Tíminn Sunnudagsblað - 05.05.1963, Síða 12

Tíminn Sunnudagsblað - 05.05.1963, Síða 12
HERMANN PÁLSSON: KOÐI INN / í AÐ ALI BÓ r IL ★ HÖFUNDUR Hrafnkels sögu leggur mikla rækt við mannlýsingar, eins og Sigurður Nordal hefur rakið svo meist aralega í ritgerð sinni um söguna. Einkum ferst höfundi vel,. er hann ) /sir þroskaferli Hrafnkels goða. Auk ess sem vér kynnumst Hrafnkatli af orðum hans og gerðum, lýsir höfund ur honum þrívegis. í fyrsta sinni, er grein er gerð fyrir Hrafnkatli, er hann einungis fimmtán vetra að aldri. Hann er þá mannvænn ok gjörviligr. í orðum þessum felst eftirvænting, >au eru einkunnir, sem eiga við óráð- inn mann. Þótt hann sé gott manns- efni, er ekki enn séð fyrir, hversu hann reynist síðar. Næst er Hrafn- 'vatli lýst, þegar hann er orðinn bóndi í Aðalbóli, hefur tekið goðorð yfir dalsbúum og er orðinn fastur í ssi. Hann hefur þá náð fullum s.’oskaaldri, en er þó enn ungur að irum. Þá er okkur sagt, hversu rætzt hefur úr hinum mannvænlega sveini. Hann er ójafnaðarmaðr mikill ok menntr vel, mildur við vini sína og harður við óvini, stendur mjög í ein- vigjum og bætir engan fé. Einkunnin menntr vel lýtur að þroska Hrafn- kels, en ójafnaðarmaður mikill að samskiptum hans við aðra menn. í þriðja sinni er Hrafnkatli svo lýst, er hann hefur þolað niðurlæging og í.íótlæti og reynsla hans hefur tamið l.ann og mildað afstöðu hans til sam- þegnanna: Maðrinn var nú miklu vinsælli en áðr; Hrafnkell tók hina sömu skapsmuni um gagnsemð ok riisnu, en miklu var hann nú gæfrt cn fyrr ok hægri at öllu. Þjóðfélagið tek- ur höfðingjann í sátt, er hann hefur losnað við agnúa ofsa og ójafnaðar. Hrafnkell stenzt eldraunina, skapgerð hans er enn heil og óbrotin eftir ófar- Hermann Pálsson irnar, sem kenndu honum svo misk- unnarlaust að gegna skyldum sínum vig aðra þegna samfélagsins. Þroski Hrafnkels og skapferlisþró- un ber glögglega með sér, hve ofar- lega i huga höfundar eru öfl þau, sem réðu svo miklu í þjóðveldi íslend inga. Hrafnkell skapar sér sjálfur þá veilu, sem verður honum til falls. Þótt hann sé valdamikill yfir öðrum mönnum og svífist einskis í viðskipt- um sínum við þá, áður en hann væri sekur, er hann þó engan veginn sjálf- stæður og óháður maður sjálfur. — Ógæfa hans er sú, að hann er um of háður guðinum Frey. Hrafnkell elsK- aði eigi annat goð meir en Frey, ok honum gaf hann alla hina beztu gripi sína hálfa vúð sik . . . Hrafnkell átti þann grip í eigu sinni, er honum þótti betri en annarr: þat var hestr, brúnmóálóttr at Ht, er hann kallaði Freyfaxa sinn. Hann gaf Frey vin sínum þann hest hálfan. Á þessum hesti hafðii hann svá mikla elsku, at hann strengði þess heit at hann skyldi þeim manni at bana verða sem honum riði án lians vilja. Hrafnkell er ekki fullkomlega sjálfs sín ráðandi, svo mikil ítök hefur Freyr í honum. Hrafnkatli verður eins og mörgum valdafiknum og ofsafengn um mönnum, að hann seilist til að þjóna öðrum, sem honum er langtum æðri. Hér eins og víðar er höfundur ef til vill að sneiða ag samtíð sinni. Um daga hans voru hér fáir valda- miklir menn, sem réðu lögum og lof- um í landinu. En þeir létu sér slíkt ekki nægja, heldur bundust þeir Há- koni gamla og gengu í þjónustu hans. Samband þeirra við hinn útlenda þjóðhöfðingja reyndist þó tvíeggjað vopn. Þótt völd þeirra yrðu traust- legri um sinn, gat ag því komið, að Hákon brygðist þeim og styrkti and- stæðinga þeirra gegn þeim. Ákafinn í sambandi þeirra Hrafnkels og Freys kemur fram í því, að Hrafnkell elsk- aði goð þetta meir ,en önnur og lagði mikla elsku á Freyfaxa. Endurtekn- ingin á tilfinningum Hrafnkels til goðs og hests sýnir tökin, sem Freyr hefur í honum. Einráður höfðingi er oft hættulegri sjálfum sér og öðrum, ef hann lýtur enn valdameiri manni. Ást Hrafnkels á Frey og Freyfaxa eru upptök harmsögunnar. Hrafnkell strengir þess heit að drepa hvern þann, sem ríði hestinum. Hrafnkell treystist ekki til að rjúfa heitið og velur þann kost að vega Einar. Síðan verður Hrafnkell að gjalda glæpsins með missi goðorðs og staðfestu. Hrafn kell er orðinn öreigi austur í Fljóts- dal, er hann fyrst losnar undan valdi Freys, og þá um leið hefst sigurganga hans. Hann fréttir, að Þjóstarssynir hafa týnt Freyfaxa, og þá lætur hann orð falla, sem minna rækilega á um- mæli Alexanders, er hann hefur höggvið á hnútana: Ek hygg þat hégóma at trúa á goð. (Hrafnkels saga, 29, 3—4). Mikill hégómi, segir hann, at trúa slíku. (Alexanders saga, 21, 6). Siðari hluta vetrar gaf Þjóðsaga út rit Hermanns Pálssonar, Hrafnkels saga og Freysgyðlingar. Höfundur heldur fram þeirri skoðun, að Brandur biskup Jónsson sé höfundur Hrafnkels sögu, og œtlar hann, að hún spegli ýmsa þœtti þeirrar harmsögu, er yfir œttmenn biskups gekk á Sturlungaöld. Sýnir hann og fram á, hve orðafar Hrafnkels sögu og Alexanders sögu, er Brandur skrifaði, er oft Hkt., — Þar sem ætla má, að mörgu.m sé forvitni á að kynnast röksemdafœrslu Hermanns, birtir Sunnud>a.gsblaðið hér einn kafla bókarinnar með leyfi höfigndar og útgefanda. 396 T t M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.