Pressan - 20.01.1994, Síða 20
Það á ekki af flokksfor-
manni Framsóknar-
flokksins, Steingrími
Hermannssyni, að ganga.
Eins og flestir vita er hann
mikill áhugamaður um
smíðar og notar frítíma
sinn gjarnan til að stunda
þá iðju. Smíðaáhugi Stein-
gríms komst heldur betur
inn í vitund landsmanna
fyrir tæpum áratug þegar
hann varð fyrir því óláni
að sneiða bút frarnan af
fingri sér. Þá sat hann í for-
sætisráðuneytinu og var
því eðlilega nærri daglegur
fféttamatur fjölmiðla. Allt
frá því þessi slysalegi at-
burður varð hefúr atviks-
ins óspart verið minnst af
húmoristum þjóðarinnar.
Á gamlársdag fór svo ekki
ffamhjá neinum þegar
Steingrímur staulaðist á
hækjum inn á Hótel Borg
til að taka þátt í árlegum
umræðuþætti Stöðvar 2.
Það var þó ekki vegna
smíðaslyss heldur skýrði
hann svo ffá sjálfur að
ástand hans væri svo vegna
uppskurðar á fæti sem
hann þurfti að gangast
undir nokkrum dögum
áður. f síðustu viku veittu
menn því svo athygli að
önnur hönd Steingríms
var vafin inn í þéttar og
miklar umbúðir. Glöggir
fréttamenn vildu auðvitað
fá að vita eitthvað um mál-
ið en Steingrímur hörfaði
undan og hefúr ekkert vilj-
að urn málið segja, enda
sjálfsagt ekki búinn að
gleyma fárinu sem varð
þegar hann missti framan
af puttanum. En þannig
liggur í þessu að aðeins
nokkrum dögum eftir að-
gerðina á fætinum varð
Steingrímur fyrir öðru
óhappi og það við smíðar.
Slysið varð þegar hann var
að gera upp forláta komm-
óðu, sem ku vera ættar-
gripur. í miðjum klíðum
skar hann sig í vinstri lóf-
ann með þeim afleiðingum
að höndin varð ónothæf
og það sem verra var;
Steingrímur þurffi enn á
hækjunum að halda þegar
slysið varð. Því miður gat
Steingrímur þó engan veg-
inn notað hækjurnar með
slasaða hönd. Því var að-
eins einn vegur fær fyrir
fyrrverandi forsætisráð-
herrann; að fá sér hjólastól.
Hjólastjólinn þurfti hann
þó aðeins að nota í fáeina
daga. Nú er hann laus við
hækjurnar, en sárið í lóf-
anum mun hins vegar ekki
gróið enn...
sP<3r.
0 ér
‘teíni v
Vj*tna
kjá
seði
90.
10.
07
02.
02.
94
9S
n:'ers
lifpS
s^ocjs
Þab er alclrei of seint ab byrja
Reglulegur sparnaöur með áskrift aö spariskírteinum
ríkissjóös er oft þaö eina sem eftir er af mánaðarkaupinu.
Fyrir um fimm árum tóku Þór og Björg þá ákvörðun að
skynsamlegt væri aö leggja fyrir ákveðna upphæð í
hverjum mánuði í sparnað. Þau hafa síban lagt fyrir
um 5.000 krónur hvort mánabarlega í áskrift ab
spariskírteinum ríkissjóbs og nú er þessi
sparnabur orbinn 818.878 kr.*
Þór og Björg hafa því ríka ástæðu til að gleðjast og vilja
nota tækifærið og benda öðrum á hversu þægileg
tilfinning það er að vera áskrifandi að spariskírteinum
ríkissjóðs. Komdu í hópinn meb Þór og Björgu og
þúsundum annarra áskrifenda.
HRINGDU NÚNA OG PANTAÐU ÁSKRIFT!
Síininn er 62 60 40, grænt númer, 99 66 99.
Ef þú gerist áskrifandi núna
færðu senda áskriftarmöppu sem
inniheldur m.a. eyðublöð fyrir
greiðsluáætlun og
heimilisbókhald 1994. Mappan
hjálpar þér að fylgjast með
öllum útgjöldum og þér gengur
betur að skipuleggja fjármálin.
ÞJONUSTUMIÐSTOÐ
RÍKISVERÐBRÉFA
Hverfisgata 6, 2. hæð,
sími 91-62 60 40
RIKISSJOÐUR ISIANDS
•Hjónin Þór og Björg geröust áskrifendur ab spariskírteinum ríkissjóös áriö 1989 og hafa síöan keypt spariskírteini mánaöarlega fyrir um 5.000 kr. hvort. Þessi mánaöarlegi spamaöur, ásamt áföllnum vöxtum og veröbótum miöaö viö 1. janúar 1994, gerir 818.878 kr.
PRESSAN FIMMTUDAGURINN 20. JANÚAR 1994
GOTT FÓLK/SlA