Pressan - 06.01.1994, Page 6
6 PRESSAN
i
Fimmtudagurinn 6. janúar 1994
ÓMAR KRISTJÁNSSON. Keypti B6 byggingavörur við litla hrifningu annarra kröfuhafa.
að Ami V. Bemhöft fékk 22.
júní greiddar 217.500 krónur
vegna innstæðulausra launa-
ávísana ffá 1992 að telja.
Hver á húsið í Nethyl?
Eina fasteignin tengd BB
byggingavörum hf. er hluti
húseignarinnar í Nethyl 2.
Leigutekjur hafa mnnið í fyr-
irtækið Velli hf., sem er í eigu
Birgis. Hins vegar var eign-
færður ffamkvæmdakostnað-
ur vegna Nethyls í ársreikn-
ingi BB byggingavara árið
1992 upp á 5,2 milljónir
króna. Að hluta til er þetta
skýrt með skuldajöfnun við
önnur fyrirtæki. Þá eru
greiddar á árinu 1992 vegna
langtímaláns við Velli rúmar
fimm milljónir króna. Þrátt
fyrir það em BB byggingavör-
ur skráðar fyrir langtímaláni
við Velli upp á 6,2 milljónir en
engin gögn finnast um hvern-
ig þessar skuldir hins gjald-
þrota fyrirtækis eru tilkomn-
ar.
Kom með vörur á föstu-
degi sem nýtt fyrirtæki
átti á mánudegi
Nokkurrar reiði gætir með-
al kröfuhafa gagnvart þeim
Birgi og Ómari. Telja þeir að
blekkingum hafi verið beitt til
að halda fyrirtækinu á floti þó
að í raun hafi verið búið að
koma eignum þess undan.
Eru meðal annars heimildir
fyrir því að einn af birgjunum
hafi afhent vörur á föstudegi
gegn greiðslufresti en síðan
frést af því að nýtt fyrirtæki
(eða öllu heldur ný kennitala).
væri eigandi varanna á mánu-
MYNDIRMSmT
daginn og viðkomandi birgir
staðið effir með kröfu í eigna-
laust þrotabú. Liður í þessu
hafi verið að láta Birgi vera
áfram í stjórn verslunarinnar
þó að annar aðili ætti fyrir-
tækið.
Fyrirtækið Þýsk-íslenska er
nú eigandi búðarinnar, sem
hefur keypt þar mikið af vör-
um í gegnum tíðina. Telja
kröfuhafar að þar með hafi
Þýsk-íslenska gengið inn í
þrotabúið til að tryggja sínar
kröfur um leið og aðrir kröfu-
hafar tapi sínu.
Sigurður Már Jónsson
BB BYGGINGAVÖRUR. Kennitölubreytingin vafðist fyrír mörgum viðskiptavinum.
Mikil óánægja ríkir meðal
kröfuhafa í þrotabú BKB hf.,
áður BB byggingavara hf.,
með hvernig eigendur fyrir-
tækisins stóðu að málum fyrir
gjaldþrotið. Hafa kröfuhafar
og skiptaráðandi staðið fýrir
rannsókn á bókhaldi félagsins
vegna rökstudds gruns um
undanskot á eignum og mis-
munun kröfuhafa.
Birgir Bernhöft, aðaleig-
andi BB byggingavara, hefur
um sextán ára skeið rekið
byggingavöruverslun, lengi vel
við Suðurlandsbraut. 26
febrúar árið 1993 kom síðan
fýrirtækið Tunguháls hf. inn í
reksturinn um leið og því var
nafnbreytt í BB byggingavörur
hf. Keypti Tunguháls, sem til
15. maí árið 1992 hafði heitið
Davíð Sigurðsson hf. sem er
kunnara sem FÍAT-umboðið,
rekstur og lager BB bygginga-
vara á 1,5 milljónir króna.
Kennitala BB byggingavara hf.
fékk hins vegar nafnið BKB
hf. og beið ekkert nema gjald-
þrot. Gjaldþrotabeiðni var
lögð fram í lok júní síðasdið-
ins og félagið úrskurðað gjald-
þrota í september. Tunguháls
er í eigu Omars Kristjánsson-
ar hjá Þýsk-íslenska hf. sem
átti í miklum viðskiptum við
BB byggingavörur. A hann 5
milljóna króna kröfu í þrota-
búið.
Samþykktar kröfur í þrota-
bú BKB hf. eru upp á 28 millj-
ónir en eignir litíar sem engar
að sögn Kolbrúnar Sævars-
dóttur skiptaráðanda. Þessum
málalokum vilja kröfuhafar
meðal byggingaheildsala ekki
una og hafa þeir farið ffam á
rannsókn.
Skiptaráðandi hefur látið
tvo endurskoðendur hjá End-
urskoðendum hf. fara yfir
bókhald fýrirtækisins.
HÚSNÆÐIÐ VIÐ NETHYL. Kröfuhafar vilja fá eignina í þrotabúið.
Endurskoðendur töldu
greiöslur ekki skila sér
inn á bankareikninga
I skýrslu endurskoðend-
anna til skiptaráðanda frá 3.
desember síðastliðnum kem-
ur ffam hörð gagnrýni á bók-
hald og viðskilnað fyrri eig-
enda. Þar segir: „Niðurstöður
athugunar okkar eru í aðalat-
riðum þær að bókhaldi er
ábótavant, greiðslur skila sér
ekki á bankareikninga fyrir-
tækisins, lokafærslur endur-
skoðenda fyrir árið 1992
þarfnast frekari skýringa og
tengsl fyrirtækisins við fast-
eignina að Nethyl 2 virðast
óljós.“ Telja endurskoðend-
urnir upp sjö liði sem þurfi að
rannsaka ffekar. Meðal annars
húsaleigusamninga og fýlgi-
skjöl vegna Nethyls, banka-
reikninga og skuldajafnanir í
febrúarlok þegar fýrirtækinu
er nafnbreytt, ársreikninga
Valla hf. fyrir árið 1992 og
langtímalán frá þeim. Sölu-
verð bifreiða, m.t.t. bókfærðs
virðis og markaðsvirðis ef bú-
ið er að endurselja biffeiðimar
og lokafærslur endurskoð-
enda með hliðsjón af álagn-
ingu og birgðalista.
Birgðir færðar niður um
10 milljónír og álagning
viröist hafa verið nei-
kvæð
Við vinnu með þrotabúið
hefur margt komið í ljós. Auk
fýrrgreindra atriða kom í ljós
að húsaleigutekjur vegna Net-
hyls skila sér ekki á banka-
reikninga. Þá em engin gjöld
vegna húsaleigu á Suður-
landsbraut 4 (þar sem versl-
unin var til húsa) færð árið
1992, þótt þessi gjöld séu færð
árin 1991 og 1993.
I lokafærslum endurskoð-
enda vegna ársins 1992, sem
færðar era í lok júní 1993, er
færð inn birgðabreyting sem
lækkar verð birgða um 10
milljónir króna. Við saman-
burð úr bókhaldi ársins 1993
má lesa að álagning hafi verið
neikvæð um rúmlega 6 pró-
sent.
Eigendur keyptu bíla fyr-
irtækisins án þess að
greiöslur finnist
Þá hefur komið í ljós að bif-
reiðir fýrirtækisins vora seldar
eigendum þess fýrir samtals
600 þúsund. Salan er skráð í
bækur fýrirtækisins 29. apríl
1993 en er skráð hafa átt sér
stað 28. febrúar, en þá voru
vörulager og innréttingar
einnig seld. Tilkynning um
eigendaskiptin var hins vegar
dagsett 25. janúar. Greiðsla
fyrir bifreiðirnar er bókuð á
sjóð undir textanum tékka-
reikningur. Ekki sjást þessir
peningar koma inn á banka-
reikning fýrirtækisins. Þann
22. febrúar, eftir að sölutil-
kynningin er dagsett, eru
greidd áhvílandi gjöld vegna
biffeiðanna, rúmlega 180 þús-
und krónur, sem fyrirtækið
fékk vegna endurgreiðslu á
virðisaukaskatti. Einnig má sjá
Birgir Bernhöft;
Fyrirtækið var komið
í þrot og ekkert annað
hægt að gera
„Ég skil ekki alveg þann
fyrirgang sem er á þessu máli
þar sem ég talaði við alla
helstu birgja sem við áttum í
viðskiptum við þegar við
fórum í þessar aðgerðir,“
sagði Birgir Bernhöff, núver-
andi verslunarstjóri og fyrr-
verandi framkvæmdastjóri
og aðaleigandi BB bygginga-
vara hf., aðspurður um ásak-
anir varðandi gjaldþrot fýrir-
tækisins.
Birgir sagði að það væri
fráleitt að tala um að komið
hefði verið aftan að mönn-
um með því að láta nýtt fýr-
irtæki taka við. Bæði hefði
hann talað persónulega við
helstu kröfuhafa auk þess
sem klausur hefðu komið
urn það í blöðum.
„Málið var að BB bygg-
ingavörur voru komnar í
þrot. þetta var gott fýrirtæki
sem starfrækt hafði verið í
sextán ár en hafði orðið að
þola margvísleg áföll vegna
erfiðleika í byggingaiðnaðin-
um. Við töpuðum á gjald-
þrotum annarra og ég veit að
menn geta orðið sárir við
gjaldþrot enda höfum við oft
setið hinunt megin við borð-
ið“
Nú eruð þið suktiðir um ttð
hafa fœrt verðmceti lagers
óeðlilega itiður.
„Það var ekki gert, það eru
bara þeirra oró. Það er hins
vegar alltaf spurning hvemíg
eigi að meta verðmæti lagers.
Söluverðið eitt og sér segir
ekkert.“
Þá er því haltiið fram að
húsnceðiuu við Nethyl hafi
verið skotið undan.
„Það era rangfærslur. Það
eru Vellir hf. sem eiga þetta
húsnæði. Þetta eru tvö að-
skilin fýrirtæki í eigu sömu
aðila. Vitaskuld voru rnarg-
vísleg viðskipti þar á milli.
BB byggingavörur fengu t.d.
veðleyfi fyrir skuldum hjá
Völlum þannig að tengslin
eru sterk, en þetta eru ótví-
rætt óskyld fýrirtæki.“
Nú er rekið mál gagnvart
þrotabúi BB byggittgavara
fyrir Héraðsdómi Reykjavikur
vegna byggingar hússins við
Nethyl, þar sem málshefjandi
heldur því fram að hann haft
byggt fyrir BB byggingavöntr.
„Það er hans mat. Málið er
hins vegar það að viðkom-
andi gerði tilboð í flísalögn
upp á 70 t'ermetra og hljóð-
aði tilboðið upp á 190 þús-
und krónur. Þegar ég bað
um reikning fyrir verkinu
kont í ljós að þetta átti að
vera undir borðið og það gat
ég ekki sætt mig við. Því
cndaði ntálið fýrir dómi og
nú er krafan komin upp í
505 þúsund með lögfræði-
kostnaði. Mér finnst þeta nú
fremur klaufalegt því verkið
var vel unnið og full sátt
hefði því átt að nást, en ég
fékk bara aidrei reikning.“
Finnst þér ekkert siðleysi i
því að láta nýtt fyrirtæki taka
svona við rekstrinum?
„Þetta er auðvitað ekkert
nýtt í stöðunni. Fyrirtækið
var hálfgert flak, en sá sem
keypti hafði áhuga á að halda
rekstri áfram. Því samdist
um að reyna þessa leið.“
Mikil óánægja meðal kröfuhafa vegna gjaldþrots BB byggingavara
Telja að eignum sé skotið
undan og kröfuhöf-
um mismunað
Birgðir færðar niður um 10 milljónir. Bílar fyrirtækisins seidir
eigendum þess rétt fyrir gjaldþrotið og greiðslur finnast ekki.
Ágreiningur um hver á húseign sem fyrirtækið borgaði af.