Pressan - 11.11.1993, Síða 22

Pressan - 11.11.1993, Síða 22
HEILAÞVOTTUR 22 PRESSAN Fimmtudagurinn 11. nóvember 1993 MYNDLIST • Svavar Guðnason; tíu vatnslitamyndir frá sjöunda áratugnum í sýningarsaln- um Annarri hæð, Lauga- vegi 37. Opið á miðviku- dögum frá kl. 14-18. • Samsýning. Fjórir nem- ar á myndlistarbraut í FB s»na f Listhúsinu í Laugar- dal. Opið daglega frá 10-18 nema sunnudaga frá 14-18. • Gígja Baldursdóttir sýnir myndlist sína í Port- inu, Hafnarfirði. Opið alla daga nema þriðjudaga frá 14-18. • Þorgerður Sigurðar- dóttir sýnir tréristur og ristur í plexígler í Stöðla- koti. Opið alla daga frá 14-18 nema mánudaga. • Listakonur frá Noregi Ingema Andersen og Live Helgelund sýna textílverk og silfurskartgripi í kaffi- stofu Hafnarborgar. • Elín Perla Kolka sýnir grafíkverk í Hafnarborg. • Eygló Harðardóttir sýnir veggverk og stein- steypt verk á gólfi í Hafn- arborg. • Kristín Reynisdóttir sýnir þrívíð verk og inn- setningu í Hafnarborg. • Ása Björk Ólafsdóttir sýnir steypt skúlptúrverk í Gallerii Sævars Karls. • Inga Þórey Jóhanns- dóttir sýnir olíumálverk í Nýlistasafninu. Opið dag- lega kl. 14-18. • Matthildur Leifsdóttir sýnir lágmyndir í forsal Ný- listasafnsins. Opið dag- lega kl. 14-18. • Hólmfríður Sigvalda- dóttir sýnir skúlptúr og lágmyndir í Gryfju Nýlista- safnsins. Opið daglega kl. 14-18. • Eistnesk vefjarlist; sýning stendur yfir á vefj- arlist frá Eistlandi í Nor- ræna húsinu. • Auguste Rodin; yfirlits- sýning á verkum franska myndhöggvarans á Kjar- valsstööum. Sýningin kemur frá Rodinsafninu í París og hefur auk 62 höggmynda að geyma 23 -Ijósmyndir af listamannin- um og umhverfi hans. • Finna B. Steinsson sýnir í Gerðubergi. Opið mánudaga til fimmtudaga kl. 10-22 og föstudaga til sunnudaga kl. 13-17. • Jón Óskar sýnir verk sín í Galleríi Sólon ísland- us. • Sigurjón Ólafsson. Sýningin Hugmynd-Högg- mynd Úr vinnustofu Sigur- jóns Olafssonar stendur nú yfir í Listasafni hans. Úrval verka frá ólíkum tímabilum í list Sigurjóns. • Guðbjörg Guðjóns- — dóttir sýnir olíu- og akrýl- myndir í kaffistofu Hlað- varpans. • Asgrímur Jónsson. Sýning stendur yfir í Ás- grímssafni á vatnslita- myndum eftir listamann- inn. Opið á laugardögum og sunnudögum kl. 13.30-16. • Arngunnur Ýr sýnir ol- íumálverk í Hulduhólum, Mosfellsbæ. Opið daglega kl. 14-18. SÝNINGAR • Jóhann A. Kristjáns- son sýnir svarthvítar Ijós- myndir úr Ingólfscafé sem lýsa mannlífinu á skemmti- staðnum eins og það kem- ur honum fyrir sjónir. I Ca- fé 17 daglega. • World Press Photo 93. Árleg Ijósmyndasýning á myndum sem unnu World Press Photo-samkeppnina í Kringlunni til 16. nóvem- ber. • Bill Dobblns er höfund- ur Ijósmynda af líkams- ræktarkonum sem hengd- ar hafa verið upp á Mokka- kaffi. fieimfarío fundíð Geimfarið sem átti aS lenda á Snæfells- jökli er fundið. Nýlega rakst nösk mann- eskja á þaÖ í húsakynnum snyrtistofunnar Paradísar við Laugarnesveg undir dul- nefninu Paradísarvélin. „Eg var að velta fyrir mér að drösla vélinni upp á jökulinn um síðustu helgi. Þar helði hún örugglega vakið athygli," segir Sigrún Kristjáns- dóttir, eigandi fyrirbærisins, sem ku vera jafnalgengt í Ameríku og Ijósabekkirnir á Islandi. Tií áréttingar má qeta þess Parad- ísarvélin notast tn svokallaðra bjútímeð- ferða. Sá sem flytur fyrirbærið inn er sál- fræðingur að nafni Gunnar Gunnars- son. Og hvað gerir mabur svo vib tækib? „Paradísarvélin veitir slökun á líkama og sál. Maður leggst inn í hana og lokar. Þó þarf enginn ao hræðast innilokunar- kennd því lokið er það létt að maður getur auðveldlega stjórnað því sjálfur. Vélin býður upp á nudd, aufubað og hitabakst- ur og hægt er að stilía hitann upp í allt að áttatíu og tvær gráður." Uff. Að sögn Sigrúnar er hægt að velja á milli tíu prógramma, til dæmis til að auka orku, reyna að hætta að reykja, léttast, PARADISARVEUN. Furöufyrírbæriö sem fannst viö Laugarnesveginn kemst líklega næst geimfarinu sem átti aö lenda á Snæ- fellsjökli (eöa kannski sex-machine — kynlífsvélinni sem James Brown söng um). Að höfðinu blæs kalt oa iónahreinsað Toft (þannig að hvorki hár- greiðsla né förðun ætti að eyðileggjast). Þó getur eng- inn vænst þess að breytast i Brigitte Bardot með hjálp vélar innar. En hefur betta eitthvab ab seqja laga línurnar og svo er þarna prógramm sem nefnist sensual romantic, sem hefur væntanlega eitthvað með tilfinningar og rómantík að að gera. Eða er það ekki? „I Paradísarvélinni eru gleraugu o heyrnartól. I gleraugunum er svokalla alfaljós sem er blikkandi og til þess notað að koma jafnvægi á sálina. Svo hefur Gunnar Gunnarsson látið í té mismunandi slökunar- spólur (heilaþvott arspólur), til dæmis spólu er viðkemur róm- antísku huqar- fari." MYNDLIST Potpourri í stuttu máli: Á tveimur stöðum sýna sex ungar konur sem enn eiga eftir að komast á fullt skrið. SAMSÝNINGAR í NÝLISTASAFNINU OG ......HAFNARBORG....... Það eru heilmargar sýning- ar í gangi eins og venjulega, en samt er greinilegt að margir halda að sér höndum og veigra sér við að leggja út í kostnaðarsamar sýningar. Enda er „ástandið“ í þjóðfé- laginu farið að segja til sín. Margir eru famir að leita inn á veitingastaðina með sýningar- pláss eða deila því með öðr- um. Það eru einkum yngri listamenn, tiltölulega ný- komnir úr skóla, sem eru áberandi um þessar mundir á sýningarstöðunum. Þannig er bæði með Nýlistasafnið og Hafnarborg, þrjár ungar kon- ur sýna á hvorum stað. Nýlistasafnið Af sexmenn]ingunum er það helst Hólmfríður Sig- valdadóttir sem sker sig úr og grípur augað með einföldum en vel útfærðum verkum. Hún sýnir fjórar myndir í gryfjunni, þrjú veggverk og eitt á gólfi; stjömur málaðar á tólf hringlaga töflur sem er raðað í hring; þriggja laufa munstur byggt á hringnum, og tólf bauga, þ.e. hringi úr gulllaufi sem er raðað í beina röð. Hólmfríður var við nám í GUNNAR ÁRNASON Flórens og það er ekki laust við að verkin séu eins og brot sem bera með sér óljósa minningu um borgina. Hólmfríður hefur greinilega unnið af yfirvegun að þessari sýningu til að ná ákveðnu yfirbragði sem er allt að því fágað — býr eitthvað að baki fáguðu yfirborðinu? Maður spyr sig að því hvaða stefhu Hólmfríður er að taka með þessum verkum. Annar þátttakandi á sýn- ingunni, Matthildur Leifs- dóttir, hefúr einnig dvalið í Flórens. Hennar verk em enn geómetrískari og skrautlegri en Hólmfríðar. í forsal eru fjórar myndir á gólfi sem er raðað saman úr kubbum á stærð við legókubba og mál- aðir eru sterkum litum með glimmerhúð. Kubbunum raðar hún saman í reglubund- in samhverf munstur eins og má finna í gólfinósaík í ítölsk- um kirkjum. Ég er sífellt að rekast á samhverf, symmetrísk munstur þessa dagana og með þessu áffamhaldi fer maður að tala um tísku í þessum efii- um. Samhverfa veitir festu og öryggistilfinningu, kannski hvíld — en það er líka einhver sjálfsafheitun fólgin í því að gefa sig á vald strangri reglu. Ég kann betur við verkið á pallinum, „Blóm“, þar sem Matthildur raðar glimmer- „Hólmfríður hefur greinilega unnið afyfirvegun að þessari sýningu til að ná ákveðnu yfirbragði sem er allt að þvífágað — býr eitthvað að baki fáguðu yfirborðinu? Maður spyr sig að því hvaða stefnu Hólmfríður er að tdka meðþessum verkum.“ kubbunum saman til að mynda blómakrónu. í SÚM-salnum sýnir Inga Þórey Jóhannsdóttir fimm málverk, en tvö þeirra skera sig úr. Annað heitir einfald- lega „28 rauð pensilför". Inga Þórey hefur tekið hvert og eitt pensilfar og gert að sérstöku málverki; strekkt strigann og málað af vandvirkni pensilfar eins og um sjálfstæðan hlut væri að ræða, síðan raðað þessum 28 míní-málverkum saman til að mynda eitt sam- stætt veggverk. Hér er kannski á ferðinni hugmynd sem vert væri að þróa áfram. Hafnarborg í Hafnarborg eru einnig þrjár konur að sýna saman, en af þeim eru það verk Kristín- ar Reynisdóttur sem vekja mesta athygli. Hún sýnir skúlptúrverk og innísetningu. Verkin eru ólík innbyrðis og það er nokkuð erfitt að fá fókus á aðalatriðið, eða rauða þráðinn, sem sameinar þau. Hún notar bæði tilbúna hluti og mótuð efni; hjól, skálar, kaðal, vax, pendúl, nál, o.s.frv. Öll verkin nema eitt eru nafh- laus þannig að litlar vísbend- ingar eru gefnar. Innísetningin í hliðarsaln- um inn af aðalsalnum kemur best út, en hún heitir „Til- urð“. Bak við glerskilrúm hanga tuttugu járnrammar niður úr loftinu og úr römm- unum hangir silki. Nafnið gefur tilefhi til að ímynda sér vöggustofú, en mig grunar að það búi almennari hugleið- ingar að baki. En Kristín hefúr ekki enn náð utan um þessar hugleiðingar og það vantar af- dráttarlausari útfærslu og samhengi milli verkanna. Með Kristínu sýna Eygló Harðardóttir og Elín Perla Kolka. Eygló sýnir teikningar unnar með bleki á stórar pappírsarkir sem eru límdar beint á vegginn. Þetta eru riss sem minna helst á uppdrætti eða skýringarkort úr minnis- bók, en myndirnar eru lítið spennandi og passa illa inn í rýmið. Steypt fótspor sem liggja eftir endilöngu gólfinu koma manni ekki á sporið. El- ín Perla sýnir þokkalega unn- ar ætingar, en myndefnið, sem er sett saman á losaraleg- an hátt úr hálfabstrakt nátt- úruformum, lendir á ein- hveiju gráu svæði milli hlut- heims og tákna.

x

Pressan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.