Pressan - 07.10.1993, Síða 34
I Þ ROTTIR
Fimmtudagurinn 7. október 1993
34
PRESSAN
Nýjustu tröllin í handboltanum
Víkingar í skýjunum
““ Það eru Víkingar sem eiga
tvo stærstu mennina í deild-
inni í vetur. Stærsti handbolta-
maðurinn er ekki íslendingur,
heldur Serbinn Miladin
Ostojic. Hann er engin smá-
smíð, 2,03 metrar og 96 kg.
Ostojic er örvhent skytta og
feikilega öflugur. Aðrir í Vík-
ingsliðinu eru svo sem engir
dvergar. Sá sem er næststærst-
ur í handboltanum í vetur
heitir Ingi Þór Guðmundsson
og er líka í Víkingi. Hann er
2,00 m og 96 kg og spilar íyrir
utan vinstra megin. Sannkall-
aðar stórskyttur þar á ferð.
Þeir sem koma næstir hvað
stærð snertir eru: Einar
Gunnar Sigurðsson, Selfossi,
1,98 og 98 kg; Ólafur Stefáns-
son, Val, 1,96 og 85 kg; Pat-
rekur Jóhannesson, Stjörn-
unni, 1,95 og 90 kg, og síðast
en ekki síst er sá sem er mestur
að flatarmáli: Valsmaðurinn
Sigfús Sigurðsson. Hann er
1,95 og 105 kg, tröll að burð-
um og mikill varnarmaður.
Til samanburðar má geta þess
að minnsti landsliðsmaðurinn
er Valdimar Grímsson, KA,
sem er „aðeins“ 1,80 m.
Það telst ekki verra að vera
stór í handboltanum, án þess
að því sé haldið fram að það
ráði úrslitum. Það er vor hjá
handboltamönnum, vertíðin
að byrja. Það er ljóst að Vals-
menn mæta sterkir til leiks og
eru af flestum taldir sigur-
stranglegastir. Þó er það sam-
dóma álit tíðindamanna
PRESSUNNAR að deildin
verði jafnari en oft áður.
Gunnar Gunnarsson, þjálfari
Víkinga, telur varla að það geri
útslagið fyrir þá að hafa
stærstu mennina. „En við ætl-
_um okkur hluti. Þó væri bjart-
sýni að halda því fram að við
verðum í toppbaráttunni.“
Úlafur Stefánsson: 1,96 m.
Patrekur Jóhannesson: 1,95 m.
Sigfús Sigurðsson: 1,95 m.
Dagur Sigurðsson: 1,94 m.
Miladin Ostojic: 2,03 m.
Kolumbíumaðurinn Asprilla slær í gegn
Besti sóknarmaðurinn í dag
Þýska knattspyrnan
Peningarnir rúlla inn
Þeir hjá íþróttadagblaðinu
Gazzetta dello Sport á Italíu
eru ekki gjarnir á að skafa ut-
an af hlutunum og það á við
um nýjustu stjörnu ítölsku
knattspyrnunnar: „Hann er
besti alhliða sóknarmaður
heims í dag,“ sagði blaðið fyrir
skömmu um Kólumbíu-
manninn Faustino Asprilla
sem skorað hefúr sex mörk í
þremur umferðum og er
meðal markahæstu manna.
Asprilla kom til Parma á
síðasta ári og í fyrstu virtist
hann ekki ætla að standa und-
ir væntingum. Hann var í eig-
in heimi á æfingum; átti það
til að leika á hálft liðið og
missa svo knöttinn. Þjálfari
Parma sá hins vegar hve hæfi-
leikaríkur hann var og lagði
það á sig að læra spænsku til
að ná sambandi við Asprilla.
Hlutirnir breyttust hins
vegar í leik gegn AC Mílanó.
Félagar hans leyfðu honum að
taka aukaspyrnu af vonlausu
færi og Asprillo nýtti það.
Hann skoraði með ótrúlegu
snúningsskoti og fyrsta tap
Mílanó í 58 deildarleikjum
var staðreynd. „Þessi Asprilla
er sannkallaður djöfúll," sagði
vamarmaðurinn Franco Bar-
esi og mörgum finnst það vel
lýsa skapferli Kólumbíu-
mannsins. Sú saga gengur að
hann hafi slasast á fæti heima í
Kólumbíu í fyrra eftir að hann
sparkaði í strætisvagn!
Menn eru á því að helsti
óvinur Asprilla sé hann sjálf-
ur. Hann trylltist þegar þjálf-
ari Parma ákvað að nota hann
ekki í úrslitaleik Evrópu-
keppni bikarhafa á Wembley í
vor. 1 æðiskasti fór hann fram
á að vera seldur og menn sáu
fyrir sér örlög Maradona. Þá
hvarf hann eftir landsleik í
undankeppni heimsmeistara-
keppninnar vegna ósættis við
félaga sína. Hann fellst þó á að
leika gegn Argentínu og átti
stóran þátt í 5-0-sigri Kól-
umbíumanna.
Forráðamenn Parma telja
að þeir geti haft stjórn á sniÚ-
ingnum og Asprilla hefúr ný-
lega skrifað undir samning til
ársins 1996. Fyrir vikið fær
hann 42 milljónir króna. Það
verður gaman að fylgjast með
honum í vetur hjá Parma,
sem í fyrsta skipti er í baráttu
um titilinn. Þá verður hann
væntanlega með í heims-
meistarakeppninni í Banda-
ríkjunum á næsta ári, en Kól-
umbíumenn verða þar með
eitt athyglisverðasta liðið.
FflUSTINO ASPRILLA. Þessi 22 ára sóknarmaður er einn af markahæstu mönnum tímabilsins á Ítalíu.
Rauði herinn skotfæralaus
Frammámenn í þýsku
knattspyrnunni eru kátir þessa
dagana. Áhorfendur streyma á
leiki og peningarnir rúlla inn.
Þjóðverjar virðast vera að
upplifa mikla uppsveiflu í
deildarkeppninni og liðin eru
aftur að verða samkeppnisfær
við ítölsku risana, sem sést
best á því að enginn þýskur
leikmaður hélt suður á bóginn
fyrir tímabilið.
Þrátt fyrir að sjónvarpsum-
fjöllun hafi aukist fjölgar
áhorfendum þvert á spár
þeirra svartsýnu. Meðaláhorf-
endafjöldinn eftir níu umferð-
ir er 28 þúsund á leik og lið
eins og Borussia Dortmund,
Núrnberg og Bayern Mú-
nchen eru með yfir 40 þúsund
áhorfendur á leik. Sextán lið af
átján fá nú fleiri áhorfendur
en að meðaltali í fýrra. Meðal-
talið í fyrra á leik í þýsku
Bundesligunni var 25.175
áhorfendur. Það var hæsta
meðaltal í fimmtán ár.
EYJÓLFUR SVERRISSON. Bónus-
greiðslur hafa hækkað hjá þýskum
liðum.
Liðin fá nú umtalsverðar
tekjur fyrirffam í gegnum sölu
á sjónvarpsrétti. Þannig fá öll
liðin 170 milljónir króna frá
sjónvarpsstöðvunum, sem
telst dágóð búbót. Þetta hefúr
aukið breiddina í deildinni,
sem gerir hana meira spenn-
andi, og þannig koma fleiri
áhorfendur. Velta deildarinn-
ar nam 13,6 milljörðum í fyrra
og hafði nítjánfaldast frá upp-
hafsdögum Bundesligunnar
fyrir þrjátíu árum.
Og leikmenn njóta einnig
velgengninnar. Bónusgreiðsl-
ur hafa hækkað mikið. Meist-
ararnir í Werder Bremen
borga frá 42 þúsundum upp i
73 þúsund krónur fyrir hvert
stig. Endanleg upphæð veltur
á lokastöðunni. Ef þeir verja
titilinn fær hver leikmaður
sem leikur þrjátíu leiki eða
fleiri 2,1 milljón króna auka-
lega.
Ingi Þór Guðmundsson: 2,00 m.
Það er allt upp í loft hjá
Liverpool. Þeir sem horfðu á
leik liðsins á laugardaginn
var sáu að ekki er allt með
felldu þar á bæ. Liðið er öm-
urlegt og óhætt að segja að
enginn þeirra leikmanna
sem þar voru inná hefði
komist í liðið fyrir nokkrum
árum.
Framkvæmdastjóri félags-
ins, Graeme Souness, er bú-
inn að tilkynna að hann ætli
að hætta eftir tímabilið en
menn vita ekki hvort hann
endist svo lengi. Staða hans
sést best á því að í nágrann-
aslag við Everton fyrir
skömmu sungu stuðnings-
menn Everton; Ekki láta
Souness hætta!
Þá telja menn að Souness
hafi sett allt of sterkan per-
sónulegan svip á liðið, sem
lagt hefur hið fræga spil sitt
til hliðar og tekið upp ký-
lingaknattspyrnu í enskum
stíl. Þá eyddi hann 5 milljón-
um punda í að kaupa harð-
Þessi mynd sýnir vel ástandið í „fjölskyldufélaginu" Liverpool: Leikmenn-
irnir McManaman og Grobbelar í slagsmálum eftir að þeir kenndu hvor
öðrum um mark sem liðið fékk á sig.
jaxlana Neil Ruddock og
Julian Dicks, sem hefúr ver-
ið rekinn átta sinnum út af
og fengið 48 gul spjöld á ferl-
inum. Þegar Souness keypti
þá hafði hann á orði að nú
væri liðin sú tíð að önnur lið
hefðu gaman af að leika við
Liverpool.
I raun hefur Souness gert
fáránlega umbyltingu í her-
búðum Liverpool. Félagið
hefur hingað til stært sig af
samfelldri þróun þar sem
einn leysir annan af hólmi
eins og í fjölskyldufyrirtæki.
Trúnaðurinn og virðingin
gagnvart félaginu hafa verið
alger. Þetta er breytt og and-
rúmsloftið heldur dapurt.