Tíminn Sunnudagsblað - 23.12.1962, Síða 3
■ ■ ■ ■■ ■ ■ ■ ■ .................................................................................................................................................................................................................................................................................................................. ........... ............................................ .............................................••:•••••
Skip sigldu upp Tempsá, og þar
hafa bátar verið notaðir til flutn-
inga. Það er því ekki óeðlilegt, að
bátshaki er meðal þess, sem fund-
izt hefur á bökkum Tempsár. Hann
er ríflega sextán sentimetra lang-
ur, og sjálft hakið er átta senti-
metra langt. Á honum voru leifar
af tréskafti. Hann er frá fyrstu
áratugum annarrar aldar.
Saxöxi með skalla fannst á bökk
um Tempsár. Axarblaðið er fimm-
tán sentimetra lengt, en skallinn er
rúmir fimm sentimetrar frá auga.
Ásamt skaröxinni fundust róm-
verskir peningar frá fyrri hluta
fyrstu aldar, og er talið, að sjálf
sé hún frá síðari helmingi'aldar-
innar. Hún er nokkuð frábrugðiu
sams konar verkfærum, sem varð-
veitt eru í söfnum í Norðurálfu.
Hamarshausinn, sem er tíu senti
metra langur, fannst í votum mó
í grennd viff gamlan og leðjubor-
inn lækjarfarveg, ekki langt frá
Tempsá. Hausinn er tíu sentimetra
langur, og var í auganu bútur af
skaftinu. Hinum forna smið, sem
notaði þennan hamar síðastur
manna, hefur orðið það, sem enn
er stundum gert, þegar hamarshaus
fer að losna á skafti: Hann hefur
rekið naglagaur niffur me(> skaft-
inu, svo að hausinn tylldi betur.
Jámkarl, meitill og þjöl er
ineðal hinna fundnu muna. Jám-
karlinn er allmikill gripur, nálega
sjötíu sentimetra langur. Róm-
verskir peningar, sem með honum
fundust, benda til fyrstu aldar. —
Hann hefur varðveitzt mjög vel,
og hefur hið nýtízkulegasta snið.
Meitillinn fannst í leðju á Temps
árbökkum. Hann er tæplega tutt-
ugu og fjórir sentimetrar á lengd,
og á honum sitja enn leifar af tré-
skafti, sem á honum hefur verið.
Breidd hans er tæpir tveir senti-
metrar. Hann er frá byrjun ann-
arrar aldar.
Þjölin fannst á sama stað og
Flutt á 1006. sí5u.
T í M I N N — SUNNUDAGSBI.-*"
987