Tíminn Sunnudagsblað - 23.12.1962, Blaðsíða 2
Rómversk áhöltl fyrir 1900
árum, futtdin ú easkri grund
Hómverjar lögðu sem kunnugt
er England undir sig á fyrstu öld
tímatals okkar. Þá þegar voru
Lundúnir blómlegur bær, og hafa
fundizt þar margvísleg verkfæri úr
járni frá tímum Rómverja. Nokk-
ur sýnishorn af þessum verkfærum
gefa hugmynd um þá verkmenn-
ingu, sem Rómverjar fluttu með
sér yfir Ermarsund. Af þeim má
líka ráða, hve langa sögu ýmis
verkfæri, sem eru notuð, eiga að
baki sér, og er hún þó miklu lengri
en hér kemur fram.
Tvíarma gref, sem fannst ásamt
nokkru af rómverskum peningum
frá dögum Nerós og fleiri róm-
verskra keisara á fyrstu öld, hef-
ur án efa verið notað við jarð-
yrkju. Armamir eða kvíslarnar
eru sextán til átján sentimetrar
á lengd, en skaftið rösklega tutt-
ugu og tveir sentimetrar. Það er
talið frá tveim síðustu áratugum
fyrstu aldar, og eru sams konar
verkfæri frá svipuðum tíma til í
söfnum í Mið-Evrópu.
986
T í M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ