Pressan - 20.01.1994, Side 40
Þó að allt virðist frekar
dauft á yfirborðinu í
hljómsveitabransan-
um kraumar ýmislegt undir
niðri. Todmobile er horfin
en Stjómin ekki alveg, þrátt
fyrir margítrekaðar yfirlýs-
ingar þess efnis. PRESSAN
hefur þó fengið stáðfestingu
á því að hún ætli endanlega
að segja af sér í Sjallanum á
Akureyri um helgina. En
Grétar Örvarsson er ekki af
baki dottinn, því hann er
búinn að mynda nýja stjórn
með nýju föruneyti og þeg-
ar er farið að æfa á fullu: Jó-
hann Ásmundsson á bassa,
Jóhann Hjörleifsson á gít-
ar, Gunnar Þór, einnig á
gítar. Líklegast verður þó
kvenmaðurinn í hljóm-
sveitinni skrautfjöður hans;
engin önnur en barna-
stjarnan Rut Reginalds,
sem er alltaf að færast í auk-
ana á söngsviðinu. Hljóm-
sveitin kemur í fýrsta sinn
ffam 11. febrúar. Ekki er
enn búið að ákveða nafnið
á sveitinni, en þó er ljóst að
hún mun ekki bera nafhið
Stjórnin, eins og sú
» gamla...
Leikrit Valgeirs Skag-
fjörð, „Út úr myrkr-
inu“, hefur verið á túr
um landið og gert víðreist.
Meðal annars hefur verið
sýnt á Sauðárkróki, Dalvík,
Akureyri, Blönduósi,
Hvanneyri, Hvammstanga
og Reykholti, svo eitthvað
sé nefnt. Leikritið fjallar um
auglýsingafólk sem vinnur
að auglýsingaherferð gegn
eyðni. Leikarar em Ingrid
Jónsdóttir, Ólafur Guð-
mundsson, Steinn Ár-
mann Magnússon og Ing-
var Sigurðsson. Umgjörðin
er lítil og hægt að panta
sýningu hvert á land sem er.
Það er Alþýðuleikhúsið sem
gerir verkið út og nú fer
hver að verða síðastur að sjá
leikinn, því sýningum verð-
ur hætt um mánaðamót
janúar/febrúar...
Nú er hafinn undir-
búningur fyrir Mús-
iktilraunir Tóna-
bæjar. Þetta er í tólfta skipt-
ið sem tilraunirnar em
haldnar. Þær hafa verið
nauðsynlegur stökkpallur
fýrir óþekktar hljómsveitir
og þar hafa m.a. Dúkkulís-
urnar, Greifarnir, Sororici-
de og Kolrassa krókríðandi
stigið sín fýrstu spor. í fýrra
sigruðu hinir bráðefhilegu
Yukatanpiltar og notuðu
sigurlaunin, hljóðverstíma í
Sýrlandi, til að gera plötu
sem kom út fyrir jólin.
Ótrúleg ásókn var í keppn-
ina í fýrra, um sjötíu sveitir
sóttu um, en um fjörutíu
sveitir komust að og reyndu
með sér á fjórum kvöldum.
í ár verður fýrsta Músíktil-
raunakvöldið af þremur
haldið 10. mars og er skrán-
ing sveita hafin. Það borgar
sig að sækja snemma um en
símarnir hjá Tónabæ, þar
sem skráning fer ffam, eru
35935 og 36717...
Enn a ný brýtur
Pizzakofinn
verðmúrinn og býður nú
lægra verð en áður hefur þekkst
16" pizza með fjórum áleggstegundum kostar nú aðeins
-y.;/ .V ■'•V -
■í -
ókeypis
heimsending!
Pizzakofinn leitast við að bjóða viðskiptavinum sínum
ávallt hagstæðasta pizzuverðið.
Gæðunum gleymum við aldrei - sama hvað það kostar!
Tllboö
fyrir barnaafmæli
Fimm 16" pizzur með tveimur
áleggstegundum, frönskum kartöflum og
kokkteilsósu á aðeins kr. 3.490,-
Kornm
Langholtsvegi 89 og Engihjalla 8
símar 68 77 77 & 44 0 88