Pressan - 11.11.1993, Side 20
i 20 PRESSAN
GRIMAN FELLUR
Fimmtudagurinn 11. nóvember 1993
i
TIL6ERÐARLE6IR
f
^dlcuðiiionv
Nokkrir vel valdir einstaklirtgar sem eru ekki allir þar sem þeir eru séðir.
ÍRIS
ERLINGSDÓTTIR
Hugsanlega er hún ósýnileg
á bak við allt óróbronsið.
Svo er hún líka gift Jónog-
GullaGulla. Ef það er ekki
að gefa sig á vald tilgerð-
inni þá er það ekki hægt.
ARTHÚR
BJÖRGVIN
BOLLASON
Mr. Tilgerð. Bara hvernig hann
tjáir sig. Hans versta martröð
er að það gæti vitnast að
hann er ekki gáfaðri en geng-
uroggerist.
7
ÓLÖF RÚN
SKÚLADÓTTIR
Engin manneskja getur verið
svona yfirborðskennd í raun
og veru. Skýrleiki hennar í
framsögn er tilbúningur.
Þessi hreimur er hvorki að
austan, norðan, vestan né
sunnan. Hann er einfaldlega
ekki til.
/ Úrval faxtækja fyrir venjuiegan pappír.
/ Faxtæki vinnustaáarins
/ Faxtæki heimilisins
OPTÍMA
Ármúla 8, sími: 679000
ÓLAFUR SKÚLASON
Michael Jackson prestastéttarinnar. Líka kallað Pálma Matthíassonar-synd-
rómið. Flöturinn er svo sléttur og felldur að fyrr eða síðar hlýtur eitthvað
gruggugt að gusast upp á yfirborðið.
PÁLL ÓSKAR OG DÓRURNAR EINARS OG
TAKEFUSA
Hlunkast niður eins og liflausar strengjabrúður nái einhver að stela frá þeim
sviðsbjarmanum. flthyglissýkin er svo þreytandi að það eina sem maður hugsar
um í návist þeirra er næsta útgönguleið.
VIGDÍS
FINNBOGADÓTTIR
Hún er eitt leikrit frá upphafi
til enda og allir löngu hættir að
vita eða heyra muninn á nýárs-
ræðunni og gróðursetningar-
ræðunni. Hún gæti rofið til-
gerðarmúrinn með því að fá sér
einu sinni sígarettu opinber-
lega.
JÓN SIGURÐSSON
Hans tilgerð verður mest áberandi þegar hann er harðmæltur og linmæltur í sama sjónvarp-
sviðtalinu. Hann talar norðlensku og vestfirsku bara þegar hann man eftir því; annars er það
gamla, góða sunnlenska linmælgin sem er honum eðlileg.
SALÓME
ÞORKELS-
DÓTTIR
Hún frétti einhvern tíma
af því að herðapúðar
væru í tísku en fattaði
ekki að herðabreiðar
konur verða eins og eitt-
hvað hafi dottið á haus-
inn á þeim.
^PFTÖR VILHJÁLMSSON
Menntaður úr talskóla Halldórs Laxness. Það er nóg. Jú og kannski penninn
um hálsinn. Það er svona svipað og að kvensjúkdómalæknir væri alltaf með
gúmmíhanska um hálsinn.
SIGRÍDUR
BEINTEINSDÓTTIR
Sú sem heldur því statt og stöð-
ugt fram að hún hafi gaman af að
syngja með Stjórninni er að Ijúga.
Baáberinn snari
nashuatec P295 faxtækin
SIGURÐUR
PÁLSSON
Hann er þessi últraskáldtýpa
og notar öll trixin í bókinni:
Fer í gömlu listamannstýp-
una með trefilinn, Gitanes-
sígarettur og snittubrauðið
undir handleggnum. Ef þú
flettir upp orðinu bóhem í
orðabók er örugglega mynd
af honum þar.
snarar baáum þínum hratt
ag örugglega hvert sem er.
SIGRÚN
HJÁLMTÝSDÓTTIR
Hún leggur svo geysilega mikið
upp úr því að vera tilgerðar-
laus að það virkar óekta. Ekki
fræðilegur möguleiki að vera
svona hress alltaf. Ef hún er
ekki tilgerðarleg, þá er hún
örugglega óþolandi í sambúð.
JÓN GÚSTAFSSON
Þarf meira að segja að fá lánaða ameríska
týpu til að geta gerst átrúnaðargoð 10 ára
stúlkna.
SIGMUNDUR
ERNIR
RÚNARSSON
Það komst upp um hann end-
anlega þegar Hemmi Gunn
ruddist inn á hann. Maður
sem er laus við tilgerð hefði
umsvifalaust hent þessu
óboðna pakki út. En hann
varð að vera svo tilgerðarlaus
að hann fór að sýna þessu liði
einhverja gestrisni.
MATTHÍAS
JOHANNESSEN
Enginn annar heldur úti vikulegum dálki
til þess eins að sýna hvað hann hefur
lesið og hitt marga heimsrithöfunda.
RANNVEIG
GUÐMUNDS-
DÓTTIR
Henni tekst mjög illa að leyna
metorðagirnd sinni á bak við
þetta góðlátlega yfirbragð
sem hún hefur komið sér
upp.
EYÞÓR
ARNALDS
fllltaf mjög dúbíus þeg-
ar ungir menn leggja
svona mikla rækt við
hárið á sér. Þetta er
ekki eitthvað sem mað-
ur gerir í frístundum, að
safna öðru eins af hán
og halda því svona fal-
legu oggljáandi. Siíku
verkefni þarf að sýna
mikla alúð.