisleg bygging sem til- heyrir engum nema þeim sem þurfa á henni að halda. Utanaðkomandi á aldrei að fá á tilfinninguna að hann sé að fara inn á yfirráðasvæði ann- arra. Það eru engir skuggar eða skúmaskot, allt er opið, bjart og bert. Hvemig þetta virkar í raun er erfitt að segja, því þótt hvíta hlutleysið komi vel út á mynd þá getur það hæglega skapað þvingandi umhverfi sem takmarkar möguleika til aðlögunar, allir aðskotahlutir verða svo framandi. Húsin hennar Högnu eru kannski spartönsk, en búa yfir áreynslulausri reisn. Högna er ekki eini spenn- andi arkitektinn á sýning- unni. Ég vil vekja athygli á Norðmanninum Sverre Fehn, sem er prófessor í byggingar- list við háskólann í Yale í Bandaríkjunum og hefur hannað afar óvenjulegar safnabyggingar. Daninn Knut Holscher er forsprakkinn í hópi sem hefur fengist við gjörólík viðfangsefni og að- lagar sig hverju verki á hug- myndaríkan hátt. „Efnahags- og fjármálaskýrslumið- stöðin í Savigny-le-Temple er enginn skemmtistaður, byggingin rís upp úr síki eins ogfimm tröllauknir skjala- skápar. “ MYNDLIST • Guðbjörn Gunnars- son, Bubbi, opnar högg- myndasýningu í Lista- galleríi, Listhúsinu í Laugardal, á laugardag kl. 15. • Pétur Magnússon opnar sýningu á skúlptúr- um á efri hæðum Nýlista- safnsins á laugardag kl. 15. • Elisabet Norseng opnar sýningu á verkum sínum í forsal Nýlista- safnsins á laugardag kl. 15. • Guðrún Hrönn Ragn- arsdóttir opnar sýningu á skúlptúrum í Gryfjunni í Nýlistasafninu á laugar- dag kl. 15. • Sigurjón Ólafsson Sýningin Hugmynd- Höggmynd - úr vinnu- stofu Sigurjóns Ólafsson- ar stendur nú yfir í Lista- safni hans. Úrval verka frá ólíkum tímabilum í list Sigurjóns. • Haukur Dór heldur myndlistarsýningu í List- munahúsinu. • Birgir Björnsson hef- ur opnað sýningu á verk- um sínum í Galleríi Sæv- ars Karls. • Guðbjörg Guðjóns- dóttir sýnir olíu- og akrýlmyndir í kaffistofu Hlaðvarpans. • Skagen; úrval lista- verka frá Skagensafninu á Jótlandi til sýnis í Nor- ræna húsinu. Um er að ræða málverk, vatnslita- myndir og teikningar. Op- ið daglega kl. 14-19. • Erna Guðmarsdóttir hefur opnað sýningu í Snegiu á myndum mál- uðum á kínverskt silki. Opið mánudaga til föstu- daga kl. 12-18 og laug- ardaga kl. 10-14. • Þorvaldur Þorsteins- son hefur hengt upp sýn- ishorn úr nýjum flokki Ijósmyndaverka á Mokka. Síðasta sýning- arhelgi. • Gunnlaugur Blöndal. Sýning á málverkum listamannsins á Kjarvals- stöðum, í tilefni þess að hundrað ár eru liðin frá fæðingu hans. Opið dag- lega kl. 10-18. • Hannes Pétursson. Sýning á Ijóðum hans á Kjarvalsstöðum. Opið daglega kl. 10-18. • Fimm norrænir meistarar nefnist sýning á Kjarvalsstöðum á verk- um fimm norrænna arki- tekta. Opið daglega kl. 10-18. • Jónfna Björg Gfsla- dóttir sýnir vatnslita- myndir í Portinu. Síðasta sýningarhelgi. Opið kl. 14-18. • Bragi Ásgeirsson sýnir grafíkverk á efri hæð Listasafns íslands. • Ásgrímur Jónsson. Sýning stendur yfir í Ás- grímssafni á vatnslita- myndum eftir listamann- inn. Opið á laugardögum og sunnudögum kl. 13.30-16. • Kjartan Guðjónsson hefur hengt upp verk sín í Götu-grillinu, Borgar- kringlunni. • Arngunnur Ýr sýnir olíumálverk á Hulduhól- um, Mosfellsbæ. Opið daglega kl. 14-18. • Asmundur Sveins- son. Yfirlitssýning í Ás- mundarsafni við Sigtún í tilefni aldarminningar hans. Verkin spanna all- an feril hans, þau elstu frá 1913 og þaö yngsta frá 1975. Opið alla daga frá 10-16.

x

Pressan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.