Pressan - 11.11.1993, Side 28
S M I R N O F F
SAO PAULO
Fimmtudagurinn 11. nóvember 1993
28 PRESSAN
NÁIN KYNNI
j t t
Það er ósjaldan sem ég þarf að reka eríndi inni í hin-
um ýmsustu fyrirtækjum, hvort sem það eru opinberar
stofnanir eða einka. Það gefur að skiija að það fer nátt-
úrulega eftir erindinu. Ekki fer ég og biö um stjörnu-
kortið mitt hjá farmiðasölu SVR á Hlemmi.
Það væri þó skemmtilegt ef það væri hægt.
Það sem er þó sammerkt flestum þessum fyrírtækj-
um er að í þeim öllum má finna starfsfólk sem hrein-
lega liggur með andlitið límt viö tölvuskjái. Hreyfingar-
lítiö, kannski smákippur óreglulega ef horft er á það í
lengri tíma en þrjátíu mínútur. Eftir hverju er verið að
bíða og hvaö veldur þessari ró starfsmanna yfir skjáa-
góni?
Er eitthvað að fara að birtast þeim? Hinn eini sann-
leikur! Eða eru starfsmennirnir ráðnir eftir getu í aö
leika í hinum gamaikunna myndastyttuleik? Sá sem
hreyfir sig fyrst fær ekki útborgað á réttum tíma í mán-
aðarlok?
Og ég í mínum erindagjörðum er einungis að reyna
að fá rétt svör við spurningum og jafnvel bráðavanda-
máli. Stundum treysti ég ekki þessu fólki sem alltaf
þarf að spyrja tölvuna að réttu svari. Hvort sem það er
innstæðulaus tékki eða hvort varahluturinn frá Amrígu
sé loksins korninn.
Það er gónt á skjáinn í von um svar.
Ég hef prófað að gera þetta við tölvuskjáinn minn
heima, setiö svo tímunum skiptir fyrir framan þennan
eldgamla BBC-garm í þeirri von að eitthvaö spennandi
gerist. Og geríst eitthvaö? Óekkí!
Ekki bofs! Ekki múkk! Ekki neitt fyrr en ég fer að
mata tækið meö einhverri vitleysu upp úr sjálfum mér.
Þá fara hjólin fyrst að snúast. Ég tala nú ekki um það
ef ég ýti óvart á „eyða“-takkann í einhverjum misgán-
ingi. Þá byrjar fjörið, aö reyna aö muna það sem ég var
búinn að gera. Ekki man tölvutólið það, því ég var ekki
búinn að biðja hana, kurteislega, að geyma það fyrir
VíTiig.
Og ég, sem reyni eftir fremsta megni að lifa lífinu,
rétt rek mig á að það er tölvan sem ræður. Gegnum-
sneitt virðist ríkja sú skoðun að við séum þarna fyrir
tölvuna. Af hverju get ég ekki spurt banka-tölvuna-í-
veggnum hvenær fjarkinn stoppi næst á Ægisíöu? Nú
út af því að hún veit það ekki, og getur hreinlega ekki
flett upp í leiðabókinni sem ég er með í vasanum. Hí á
hana!
Hvað gerist svo þegar bilun verður í tölvutólunum?
Fyrst er tölvunum bölvað, ekki baunanum honum Erics-
son, samanber síðasta klikk í símkerfinu. Síöan byrjar
ríngulreið, hægt og rólega, þangað til stressið veröur
svo rafmagnað að borgin lýsist upp. Og allir bölva og
ragna yfir því að geta ekki gegnt þessu djobbi sem
venjulega er álitið rót alls sem betur mætti fara í lífinu.
Enginn getur metið þessa kyrrð sem myndast þegar
þrælahaldarinn sofríar, bilar, á verðinum. Þetta óvænta
. Jfrelsi frá þrældómnum verður að líflátsdómi. Fíklar fyrir
eigin sköpuðu ánauð.
Væri ekki gaman ef tölvuskjáir færu aö sýna Bugs
Bunny og annað léttmeti öðru hverju, til dæmis þegar
þeir væru orönir þreyttir sjálfir á því aö sýna stöðu
tékkareikninga? Eða núll-fjórir segði skrítlu í staö tím-
ans, sem tölvan veit hvort sem er upp á sekúndu sjálf?
Þá gæfist tími til að hugsa um eitthvaö annað til til-
breytingar.
Og allt þetta vegna þess að ég ýtti óvart á „eyða“-
takkann sem eyddi mínum nánu kynnum af óminnis-
rassastílum geimveranna sem hittu ekki á „neisið"
heldur lentu í garðinum á Reynimel.__________________
Einar Ben.
VIUT HONNUN I
I Friðrik Karlsson gitar-1
I leikari hefur verið lengi í I
| bransanum, en heldur |
| sér bara vel. Það sama |
verður ekki sagt j
|É1k um Grigoríj Jav- >
Ilnskij, einn !
\ stuðnings-!
t \ manna Jelt- J
C* I síns Rúss-'
J landsfor-1
M seta. Þeir I
E eru í meg- I
•'■WbÍ *natriðum |
'■;mm eins: and-1
< WB litsfallið, sítt |
S ðr Háríö, syfluleg .
B augun og þykkt J
nefið. Eini munur-!
j inn er fáein ár, margar ■
* andvökunætur og ótaldir I
I lítrar af vodka. I
Filippía hreppti fjórða sætið í alþjóðlegri hönnunarkeppni í Sao Paulo
Hönnun Filippíu
hlaut mikiö lof í
keppninni, sem
Fashion TV og
MTV mynduðu í
bak og fyrír.
iÉi
inni hérlendis. Úrslifakeppnin fór |
fram í Sao Paolo og tuttugu og H
sex lönd sendu fulltrúa sina. Dóm-
arar voru bresku fatahönnu&irnir
John Galliano og Joe Casely-
Hayford ósamt Jeanne Beker fró
Fashion 7‘V-sjónvarpsþættinum. Irland
vann keppnina en Filippía lenti í fjór&a sæti
af tuttugu og sex keppendum, sem hlýtur að telja
frábær árangur.
Linda Pétursdóttir og Les Robertson hjá
módelskrifstofunni Wild höfðu veg og vanda af
undirbúningi keppninnar á Islandi og pau fylgdu
Filippíu til Brasilíu. Filippia og Linda voru mynd-
aðar i bak og fyrir af brasinsku pressunni og
myndir af þeim birtust í stærstu dagblöðum
landsins. Les Robertson segir fer&ina hafa J
heppnast framar vonum oa mikil gle&i hafi J
rikt meðal islensku sendinefndarinnar: „Það m
voru stanslaus veisluhöld fram undir morg- Æ
un á öllum helstu búllum og hóruhúsum
Sao Paulo og Rio og svo sakaði ekki ÆsL
að Smirnoff flæddi stanslaust frá Jm
upphafi til enda."
Filippía Elísðóttir.
Á sviðinu með fyrirsætu
sinni þar sem hún tók við
viðurkenningu frá Smirnoff.
Kjóllinn sem tryggöi
Filippíu sigurinn hér
heima.
Filippía stuöbolti í karnivaldansi með óþekktum hollenskum fýr.
LlNDA PÉTURSDÓTTIR OG LES ROBERTSON. Bregða sér í villta stellingu fyrir Ijósmyndarann. Kjól Lindu hannaði Filippía.
Með þeim á myndinni eru Gunnar Júlíusson frá Smirnoff-umboðinu og eiginkona hans, Alda Sigurðardóttir.