Tíminn Sunnudagsblað - 07.04.1963, Qupperneq 9
Illllllllllllllllllll
u ÉL Á AUDNAHLADI
Jóhannes Ólsen, útvegsmaííur í Hjallhúsinu. — Þetta E
hefur verið svipmikill og hressilegur karl, tæpast 5
neinn veifiskati, líklegri til þess aí fara sínar eigin E
götur en fljóta meíi straumnum. E
íiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuii
i.
Sú var tíð, að fiskisælt var updir
Vogastapa, og þótti þá ekki annars
staðar skemmtilegra útræði en í Vog-
um. Fiskurinin gekk að jafnaði und-
ir Stapanm í byrjun aprítmánaðar
og var þar fram í maímánuð. Var
fiskigengdin oft svo mikil, að bátar
fengu daglega hlaðafLa og stundum
var tvíhlaðið eða jafnvel þríhlaðið
sama daginn. Bændur á þessum slóð
um gerðu út fjölda báta, en auk þess
komu menn úr Reykjavík, Kjós, af
Kjalarnesi, Seltjarnarnesi og Hval-
fjarðarströnd með báta sína og lágu
þarna við. Á Hólmanuim undir Voga
stapa voru að jafnaði upp undir tutt-
ugu skip aðkomumanna. Alls gengu
meira en tvö hundruð bátar til fiskiar
úr Njarðvíkun', Vogum og Brunna-
staðahverfi á Vatntíleysuströnd á síð-
ari helmingi mtjándu aldar.
II.
Meðal þeirna, sem áttu bát í Vog-
um vorið 1865, var Jóhannes Ólsen,
útvegsbóndi í Reykjavík, sonur Hann-
esar trésmiðs Gissurarsonar og
Magðalenu Jóhannesdóttur Zoega.
Átti hann heima í svonefndu Hjall-
húsi. Um miðbik marzmánaðar mátti
senn fara að vænta þess, að fiskur
gengi undir Stapann, og var því und-
inn bráður bugur að því að flytja
það suður eftir, er sjómennirnir
þörfnuðust. Var þar eikki sízt þurrð á
eldsneyti, og þess vegna var venja,
að mór væri fluttur þangað.
Jóhannes Ólsen bjóst til ferðar úr
Reykjavík snemima morguns hinn 16.
marzmánaðar. Voru þeir níu saman á
áttrónu skipi, og var í því allmikið
af mó, ásamt öðrum nauðsynjum, er
útvegur hans syðra krafðist. Fieiri
áttu þó flutning á skipinu en hann
sjálfur, og höfðu þeir, er nutu góðs
af ferðinni með honum, lagt U1 menn
á móti Jóhannesi. Eru nafngreindir
sjö, er þessa för fóru, auk Jóhannes-
ar sjálfs, og voru það Þórður Torfa-
sön í Vigfúsarkoti, kunnur formaður
og vefari, ættaður frá Mófellsstöðum
í Skorradal, Þórður Jónsson, er þá
var i sjálfsmennsku hjá nafna sínum,
kenndur við Lambastaði, Jón Jóns-
Son, bóndi á Rauðará, Jón Einars-
son, vinnumaður Jóhannesar Ólsens,
Vigfús Guðnason, ættaður frá
Hvammi í Kjós, vinnunnaður Hinriks
Árnasonar í Efstabæ í Reykjavik,
Stefán Þorleifsson, vinnumaður frá
■ Háreksstöðum í Norðurárdal, og ungl
ingspiltur, Jóhann Árnason frá Mel-
sfcað.
Vindur var hvass af austri, er þeir
lögðu af stað úr Reykjavík, og útlit
T í M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ
321