Pressan - 11.11.1993, Síða 12

Pressan - 11.11.1993, Síða 12
SKOÐANIR Fimmtudagurinn 11. nóvember 1993 12 PRESSAN PRESSAN Útgefandi Blaö hf. Ritstjóri Karl Th. Birgisson Ritstjórnarfulltrúi Siguröur Már Jónsson Markaösstjóri Sigurður I. Ómarsson Ritstjóm, skrifstofur og auglýsingar: Nýbýlavegi 14 -16, sími 64 30 80 Faxnúmer: Ritstjórn 64 30 89, skrifstofa 64 31 90, auglýsingar 64 30 76 Eftir lokun skiptiborðs: Ritstjóm 64 30 85, dreifing 64 30 86,.tæknideild 64 30 87 Áskriftargjald 798 kr. á mánuöi ef greitt er meö VISA/EURO en 855 kr. á mánuöi annars. PRESSAN kostar 260 krónur í lausasölu ítalskt siðferði í Seðlabanka Bifreiðakaup Seðlabankans fyrir Jón Sigurðsson banka- stjóra taka á sig æ sérkennilegri myndir og líkari þeim sem við ættum að vænta úr suður-evrópsku stjómkerfi. Eins og PRESSAN skýrði frá í síðustu viku blandaði Jón Sigurðsson saman illræmdum jeppakaupum bankans og eigin persónu- legu bílaviðskiptum við sama bifreiðaumboð. Það gerðist með þeim hætti að um leið og banldnn keypti rándýran jeppa af umboðinu lét Jón umboðið kaupa af sér notaðan einkabíl, sem er gagnstætt venjulegum viðskiptaháttum bif- reiðaumboða. í kjama sínum em þetta „ítölsk“ viðskipti. Opinber stofh- un kaupir vöm af fyrirtæki og stjómandi hennar notar tæki- færið til að láta það fyrirtæki leysa ákveðinn vanda í einka- fjármálum sínum. Þetta gæti hafa gerzt einhvern veginn svona: Bifreiðaumboðið Jöfur veit að Seðlabankinn ætlar að kaupa af þeim dýmstu gerð af jeppa. Á sama tíma hefur Jón Sigurðsson samband og segist vera í vandræðum með fimm ára gamlan amerískan bíl sem hann þurfi að selja. Hvemig á umboðið að bregðast við? Þeir leggja að vísu eldd í vana sinn að kaupa notaða bíla nema þeir séu teknir sem greiðsla upp í dýrari; og þeir em að vísu ekki með umboð fýrir þessa bif- reiðategund. En hvað? Er hugsanlegt að þeir missi af millj- ónaviðskiptum ef þeir lcaupa ekki bíl Seðlabankastjóra fyrir nokkur hundmð þúsund? Skynsemin segir umboðinu að auðvitað kaupi það þennan notaða bíl. Vera kann að par hundmð þúsunda tapist á þeim viðskiptum, en það em smá- munir miðað við milljónimar sem von er á frá Seðlabankan- um. Viðskiptin fóm ffarn og í eina viku var Jöfúr eigandi gamla bílsins. Þá var Jón Sigurðsson neyddur til að skila dýra jepp- anum og um leið voru prívatviðsldpti hans við Jöfúr látin ganga til baka. Allt er þetta staðfest með upplýsingum úr bif- reiðaskrá og frá umboðinu. Jón Sigurðsson segir hins vegar að þessi viðsldpti hafi aldrei farið ffam. Það em út af fýrir sig óskiljanleg ósannindi. Allt þetta ætti að nægja til að þess sé krafizt að upplýst verði opinberlega hvemig einlcaviðskipti Seðlabankastjóra við biffeiðaumboðið tengdust viðskiptum banlcans við það. Hvers vegna segir Seðlabankastjóri ósatt um viðskiptin? Naut hann sérstakra kjara í einkaviðskiptum sínum í kraffi við- skipta bankans? Af hveiju brá umboðið út af vananum og keypti notaðan bíl án þess að sami aðili keypti annan dýrari? Eða getur verið að umboðið hafi litið á prívatpersónuna Jón Sigurðsson og Seðlabanlcann sem einn og sama viðskiptavin- inn? Greiddi umboðið Jóni hærra verð fyrir einkabílinn en eðlilegt getur talizt? Vissi bankaráðið af þessum viðskiptum? Hvar em nú hinir nýupprisnu siðbótarmenn á Alþingi? Þykja þeim þetta eðlileg viðskipti? Þeir hljóta að krefjast þess af Seðlabankanum að þessum spurningum og fleiri verði svarað. Og áður en rfidsstjóm og AJþingi ákveða að fækka Seðlabankastjórum um einn er eðlilegt að spurt sé hvort öðr- um þeirra sem fyrir sitja sé sætt í ljósi þessara upplýsinga. BLAÐAMENN: Bergljót Friöriksdóttir, Guörún Kristjánsdóttir, Jakob Bjamar Grétarsson, Jim Smart Ijósmyndari, Kristján Þór Ámason myndvinnslumaöur, Páll H. Hannesson, Pálmi Jónasson, Sigríöur H. Gunnarsdóttir prófarkalesari, Snorri Ægisson útlitshönnuöur, Þorsteinn Högni Gunnarsson. PENNAR Stjómmál: Andrés Magnússon, Ámi Páll Ámason, Einar Karl Haraldsson, Guömundur Einarsson, Hannes Hólmsteinn Gissurarson, Hreinn Loftsson, Möröur Ámason, Ólafur Hannibalsson, Óli Björn Kárason, Þórunn Sveinbjarnardóttir, Össur Skarphéöinsson. Listir: Einar Örn Benediktsson, mannlíf, Guðmundur Ólafsson, kvikmyndir, Gunnar Árnason, myndlist, Gunnar Láms Hjálmarsson popp, Kolbrún Bergþórsdóttir bókmenntir, Martin Regal leiklist. Teikningar: Ingólfur Margeirsson, Kristján ÞórÁrnason, Snorri Ægisson, Einar Ben. AUGLÝSINGAR: Ásdís Petra Kristinsdóttir, Pétur Ormslev. Setning og umbrot: PRESSAN Rlmuvinnsla, plötugerö og prentun: ODDI STJÓRNMÁL Engu gleymt — ekkert lœrt „Hin eðlilega túlkun ersennilega sú aðfram- sóknarmenn hafi um helgina verið að benda á sjálfa sigsem lipra nýja samstarfsmenn fyrir þann Sjálfstœðisflokk sem nú vill láta reka á reiðanum íþeirri von að syndaflóðið verði ekki fyrren eftir hans dag. “ Ýmsir sögðu það vorið 1991 að einn sögulegasti at- burðurinn við stjómarskiptin væri í rauninni ekki tengdur hinni nýju stjóm heldur hinni nýju stjómarandstöðu: nú var Framsóknarflokkurinn utan stjórnarráðsins í fýrsta sinn í tuttugu ár. Tuttugu ár em heil eilífð í pólitík: Síðasta stjórn sem Framsókn sat ekki í (fýrir utan tvo kratamánuði 1979-80) var ráðuneyti Jó- hanns Hafsteins; meðal þeirra ungu manna sem fýrst náðu kjöri á alþingi í kosningunum 1971 var einmitt Steingrímur Hermannsson. I sæmilegu lýðræðissamfé- lagi er stjómarandstaða eitt af því besta sem getur komið fýrir burðarflokka einsog Framsókn hefur reynst á ís- landi 20. aldar. Þá fá flokkarn- ir frið frá önnum dagsins til að hugsa fram í tímann, end- urnýja stefnu sína og stíl, koma í gegn tímabærum mannaskiptum; laga svo brot- ið í buxunum, velja nýjustu tísku í hálstaui, setja á sig vel- lyktandið og vera reiðubúinn að sjarméra þjóðina uppá nýtt. Fyrstu misserin virtist Framsóknarflokkurinn hafa staðist þokkalega þá prófraun að lefica stjómarandstöðuhlut- verkið í fýrsta sinn í tvo ára- tugi. Framsóknarmenn létu aðra stjómarandstæðinga um hróp og köll og reyndu sjálfir að halda á sér ráðherrasvipn- um með þeim illa duldu skila- boðum útí þjóðfélagið að nú væri bara ofurlítill svigi í stjómmálasögunni þangað til þeir tækju aftur við stjórnar- taumum. Og flokkurinn nýt- ur enn þessarar taktíkur í skoðanakönnunum sem hafa lyft honum á stall jafúháan slökum Sjálfstæðisflokki og treyst forystuhlutverk Stein- gríms og Framsóknar í stjóm- arandstöðunni þrátt fýrir nokkra samkeppni frá Ólafi Ragnari þegar hann fær frið til frá flolcksbræðrum sínum elskulegum. Það hefúr sennilega hjálpað Framsóknarflokknum að að- stæðumar hafa gert honurn kleift að brosa í nokkrar áttir í senn. Þannig reyndist flolckn- um alls ekki illa að skiptast í tvennt í EES-málinu, þarsem Steingrímur varð einskonar sáttasemjari milli íhalds- manna undir forystu Páls Pét- urssonar og módernista með Halldór Ásgrímsson á oddin- um. Þannig er miðjuflokkur- inn áfram opinn í báðar áttir í miðjunni — sem fellur vel í kramið hjá ákveðnum hluta kjósenda á breytinga- og óróatímum. Framsóknarflokkurinn hef- ur núna þá stöðu að allar líkur em á að hann geti ef hann vill orðið forystuflokkur ríkis- stjómar sem stjórnarand- stöðuflokkamir mynduðu eft- ir kosningar, sem geta orðið hvenær sem er ffamrná þar- næsta vor. Hvemig stjóm gæti það orðið? Hvað vill hinn ótvíræði forustuflokkur stjómarandstöðunnar? Hvert er svarið við núverandi stjóm- arstefúu? Leit að svari við þessum spurningum er afar athyglisvert ferðalag fýrir þá sem hafa haft uppi gagnrýni á Davíð og félaga. Um helgina hélt Framsókn- arflokkurinn miðstjórnar- fúnd. Flokkurinn heldur að- eins einn slfican á ári, það ár sem ekki er haldið flokksþing. Niðurstaða slíks fúndar ætti þessvegna að vera þokkaleg vísbending um þá leiðsögn sem framsóknarmenn ætla að veita þjóðinni næstu árin. Því miður. Ályktun Fram- sóknarfúndarins 1993 em hefðbundnir ffasar í tíu liðum um að „jafúa kjörin í landinu" — um „breiða þjóðarsátt" — „aðhald og spamað í ríkis- rekstrinum“ — um að „fella niður álögur“ á sjávarút- veg og annað at- vinnulíf — „bæta samkeppnisstöðu" í landbúnaði og svo framvegis. Það sem stendur eftir af ályktun fundarins og túlkun hennar úr munni forustu- manna í fjölmiðlun er annarsvegar að framsóknarmenn ætla sér að gera „eignakönnun“ í landinu, og hins- vegar að þeir æda að taka erlend lán — tíu milljarða, sagði Steingrímur — til að rétta við atvinnulífið. Stefúa Fram- sóknarflokksins ffá miðstjórnarfund- inum er þannig tvennskonar. Ann- arsvegar em klass- ískar „vinstri- stjómar“- aðferðir, sem sjálfstæðis- menn hafa reyndar ekki síður aðhyllst: erlend lán eiga að spýta nýjum gangi í efnahagslífið, halda uppi lífskjörum og velferð — í því trausti að aðrir þurfi að borga þau affur. Hinsvegar býður Framsóknar- flokkurinn status quo í atvinnumál- um þarsem veislu- haldið fýrir erlendu lánin er fýrir alla: engar hugmyndir um endurskipu- lagningu í sjávarútvegi, hvað þá landbúnaði, ekki orð um banka- og fjármagnskerfi. Það er erfitt að setja þetta nýja stefúuplagg ffamsóknar- manna í það samhengi að hér sé á ferð forustuflokkur í nýrri ríkisstjórn. Aftur á móti em tillögumar í dágóðu samræmi við nýjustu stjórnaraðgerðir Sjálfstæðisfloklcsins í kompan- íi við ASÍ og VSÍ. Og eftir allt saman er hin eðlilega túlkun sennilega sú — af því þeir em engir asnar í hinni hráu valda- pólitík — að ffamsóknar- menn hafi um helgina verið að benda á sjálfá sig sem lipra nýja samstarfsmenn fýrir þann Sjálfstæðisflokk sem nú vill láta reka á reiðanum í þeirri von að syndaflóðið verði ekki fýrren eftir hans dag. Höfundur er íslenskufrædingur. FJÖLMIÐLAR Ólafur lendir í ruslinu „Vceri það fréttnæmt efHeimir Steins- son skyti hund í staðinn fyrir gæs? Já. Hrafn Gunnlaugsson? Alveg örugglega. Páll Magnússon? Dittó. “ Það var ýmislegt athyglis- vert að finna í langhundi Ól- afs Jóhannssonar fréttamanns í Mogganum í síðustu viku, þar sem hann segir til synd- anna þeim blöðum sem sögðu ffá þvi þegar hann í slagtogi með Páli Magnússyni skaut nýlega veiðihund í mis- gripum fyrir gæs. Efnislega bætti hann ekki mildu við málið, öðm en að það hefði verið hann sem tók í gjkkinn og að það hefði ekki verið myrkur, heldur rökkur og skotbjart upp í norðvestur- himininn. (Sem bætir ekki beinlínis málstaðinn: sá hann þá hundinn og skaut samt? Eða var of mikið „rökkur“ til að hann sæi hundinn? Ef svo var, skaut hann þá á eitthvað sem hann sá ejcki?) Látum það vera. Það var tvennt annað sem vakti meiri athygli mína. Annað var fféttamat fréttamannsins. Honum þótti atburðurinn sumsé varla í ffásögur fær- andi og taldi þá félaga gjalda þess að vinna á fréttastofu Stöðvar2. Það er hugsanlegt að við hefðum ekki eytt miklu púðri á fréttina ef Ólafúr hefði verið einn á ferð. Sömuleiðis ef hann hefði skýrt málið og strax sagzt hafa skotið tficar- greyið, en ekki svarað með skætingi og útúrsnúningum, og þar með losað Pál undan öllum grun um verkið. Og þó. Það er út af fýrir sig líka ffétt þegar gamalreyndur veiðimaður skýtur á eitthvað án þess að vita hvað það er og drepur það. Ekki síður ef sá sami veiðimaður hefúr ítrek- að lagt sig fram við að sýna okkur byssufimi sína og -þekkingu í sjónvarpsfféttun- um. Þar fýrir utan er fjölmiðla- fólk opinberar persónur, sem getur vænzt athygli. (Reyndar fer það svolítið effir vinnu- stað; fréttamaður á Stöð 2 er meira áberandi en blaðamað- ur á Mogganum eða Tíman- um, svo dæmi sé tekið.) Væri það fréttnæmt ef Heimir Steinsson skyti hund í staðinn fýrir gæs? Já. Hrafú Gunn- laugsson? Alveg örugglega. Páll Magnússon? Dittó. Mig grunar reyndar að fréttamat Ólafs í þessu máli ráðist töluvert af þvi að hann átti sjálfúr í hlut. Sem tengist einnig beint hinu atriðinu sem vakti athygli mína. Það er nafúgiftin sem Ólafúr gaf blöðunum sem fluttu ffétt- ina: „Sorpblöð“. Við erum vön skeytunum hér á PRESSUNNI, en líka Tíminn, litla Alþýðublaðið og það sakleysislega Sviðsljósf Nú bregðast krosstrén. Þessi blöð birtu einfalda ffétt af tiltölulega einföldum atburði sem hafði fféttagildi fyrir lesendur (þótt Alþýðu- blaðið skyti reyndar yfir markið og fúllyrti meira en það gat staðið við). I okkar tilfelli var ekkert skrifað um- ffam það sem fjölmörgum viðmælendum kom saman um og þeir höfðu beint og óbeint frá aðilum málsins (sem kusu að veita engar upplýsingar). Enda hrakti Ól- afúr engin efnisatriði málsins. Hvað gerir þá þessi blöð að sorpblöðum? Skilgreining Ól- afs virðist vera að það séu blöð sem flytja fféttir sem honum finnst að elcld ætti að flytja af því að hans eigið fféttamat er kolbrenglað í málinu. Þetta er ekki óalgeng afstaða; svipar t.d. tfi þeirrar sem utanrfidsráðherra hafði í skinkumálinu í sumar og Jón Sigurðsson sýndi í jeppamál- inu (og önnur dæmi eru leg- íó). Það er hins vegar ills viti þegar fréttamenn hugsa svona; hlutverk „sorpblaðs- ins“ samkvæmt þessari skil- greiningu er nefúilega nokk- uð sem þeir ættu að taka fagnandi þegar það gefst. Ef þeir eru alminlegir frétta- menn. Kari Th. Birgisson

x

Pressan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.