Pressan - 20.01.1994, Page 6
Prófkjör sjálfstæðismanna í Hafnarfirði
Vepðup Jóhann fórnarlamb
kosnjngamaskínu
Mallriesen veldisins ?
„Fyrirhugaður prófkjörsslagur sjálfstæðis-
manna í Hafnarfirði stefnir í að verða bæði
harðvítugur og spennandi. Umdeildur leiðtogi
flokksins þarf að berjast við tvo vonbiðla auk
þess sem siðbótarmenn sækja leynt og ljóst að
honum. Til að skemmta þátttakendum berst
kunnur tónlistarmaður með óvenjulegum vopn-
um á meðan einn er í framboði til að sanna að
hann sé ekki krati.“
Utlit er fyrir mjög tvísýna og
spennandi prófkjörsbaráttu
meðal sjálfstæðismanna í
Hafnarfirði fyrir komandi sveitar-
stjórnarkosningar. Má í raun segja
að fullkomin óvissa ríki um niður-
stöðuna, sem einkennist af gífur-
lega harðri baráttu um efsta sætið.
Prír menn sækjast eftir því að
leiða flokkinn í komandi kosn-
ingaslag og sækja þeir styrk í ólíkar
áttir. Forystumaður sjálfstæðis-
manna til skamms tíma hefur verið
Jóhann G. Bergþórsson, hin
landsþekkti forstjóri Hagvirkis og
síðar Fórnarlambsins. Það hefur
vakið athygli að Jóhann hefur ekki
beitt sér af fullum krafti í barátt-
unni og til dæmis ekki enn opnað
opinbera kosningaskrifstofu. Jó-
hann er margslunginn maður sem
hefur verið mjög umdeildur innan
sem utan raða sjálfstæðismanna.
Hin miklu fjármálaumsvif hans og
tengsl fyrirtækja hans við fjárhag
sveitarfélagsins hafa verið umdeild
og er nú svo komið að til dæmis
einn kandídatinn í prófkjörinu,
Ágúst Sindri Karlsson, ungur lög-
fræðingur og margfaldur skák-
meistari Hafnarfjarðar, hefúr pólit-
íska siðbót á stefnuskrá sinni, sem
menn telja nánast beint að Jó-
hanni. Jóhann er hins vegar ótrú-
lega þolgóður í hverskyns baráttu,
eins og hann hefúr sýnt í helstríði
fyrirtækis síns. Hann á fýlgi fyrir
utan raðir hins harða flokkskjarna
sjálfstæðismanna, sem nýtist hon-
urn án efa í prófkjörinu. í>á hafa
menn beðið eftir óvæntu útspili
hans í baráttunni, en Jóhann fékk
mjög afgerandi kosningu í fýrsta
sæti í prófkjöri haustið 1989. Þrátt
fýrir að fallið hafi á þá mynd Jó-
hanns af athafnamanni, sem sjálf-
„Hann hefur
kannski ekki
hámarksvin-
sœldir en hefur
örugglega lág-
marksóvin-
sœldir. “
stæðismenn vilja svo gjarnan
hampa, nýtur hann þess án efa að
vera sjálfstæður atvinnurekandi í
baráttu við hóp launþega.
Ættarveldi Mathiesenanna
Þorgils Óttar Mathiesen við-
skiptafræðingur hefúr glímt fast
við Jóhann í langan tíma og meðal
annars gagnrýnt hann fýrir allt of
náið samstarf við krata á kjörtíma-
bilinu. Samstarf Jóhanns við krata,
JÓHANN G. BERGÞÓRSSON.
Hart sótt að forystusæti hans.
ELLERT BORGAR ÞORVALDS-
SON. Fer friðsömu leiðina og
stefnir á annað sæti.
og þá sérstaldega Guðmund Árna
Stefánsson, hefúr verið viðkvæmt
mál í báðum floJckum.
í raun hefur verið kalt stríð milli
Þorgils og Jóhanns og nú ætlar
Þorgils að láta sverfa til stáls. Kosn-
ingamaskína þeirra Mathiesenanna
nýtur mildllar virðingar, en síðasta
afrek hennar var að skjóta bróður
Óttars, Áma Mathiesen dýralækni,
í þriðja sæti á lista sjálfstæðis-
manna fýrir síðustu alþingiskosn-
ingar á Reykjanesi. Þá var Ámi til-
tölulega óþekktur, en naut að sjálf-
sögðu virðingar föður síns, Matt-
Júasar Á. Mathiesen, fýrrverandi
ráðherra. Þeir Mathiesenar eru
búnir að vinna hart f prófkjörsbar-
áttunni, en spurning er hins vegar
hvernig Þorgils Óttar kemur per-
sónulega út úr þessu. Hann þykir
rökfastur og ágætlega inni í mál-
um, auk þess sem hann nýtur mik-
illar virðingar sem fýrrverandi
íþróttahetja. Á móti honum vinnur
að hann þykir dálítið þurr á mann-
inn og ekld hafa sömu persónu-
töfra og faðir hans og bróðir. Þá
má geta þess að þeir Mathiesenar
stefna að því að koma öðrum úr
ættinni inn á listann, þvi systur-
dóttir Matthíasar, Valgerður Sig-
urðardóttir fiskverkandi, stefnir á
þriðja sæti og er talin eiga ágæta
möguleika.
„Með lágmarksóvinsældir“
Þriðji kandídatinn um forystu-
MAGNÚS KJARTANSSON. Rekur
skemmtilega og hugmyndaríka
kosningabaráttu.
ÁGÚST SINDRI KARLSSON, lög-
fræðingur og skákmeistari.
Með pólitíska siðbót á stefnu-
skrá.
sætið er Magnús Gunnarsson að-
albókari, nú fýrsti varamaður sjálf-
stæðismanna, en hann hafhaði í
fimmta sæti síðast. Magnús þyldr
hafa komið sterkur inn í þessa bar-
áttu; mildll félagsmálafrömuður og
þar að auld Haukamaður í baráttu
við tvo FH-inga! Iþróttapólitík í
Hafnarfirði er mjög sterk og því
skipta þessir Hutir miklu máli.
Þá vinnur með Magnúsi að hann
hefur ekki verið beinn þátttakandi í
baráttu hinna tveggja. Með öðrum
orðum: Fáum er illa við hann og
hann gæti notið þess að verða
ÞORGILS ÓTTAR MATHIESEN
Hélt uppi andófi við krata á
tímabilinu og ætlar að taka
fyrsta sætið af Jóhanni.
VALGERÐUR SIGURÐARDÓTTIR.
Mathiesenarnir stefna að því
að koma tveimur á listann.
málamiðlun. Eða eins og sjálfstæð-
ismaður orðaði það: „Hann hefúr
kannski eldd hámarksvinsældir en
hefur örugglega lágmarksóvinsæld-
ir,“ þveröfúgt við t.d. Jóhann.
Magnús rekur þar að auki öfluga
baráttu og áður en Jóhann spilar út
trompunum er talið að þeir Magn-
ús og Þorgils hafi svipaða mögu-
leika, feti ffarnar en Jóhann.
En hvaða áhrif hafa þessi vig um
fýrsta sætið á aðra baráttu á listan-
um? Það kom t.d. ffarn hjá Ellert
Borgari Þorvaldssyni skólastjóra
að hann telur að í því felist „flokks-
MAGNÚS GUNNARSSON.
Haukamaður í baráttu við tvo
FH-inga.
ÞÓRÐUR RAFN STEFÁNSSON.
Tilkynnti á framboðsfundi á
laugardaginn að hann væri í
framboði til að sanna að hann
væri ekki krati.
leg áhætta“ ef of hart sé deilt um
fýrsta sæti. Hann sagðist eldd vilja
skýra þetta nánar, en því er ekld að
leyna að sumir óttast sérframboð í
ffamhaldi af harðri baráttu. Sér-
staklega er það talið mögulegt ef
Jóhann verður undir, en hann nýt-
ur töluverðs fýlgis utan við raðir
sjálfstæðismanna og þar að auki er
hann maður óvæntra uppákoma.
Hefur hugsanlegt framboð
Kvennalistans áhrif?
Ellert Borgar fékk mjög afger-
andi kosningu í annað sæti síðast,
effir baráttu við Jóhann um fýrsta
sætið, og stefnir aftur á það sæti.
Auðvitað má búast við að topp-
mennirnir ryðji ffá sér niður eftir
listanum, en Ellert nýtur þess að
sitja á friðarstóli. Ellert er vinsæll
maður og hefur staðið með Jó-
hanni í þeirri gerningahríð sem yfir
Hagvirldsforstjórann hefúr dunið
og hefur þar að auld starfað lengi
og mikið í flokknum.
Staða kvenna á listanum er óljós.
I átta efstu sætum síðast voru fjórar
konur, en þær röðuðu sér á neðri
sæti listans og þrjár af þeim eru
ekld með núna. Þar sem hugsan-
legt er talið að Kvennalistinn stilli
upp lista núna í Hafúarfirði þykir
mörgun ljóst að veita verði konu
gott brautargengi. Er þar einkum
horft til þeirra Valgerðar, Ragn-
heiðar Kristjánsdóttur kennara og
Helgu R. Stefánsdóttm- húsmóð-
ur, en sú síðasttalda er dóttir Stef-
áns Jónssonar, sem setið hefúr í
sveitarstjórn lengur en nokkur
annar að þvi er ffóðir menn telja,
en Stefán var lengi vel forseti bæj-
arstjórnar.
Tónlistarmaðurinn ætlar að
halda rokktónleika fyrir
prófkjörið
Aðrir sem gætu átt eftir að gera
óvænta hluti eru meðal annars
Ami Sverrisson framkvæmda-
stjóri, sem stefnir á þriðja sæti, og
Kristinn Arnar Jóhannesson, sem
einnig stefnir á þriðja sæti. Gunnar
Beinteinsson, viðskiptaffæðingur
og handknattleiksmaður, stefnir á
sjötta sæti og þykir efnilegur sem
„fúlltrúi unga fólksins“. Á sama
hátt má nefúa Björk Pétursdóttur
húsmóður.
Þá hefur Magnús Kjartansson
tónlistarmaður átt skemmtilega
innkomu í baráttuna og sýnt ffum-
lega takta í því sambandi. Auk þess
hefur hann náð að kynna sig vel í
fjölmiðlum (bæði þætti Eiríks
Jónssonar og Dagsljósi). Þá hefur
hann boðað mikla roldctónleika í
Hafúarfirði föstudaginn fýrir próf-
kjörshelgina. Þess má geta að ætt-
bogi hans er ekki reynslulaus af
störfum fýrir Sjálfstæðisflokkinn,
því bróðir hans, Viktor B. Kjart-
ansson, er varaþingmaður sjálf-
stæðismanna á Suðurnesjum.
Þá má geta skemmtilegrar hliðar
á ffamboði Þórðar Rafns Stefáns-
sonar bankafulltrúa, sem stefúir á
sjöunda til áttunda sæti. Hann hef-
ur nefnilega sagt á framboðsfúndi
að ein ástæða þess að hann sé í
prófkjörsslag nú sé sú að hann vilji
sanna í eitt skipti fýrir öll að hann
en því er
ekki að leyna
að sumir óttast
sérframboð í
framhaldi af
harðri bar-
áttu. “
sé ekki krati, en hann er af krata-
ættum. Menn hafa farið af stað
með verra veganesti í prófkjör
sjálfstæðismanna, en þetta sýnir vel
baráttuna á milli þessara flokka í
sveitarstjórnarkosningum þó að
þeir starfi saman í rílusstjórn. Má í
því sambandi velta fýrir sér hvaða
áhrif breyting á völdum krata í
Hafúarfirði hefði á stöðu ríkis-
stjómar.
Sigurður Már Jónsson
„Hann þykir rökfastur og ágœt-
lega inni í málum, auk þess sem
hann nýtur mikillar virðingar
sem fyrrverandi íþróttahetja. Á
móti honum vinnur að hann þyk-
ir dálítið þurr á manninn og ekki
hafa sömu persónutöfra ogfaðir
hans og bróðir. “
6 PRESSAN FIMMTUDAGURINN 20. JANÚAR 1994