Pressan - 06.01.1994, Blaðsíða 7

Pressan - 06.01.1994, Blaðsíða 7
Skömmu fyrir jól strauk Garðar Garðarsson úr gæsluvarðhaldi á Helsingjaeyri þar sem hann sat inni fyrir vopnað rán. Hann hélt til Kaupmannahafnar og framdi vopnað bankarán, en var handtekinn fimm mínútum síðar. Hann á að baki langan afbrotaferil og er einn af fáum íslendingum sem alþjóðalögreglan Interpol hefur á skrá. GARÐAR GARÐARSSON. „Garöar er maöur á heimsmælikvaröa — landsliösmaöur eins og viö segjum — og sjálfsagt einn af okkar höröustu þjófum fyrr og síöar, “ segir iögregian. Garðar Garðarsson, ís- lendingurinn sem framdi vopnað bankarán í Kaup- mannahöfn skömmu fyrir áramót, hefur í rúmt ár dvalið í Svíþjóð og Danmörku. Nú í haust var hann handtekinn eftir vopnað rán í verslun í þorpi rétt utan við Helsingja- eyri í Danmörku. Þá hafði hann hótað starfsfólki með öflugri byssu og tekið með sér 3.000 krónur danskar eða um 30 þúsund íslenskar, sam- kvæmt upplýsingum lögregl- unnar á Helsingjaeyri. Garðar var settur í gæsluvarðhald á Helsingjaeyri en strauk þaðan tveimur dögum fyrir jól. í samtali við PRESSUNA vildi lögreglan á Helsingjaeyri ekki tjá sig urn tildrög flóttans. Eftir að Garðar hafði flúið úr gæsluvarðhaldinu hélt hann suður til Kaupmannahafnar og dvaldist þar um jólin. Vopnað bankarán í mið- borg Kaupmannahafnar Daginn íyrir gamlársdag lét Garðar svo til skarar skríða og rændi Danska bankann við Stóru Kóngsinsgötu í miðborg Kaupmannahafnar. Klukkan var 17.03 þegar Garðar kom inn í bankann og var þá aðeins einn viðskiptavinur í bankan- um. Samkvæmt upplýsingum lögreglunnar réðst hann ógn- andi að gjaldkeranum, vopn- aður hálfsjálfvirkri skamm- byssu af hlaupvíddinni 45 kal- íber, og heimtaði peninga. Tæpum fimm mínútum síðar hljóp hann út úr bankanum með 26.300 danskar krónur í poka eða um 265 þúsund krónur íslenskar. Þá pening- aupphæð „átti“ hann aðeins í fimm mínútur, en þá hafði lögreglan handtekið hann. Heppni réð mestu við handtökuna Að sögn lögreglunnar var það var hins vegar helber heppni að hún náði honum svo snemma, því að fyrir til- viljun beið lögreglubíll á rauðu ljósi beint fyrir utan bankann þegar Garðar kom hlaupandi þaðan út. Annar lögreglumaðurinn hljóp á eftir honum en hinn keyrði á eftir. Garðar hljóp eftir Store Kong- ensgade og inn Gothersgade en á Borgergade misstu lög- reglumennirnir sjónar á hon- um. Það var svo vegfarandi sem benti lögreglunni á Garð- ar þar sem hann leyndist bak við gamlan Trabant hinum megin við götuna. Greiðlega gekk að aívopna Garðar, enda var byssan ofan í peningapok- anum þar sem stærstur hluti peninganna var geymdur. Á flóttanum höfðu 500 og 1.000 króna seðlar flögrað upp úr pokanum en heiðvirðir borg- arar skiluðu öflum peningun- um í bankann. í ljós kom að byssa Garðars var hlaðin, eitt skot í hlaupinu og fjögur í magasíninu. Ame Bremholm hjá svæðislögreglu 2 í Kaup- mannahöfn segir að vopn Garðars hafi verið mjög öflugt og miklu öflugra en lögreglan hafi yfir að ráða. Á gamlársdag var bann síðan úrskurðaður í 27 daga gæsluvarðhald og bíð- ur nú dóms fyrir þessi tvö vopnuðu rán, auk flóttans úr fangelsinu. Langur glæpaferill hér heima Þótt Garðar sé einungis 28 ára að aldri á hann langan og „glæsilegan" afbrotaferil að baki. Á síðusta áratug hefur hann hlotið sautján refsi- dóma og verið dæmdur sam- tals til níu ára fangelsisvistar á þeim tíma fyrir þjófnaði, innbrot, skjalafals og um- ferðarlagabrot, en hann hefur misst ökuréttindin ævilangt. Að auki var hann dæmdur til eins árs og tíu mánaða fang- elsis í Nordhorn í Þýskalandi fýrir fíkniefnabrot. Hann hef- ur því samtals verið dæmdur í tólf ára fangelsi á síðasta áratug. Þá eru ótaldir óskil- orðsbundnir dómar til sex ára og tíu dómsáttir, m.a. fyr- ir ýmis fíknieftiabrot og brot á lögum um skotvopn og sprengiefni. Nú síðast var Garðar dæmdur í tveggja og hálfs árs fangelsi í Hæstarétti, aðallega fyrir þátttöku í gull- ráninu svokallaða í skart- gripaverslun Jóns Sigmunds- sonar. Dómurinn var kveð- inn upp í desember 1992, en þá hafði Garðar þegar flutt sig til Skandinavíu þar sem hann hefur dvalið í á annað ár. Stóra gullrániö í skart- gripaverslun Jóns Sig- mundssonar Áðurnefndur hæstaréttar- dómur tók að mestu til stóra gullránsins, en þá voru þeir Garðar, Hörður Karlsson, Ómar örn Grimsson og Sig- urbjörn Gunnar Utley dæmdir. Það var 29. ágúst sem Garðar og Hörður brutust inn í Lögfræðiskrifstofunna sf., rændu tékkum, víni og skjalatösku og reyndu árang- urslaust að opna peningaskáp með kúbeini. Síðar um nótt- ina brutust þeir svo inn í skartgripaverslun Jóns Sig- mundssonar á Laugavegi 5 með kúbeini og stálu þar skartgripum fyrir tvær millj- ónir króna, auk útstillingar- standa, fjórtán gramma af hvítagulli, tuttugu og tveggja gramma af gulli og tölvuvog- ar. Sigurbjörn Gunnar Utley tók við skartgripunum sem Hörður stal og lét síðan Ómar Örn Grímsson fá þá, sem bræddi gullið saman í klump. Eins og í flestum öðr- um málum neitaði Garðar öllum sakargiffum en réttin- um þótti hlutur hans fulls- annaður. „Landsliðsmaður í þjófn- aði á heimsvísu" „Garðar er maður í heims- mælikvarða — landsliðsmað- ur eins og við segjum — og sjálfsagt einn af okkar hörð- ustu þjófum fyrr og síðar,“ sagði einn heimildamanna PRESSUNNAR innan lög- reglunnar. Hann er einn fárra Islendinga sem Interpol hefur sérstaka skrá um. Eins og langur sakaferill Garðars sýnir er hann síbrotamaður og allir sem PRESSAN ræddi við töldu ómögulegt að hafa tölu á innbrotum hans og hefur hann meðal annars far- ið í ferðir út á land til inn- brota. Þá hefur Garðar ferðast töluvert til útlanda og verið tekinn þar nokkrum sinnum. I ágústmánuði 1988 var hann til dæmis handtekinn í Larvik í Noregi ásamt Agnari Víði Bragasyni, grunaður um þjófnaði, innbrot og fíkni- efnamisferli. Þann 27. nóv- ember sama ár var hann svo tekinn í Þýskalandi með 155 grömm af hassi og 1 gramm af kókaíni og dæmdur til nærri tveggja ára fangavistar. Garðar er þekktur fyrir að neita alltaf öllum sakargift- um, jafnvel þótt öll sönnun- argögn og vitni bendi á hann eins og tilfellið var í gullrán- inu, enda er yfirleitt erfitt að dæma menn þegar játning liggur ekki fýrir. Flóttinn í Danmörku ekk- ert einsdæmi Flóttinn úr fangelsinu á Helsingjaeyri er ekki sá fyrsti á ferli Garðars, því hann hef- ur að minnsta kosti í tvígang strokið af Litla-Hrauni, í október 1985 og í apríl 1990. Mennirnir í skartgriparáninu eru einnig þekktir „flótta- menn“. Hörður Karlsson flúði síðast frá Litla-Hrauni í sumar ásamt Hans Erni Við- arssyni og Björgvini Þór Ríkharðssyni. Á svipuðum tíma strauk Sigurbjörn Gunnar Utley en náðist eftir hálfan mánuð. Garðar er mjög hávaxinn, þrekinn og með áberandi stórt nef en mun myndarlegri en meðfýlgjandi mynd gefur til kynna. Þeir sem þekkja til hans segja að þrátt fyrir lang- an afbrotaferil hafi hann að jafnaði verið vel til hafður og ekki nærri því eins „sjúskað- ur“ og margir starfsbræður hans. Þrátt fyrir fjölmörg fíkniefnabrot er hann ekki áberandi á því sviði og virðist mest hafa blandast í hassvið- skipti, þó með undantekn- ingum, eins og dómurinn frá Þýskalandi sýnir. PálmiJónasson Verðlaunatölva frá Eltech á óviðjafnanlegu tilboðsverði Geisladiskar og geisladrif ! / • I samvinnu við Eltech Research í Bandaríkjunum býður Hugver nú á ótrúlegu verði tölvuna sem fékk Best Buy umsögn í tímaritinu PC-World nú í Desember 1993. Þessi vél er hraðvirkarí í Windows en 66 megariða tölvur sem kosta tugþúsundum meira. Lýsing: 66 MHz 486 örgjörvi, 128k cache, 4Mb RAM, reiknihraðall, Local Bus 1 Mb skjcikort með Cirrus hraðli, Local Bus diskstýring, 250 Mb WD 12ms harður diskur, tumkassi, MS samhœfð mús, 102 lykla lyklaborð, 14" lággeislaf MPRII) skjcír frá TVM: 144.860,- <V' Uppfœrsla á eldri vélurn. Við erum með móðurborð á frábæru verði, m.a. úr 486/66 verðlaunavélinni á kr 38 þús. ! Allir íhlutir og ísetning. Föst tilboð. Kannaðu málið 1 Hugver Laugavegi 168 s. 91-620707

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.