Pressan - 20.01.1994, Síða 14

Pressan - 20.01.1994, Síða 14
Útgefandi Pressan hf. Ritstjóri Karl Th. Birgisson RitstjórnarfuUtrúar Guðrún Kristjánsdóttir Sigurður Már Jónsson Framleiðslustjóri Bragi Halldórsson Markaðsstjóri Sigurður I. Ómarsson Ritstjórn, skrifstofúr og auglýsingar: Nybýlavegi 14-16, sími 643080. Símbréf: Ritstjórn 643089, skrifstofa 643190, auglýsingar 643076 Eftir lokun skiptiborðs: Ritstjórn 643085, dreifíng 643086, tækni- deild 643087. Áskriftargjald 860 kr. á mánuði ef greitt er með VISA/EURO, en 920 kr. á mánuði annars. Verð í lausasölu 280 krónur. BLAÐAMENN: Jakob Bjarnar Grétarsson, Jim Smart Ijósmyndari, Kristján Þór Árnason myndvinnslumaður, Páll H. Hannesson, Pálmi Jónasson, Sigríður H. Gunnarsdóttir prófarkalesari, Steingrímur Ey- fjörð útlitshönnuður. PENNAR: Stjórnmál: Árni Páll Árnason, Árni M. Mathiesen, Baldur Kristjánsson, Einar Karl Haraldsson, Finnur Ingólfsson, Gunnar Jó- hann Birgisson, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, Mörður Árnason, Ólafur Hannibalsson, Óli Björn Kárason, Þórunn Sveinbjarnardóttir, össur Skarphéðinsson. Menning og mannlíf: Davíð Þór Jónsson, Einar Kárason, Friðrika Benónýs, leikhús, Gunnar J. Árnason, myndlist, Gunnar L. Hjálmars- son, popp, Hallur Helgason, kvikmyndir, Illugi Jökulsson, skák, Indriði G. Þorsteinsson, Jónas Sen, klasstk og dulrœn málefni, Kolbrún Berg- þórsdóttir, bókmenntir, Kristinn Jón Guðmundsson, Magnús Ólafs- son, Margrét Elísabet Ólafsdóttir. Auglýsingar: Halldór Bachmann, Kristín Ingvadóttir, Pétur Ormslev. Réttarkerfið sefur enn Enn fáum við að sjá dæmi þess að réttarkerfið á íslandi lætur sér annara um hagsmuni þeirra sem brotið hafa lög, jafnvel gróflega og ítrekað, heldur en hinna, sem verða saklausir fyrir barðinu á brotamönnum og hljóta af varanlegan persónuleg- an og fjárhagslegan skaða. Kveikja umræðunnar nú er harmsaga konu, sem sögð var í við- talsþætti Eiríks Jónssonar í vikunni. Dóttir konunnar var myrt á hrottafenginn hátt, en eftir að lögreglan tók málið í sínar hendur var eins og henni kæmi dauði dóttur sinnar ekkert við. Hún fékk litlar sem engar upplýsingar um rannsókn málsins og öll við- '"T5rögð kerfisins voru á þá lund að litið var á fjölskyldu fórnar- lambsins sem hvimleiða og hnýsna, ekki sem fólk sem átti tilfinn- ingalega mikið undir því komið að fá sem gleggstar upplýsingar um dauða náins skyldmennis. Kerfið lét sig engu varða sálarheill eða framtíð ungs sonar stúlkunnar, sem myrt var, en vinnur þó á degi hverjum að nýjum aðferðum til að koma til móts við þá sem glæpina fremja. Þetta er orwellskur öfugsnúningur, ómannúðlegt og siðferðislega óverjandi. í viðtali við PRESSUNA í dag viðurkennir ráðuneytisstjóri í dómsmálaráðuneytinu undanbragðalaustað rétturfórnarlamba og aðstandenda þeirra í slíkum málum sé enginn. Fram kemur einnig að fórnarlömb og aðstandendur þeirra hafa afar takmark- aðan rétttil upplýsinga um meðferð eigin mála. Þau eiga rétt á ^að vita hvað orðið hefur um kæru og hvernig máli hefur lokið, en ekki rétt á að vera viðstödd réttarhöld ef þau fara fram. í tilfellinu, sem nefnt var hér að ofan, fékk fjölskyldan ekki upplýsingar um hvernig stúlkan var myrt. PRESSANhefur áður rakið dæmi þess hversu varnarlausir brotaþolar eru gagnvart misgjörðarmönnum sínum. Þeim dugar til dæmis skammt að fá sér dæmdar bætur ef misindismaðurinn er ekki borgunarmaður fyrir þeim. Eftir umfjöllun PRESSUNNAR um slík mál fyrir réttu ári var farið að huga að rétti fórnarlamba nauðgana í slíkum tilfellum, með það fyrir augum að ríkið ábyrgð- istgreiðslu bóta þegarglæpamaðurinn reyndisteignalaus — sem oft er líklega tilfellið. Það var stórt spor í framfaraátt, en aðr- ir glæpir og sumir verri eru framdir á íslandi ári þess að nokkur innan kerfisins leiði hugann að hagsmunum þeirra sem fyrir þeim verða. Ráðuneytisstjórinn viðurkennir einnig að íslendingar séu á eftir ~~ óðrum Norðurlandaþjóðum í þessum efnum og enn sé megin- áherzla lögð á það hér á landi að þjónusta glæpamanninn þegar búið er að dæma hann. Hann á heiður skilinn fyrir hreinskilnina og ætti að koma þessum sjónarmiðum sínum á framfæri við ráð- herra sinn við fyrsta tækifæri. Kannske myndi kerfið þá rumska, þó ekki væri nema um stundarsakir á meðan einhver nennir að nöldra í því, og kannske eygðu fórnarlömb glæpa og aðstand- endur þeirra þá von um að samfélagið sýndi þeim einhvern ámóta skilning og það sýnir mönnum sem uppvísir verða að ítrekuðum og hrottafengnum glæpum. Fjölmiðlar og lýðrœði Stjórnmál IIXIGIBJORG S. GÍSLADÓTTIR Tengsl fjölmiðla og stjórnmála hafa oft vafist fyrir mér. Mér er mjög vel ljóst að fjölmiðl- ar gegna mikilvægu Mutverlci fyrir lýðræðið í landinu. Þeir miðla gagnlegum upplýsingum til al- mennings sem oft og tíðum eru forsenda þess að fólk geti tekið af- stöðu til manna og málefna. Þeir veita stjómvöldum og ráðamönn- um á hverjum tíma mildlvægt að- hald með því, eftir atvikum, að gegnumlýsa aðgerðir þeirra eða að- gerðaleysi. Þess eru mörg dæmi, bæði innlend og erlend, að fjöl- miðlum hafi tekist vel upp í þessu hlutverki sínu og að hlutdeild þeirra hafi valdið straumhvörfum. Á þetta ekki síst við þegar mál vega salt á mörkum hins löglega og sið- lega. Oft finnst rhér samt fjölmiðlar skáka í þessu skjóli og komast upp með málflutning og vinnubrögð sem eiga ekkert skylt við lýðræði eða upplýsingamiðlun. Þannig virðist fréttum frá Alþingi ffernur ætíað að hafa skemmtigildi en upp- lýsingagildi. Hljóðnema er daglega stungið upp í einhvem ráðherrann og hann látinn tala milliliðalaust við þjóðina — sem með góðum vilja mætti kannslci túlka sem beint lýðræði — en það er enginn til að rétta af þá skelcktu mynd sem ráð- herrann lcann að gefa af málinu — til að lagfæra lýðræðishallann. Upplýsingum er dembt yfir fólk í slíku magni að helst líkist stór- markaði. Þetta daglega ofílæði veldur því að æ fleiri gefast upp á því að velja og hafha, láta allt yfir sig ganga en eru þó litlu nær um það sem á gengur í veröldinni. Og off og tíðum vill lýðræðishugsjónin rjúka út í veður og vind þegar „heitar“ fféttir eru annars vegar. í stjórnmálum ráða fjölmiðlarnir lögum og lofum. Stjómmálamenn hreyfa ekld litla fingur án þess að huga að því hvernig það komi út í fjölmiðlum, hvemig þeir bregðist við, hvaða mynd þeir miðli til þjóðarinnar. 'f otði lcveðnu eru ör- lög stjómmálaflokka og -manna í höndum kjósenda. Þegar öllu er á botninn hvolft em það þó fjölmiðl- ar sem marka skilin milli feigs og ófeigs. Stjómmálamaður getur unnið persónulegan og pólitískan sigur á ákveðnum vettvangi en ef hann tapar fjölmiðlastríði þá koma þeir sigrar fyrir lítið. Floldcar geta haff skýrar og ákveðnar vinnuregl- ur en ef þær þvælast fyrir fjölmiðl- ungum þá er líldegra en ekld að þeim verði breytt. Hópur fólks í stjórnmálum getur sett ákveðna at- burðarás af stað en frá þeirri stundu sem fjölmiðlar komast með puttana í hana heldur hún áffam á þeirra forsendum og á þeirra hraða — nema spymt sé við fótum. Stundum notfæra stjómmála- menn sér fjölmiðla til að koma ákveðnum skilaboðum á ffamfæri með óbeinum hætti. Þannig kallaði Davíð á Halldór Ásgrímsson til skrafs og ráðagerða um sjómanna- deiluna til að koma þeim skilaboð- um á framfæri við krataráðherrana að Sjálfstæðisflokkurinn ætti ým- issa kosta völ í stjómmálum. Álltaf mætti fá annað skip og annað föm- neyti. Ef þetta hefði verið annað og meira en sjónarspil hefði hann ef- laust boðið Halldóri heim til sín en ekki upp í stjórnarráð, og reynt að forðast að beina kastíjósi fjölmiðl- anna að fúndinum. Þegar alvarlegar viðræður em í gangi milli stjómmálaflokka reyna þeir að komast framhjá eða villa um fyrir fjölmiðlum. Þannig reyndu minnihlutaflokkarnir í Borgarstjóm Reykjavíkur að halda fjölmiðlum utan við þær viðræður, sem fóm fram nú um áramótin, um kosningabandalag í komandi borgarstjórnarkosningum. Það reyndist þó ekki gerlegt og áður en við varð litið höfðu fjölmiðlar til- kynnt að kosningabandalagið væri komið á koppinn, hver yrðu helstu málefni þess og hvaða fólk myndi skipa listann. Þetta var áður en málið hafði fengið efhislega um- fjöllun í viðkomandi stjómmála- flokkum og samtökum. Áður en nokkur lýðræðisleg ákvörðun hafði verið tekin um málið höfðu fjöl- miðlar ákveðið niðurstöðuna. Hvað var orðið um frjálst val þess fólks sem hefúr hið formlega ákvörðunarvald í málinu? Hverra kosta átti það völ í þeirri stöðu sem fjölmiðlar höfðu skapað? Hvemig hefðu málin horft við almenningi ef atburðarásin hefði ekki farið ffarn samkvæmt forskrift fjölmiðl- anna? Sjálf varð ég borgarstjórakandíd- at kosningabandalagsins í kvöld- fféttum RÚV þann 10. janúar sl. Samt hef ég ítrekað sagt að fram- boð mitt ráðist ekki fyrr en mál- efhasamningur og ffamboðslisti liggi fyrir. Það gefur augaleið að sú vinna tekur tíma enda þarf að vanda til hennar og gefa sem flest- um kost á að koma að henni. Þetta á ekki að vera ffamboð örfárra ein- staklinga heldur stórs hóps fólks sem hefúr þekkingu og skoðun á borgarmálum. Þegar breið sam- staða og samkennd hefúr myndast um málefhin og listann em kosn- ingabandalaginu allir vegir færir. Fyrr ekki og á meðan hlýtur fólk að láta kröfú fjölmiðla um atburðarás sem fer ffam úr sjálfri sér sem vind um eyru þjóta. Ef ffam heldur sem horfir verður kosningabandalag Alþýðubanda- lags, Alþýðuflokks, Framsóknar- flokks og Kvennalista að vemleika í komandi borgarstjómarkosning- um. Umfjöllun fjölmiðla um máhð hingað til má því einu gilda — hún er öðm fremur ffóðleg dæmisaga um fjölmiðla og lýðræði. Það verð- ur mun ffóðlegra að fylgjast með umfjöllun þeirra í aðdraganda kosninganna. Sjónir manna hljóta sérstaklega að beinast að Morgun- blaðinu sem á undanfömum miss- erum hefur reynt að þvo af sér flokksstimpil Sjálfstæðisflokksins. Nú reynir á hvort þetta ffjálslynda og lýðræðissinnaða blað slær skjaldborg um Flokkinn á ögur- stund í lífi hans eða lætur hann sitja við sama borð og kosninga- bandalagið í ffétta- og stjórnmála- skrifum sínum. Vorið verður próf- steinn á Morgunblaðið sem blað allra landsmanna. Höfundur er alþingiskona. „Efþetta hefði verið annað og meira en sjónarspil hefði Davíð ef- laust boðið Halldóri heim til sín en ekki upp í stjórnarráð. “ Örlög Markúsar Arnar að er varla vært hér í þing- húsinu, lesendur góðir, effir- að kom í ljós að Markús Örn verður ekki borgarstjóri nema fá- eina mánuði til viðbótar. Það ríkir ekki sorg, heldur gleði. Ofsagleði. Ég veit ekki hvað fólk hefur á móti þessum ágætispilti. Það er varla dauðasök að vera svo karakterlaus að maður varpi ekki einusinni af sér skugga í sól. Það hlýtur að gilda um fleiri, þótt ég, aldurhniginn sem ég er, muni ekki eftir neinum öðmm í svipinn. En hérna þeysist fólkið um í ölv- uðum gleðidansi. Ég hef staðið gamla marxistann að því að ská- skjóta augunum uppí gluggann á borgarstjóraskrifstofunni með fjar- rænt blik í auga og einhverskonar kuldalegan valdsmannssvip sem fylgir þessum gömlu kommúnist- um ffam á grafarbakkann. Höllu- staðabóndinn ræður sér ekki fyrir kæti. Hann fyllist einhverri sælu- vímu við tilhugsunina um að nú fái hann að ráðskast svolítið með okk- ur sunnanlýðinn, jafhvel þótt það sé bara yfir eldhúsborðið heima hjá sér. Davíð hefur ekki tekið niður brosið síðan á mánudaginn þegar hann fékk loksins staðfestingu á því hvað hann var alltaf ómissandi í borgarstjórninni. En þetta er ekki svona auðvelt fyrir aÚa. Eymingja kratarnir fá eitt pláss í vinstri pottinum að bítast um og það veit sá sem allt veit að enginn kann að niða skóinn af ná- unganum einsog jafnaðarmenn, þegar á þarf að halda. Það setti að mér ónot þegar ég sá að þær voru sestar að plotti enn einu sinni, Lára V. og hún Jóhanna mín. Ekki eru þær svipblíðar hversdags, en þarna horfðu þær svo illilega á meðlætið að það vast ofanaf kleinunum, sem hún Jensína okkar færði þeim. „Við verðum að finna konu,“ sagði Jóhanna. „Þessir kallpungar skulu ekki komast upp með að svínbeygja okkur lengur." „Það er svo mikið af konum á listanum, Jóhanna,“ svaraði lög- ffæðingurinn og brosti sínu sæt- asta. „Svo verðum við bara að við- urkenna, held ég, að það eru ekki svo margar konur í þessum flokki. Það er voða fátt fólk í honum yfir- leitt, ef útí það er farið.“ „Hvað er þá til ráða?“ sagði Jó- hanna og mér fannst einsog ég hefði heyrt hana segja þetta og ekk- ert annað síðustu tuttugu ár. „Við verðum að standa vörð um okkar mál,“ sagði Lára. „Það er hægt með ýmsu móti. Hvað með hann Braga? Hann hefúr staðið sig svo vel í félagsmálunum að hann er næstumþví kona.“ Það hýrnaði næstumþví yfir Jó- hönnu. „Þú segir nokkuð.“ Hugs- aði sig um. „Já, og veistu hvað? Ef Bragi fer í borgarstjórn og stendur sig vel, einsog kona, þá getur bara vel verið að hann geti farið í Össur fyrir þingkosningarnar. Ef þú bara vissir hvað hann Össur er að plotta, Lára. Hann og Sighvatur. Eg veit „Hvað með hann Braga? Hann hefur staðið sig svo vel ífélagsmálunum að hann er nœstumþví kona. “ — ég bara veit — að þeir ætía að reyna að losna við mig á flokks- þinginu í haust. Og Jón Baldvin líka. Hugsaðu þér skepnurnar. Veistu hvað ég heyrði um dag- inn?...“ Ég er ekki viðkvæmur maður, lesendur góðir, en ég er hættur að geta hlustað á þetta Brútusartal yfir kaffinu án þess að fá óþægindi í magann. Ég flýtti mér svo á leiðinni út að ég gleymdi að rétta stúlkun- um matarmiðann minn. „Hvert ert þú að fara?“ sagði Jensína á bak við mig og sletti til fagurrauðu hárinu. „Geturðu ekki skrifað þetta hjá mér núna?“ kveinaði ég. „Ég er á hraðferð." „Þú ert alveg einsog Jón Bald- vin,“ sagði hún og hnussaði. Ég greip um magann, kúgaðist og greikkaði sporið enn meira. Hvað fólk getur verið tillitslaust. Það varð mér til bjargar að ég hljóp í flasið á marxistanum. Ég segi það satt, hún var að reyna að setja á sig borgarstjóragreiðslu í speglinum. Hlæjandi. 14 PRESSAN FIMMTUDAGURINN 20. JANÚAR 1994

x

Pressan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.