Tíminn Sunnudagsblað - 05.05.1963, Síða 16

Tíminn Sunnudagsblað - 05.05.1963, Síða 16
AMALÍA LÍNDAL: SVARTKLÆDDAR KONUR Rökkrið í forstofunni var Maríu Higgins miskunnsamt þetta sumar- kvöld. Skipti engu máli, þótt hún Sæi aðeins andlit sitt í kringlóttum speglinum: tunglásjónu með græn- blá postulínsaugu, kartöflunef og munn, sem fremur líktist hrufu á svampi en þeim rósavörum, er höfðu seitt Wallace fyrir tuttugu árum. Já — rökkrið var Maríu Higgins þægi- legt. Hún saug inn kinnarnar, og við það lengdist andlit hennar og varð sporöskjulagað. Hún kipraði augun, og þá urðu þau undir eins svo dular- full — emfeldnisleg. Hún lyfti hök- unni, og það sást ekki nein undir- haka. María Higgins brosti, hægt og íhugandi. „Sjáið, hvað gerist, þegar' þér far- ið að neyta Megrós“, heyrðist frá út- varpstækinu í dagstofunni. „Hvort sem konan er þrjátíu og níu ára eða fjörutíu og níu ára, þá mun undra- verð breyting eiga sér stað, þegar hún tekur að neyta Megrós. Þér mun- uð taka furðulegum stakkaskiptum, ef þér drekkið Megró með ljúffengu vanillubragði eða hinu nýja bnetu- súkkulaðíbnagði á undan mat í eina viku. Líðan yðar batnar. Útlit yðar batnar. Þér _munuð bera höfuðið hærra og verða hreykin af því, hve þér eruð fögur kona. Megró er óska- drykkur þeirra kvenn.a. sem vilja öðl ast nýtt líf. — Reynið Megró og sjá- ið, hvað gerist“, sagði þulurinn að lokum með sigurhreim í röddinni. María Higgins drap tittlinga fram- an í sjálfa sig um leið og hún sneri sér frá speglinum og kveikti ljós. Hún strunsaði inn í borðstofuna og renndi augum yfir borðið á meðan hún drakk Megróskammtinn sinn með hnetusúkkulaðibragðinu. Borðið var búið eins og gestaboð væri í vændum, þótt raunar væri það aðeins venjulegur kvöldverður að sumar- lagi. En Wallace vildi, að vandað væri til borðbúnaðarins. Og ef Wall- ace vildi matast af beztu postulíns- diskunum á hverju kvöldi — hvers vegna átti þá ekki að láta það eftir honum? Það er alveg eins og við eigum von á gestum, hugsaði hún, dreymin á svip. Nema rósirnar eru farnar að drúpa. Það vantaði eina fallega rós, gróðurhúsarós, til þess að gefa borð- inu verulegan svip — eina lýbalausa rós, sem skartaði í kristalsvasa, böð- uð kertaljósi, og kastaði mjúkum skugga á fagurmótað andUt hennar og sindraði í gljáandi hári hans, þeg- ar.. ,nei amnars, Wallace var sköll- óttur. En hún átti afmæli í næsta mánuði, og þá ætlaði hún að bjóða til sín gestum. Þá yrði hún orðin tuttugu pundum Iéttari, og kjóllinn hennar bungaði ekki út eins og hún væri að springa af ofsæld, heldur félli freiistandi að spengilegum líkama hennar. Hún ætlaði að kaupa svartan kjól — hún ætlaði að koma því öllu á óvænt. Þegar stóri sonur hennar kæmi heim í leyfinu, gæti hann lyft henni í fangi sér eins og ungri stúlku. Og Wallaee — nú, hún hafði séð, hvernig hann renndi út undan sér augunum til sýningarstúlkunnar í svarta kjólnum, þegar þau fóru í kvikmyndahúsið í síðast liðinni viku. Klukkan sló sex, og María flýtti sér fram í eldliúsið til þess að hyggja að súpunni. Wallace vildi, að súpu- diskurinn stæði rjúkandi á borðinu, þegar hann kom heim. Heitan mat í heitu veðri, kaldan mat í köldu veðri, sagði hann ævinlega. Hún jós á dislkinn. Reyrður magi hennar bifaðist af ílöngun, þegar ang- anina lagði fyrir vit hennar. Hún dokaði við eitt ljúfsárt andartak. En svo hellti hún köldum tómatasafa í lítið glas handa sjálfri sér. Það fór fjarskalega lítið fyrir því á bakkan- um hennar. Hún bætti rósakáli á fat á miðju borðinu, svo að hún sæi ekki súpudisk og brauðströnglg manns síns úr sæti sínu. Þeir voru þrír, brauðströnglarnir. Hún kveikti á kertunum, og jafn- skjótt reis alda eftirvæntingar í brjósti hennar. Hún hlakkaði til kvöldverðarins. Nú brá svo undar- lega við, að það var orðið skemmti- legt að láta sér nægja megrunarfæði. En svo kom hún auga á missmíði. Hún beygði sig stynjandi niður og blés rykhnoðra lengra inn undir hlið- arborðið. Hún hefði átt að þurrka gólfið betur. En þetta var svona — það var eins og verkunum væri aldr- ei lokið. Hún var í þann veginn að rétta Sig upp, þegar útidyrnar voru i Frú Amalía Líndal, höf undur þessarar sögu, er bandarísk aS upp- runa, en gift íslenzkum manni, Baldri Líndal verkfræíingi. Hún hef- ur skrifaS sögur í er- lend tímarit, og bók ; eftir hana um Island hefur veriS gefin út vestan hafs. Hún hefur ■ komiS hér fram í út- varpi, en þetta mun fyrsta saga hennar, sem birtist á nrenti hér- lendis. opnaðar og hurðinni skellt röslciega í lás jafnskjótt. Wallace gekk inn föstum skrefum, lét hattinn sinn nákvæiúlega á miðja hilluna í forstofunni, þerraði ljós- rautt, kringlótt andlitið með tandur- hreinum vasaklútnum. „Gott kvöld, væna mín“. Hann brosti, kyssti hana á kinnina og gekk rakleitt að borðinu. „Gott — matur- inn kominn á borðið". Hann ljómaði, þcgar hann sá súpuna. „Heitan mjat í heitu veðri, kaldan mat í köldu veðri, segi ég alltaf". „Já, ég held ég viti það“, sagði hún, og brosti roggin. Wallace átti engan sinn líka. Enginn mat hæfileika hans að verðleikum — nema hún. „Hverniig líður banikagjafdkeranum mínum núna?“ spurði hún glettnis- lega. Wallace hristi þerruna sína borg- inmannlega. „Hitinn hefur leikið þá illa, surna, og þeir voru farnir að kvarta og kveina. En ég sagði við þá: Það er mikilvægt starf, sem við höf- um með höndum, piltar. í hvert skipti, sem við veitum peningum við- töku eða látum peninga af höndum, renna örlagaþræðir einihvers um greipar okkar. Þetta hafði þeim eldci dottið í hug áður“. „Það er enginn á við þig, Wallace“, sagði hún. Wallace fletti sundur blaði sínu í virðulegri þögn og gerði áhlaup á súpuna, kvikur og nettur í hreyfing- um eins og hans var vandi. Hann renndi augunum yfir efri hluta síð- unnar og lét sér hvorki fipast við lesturinn né matartékjuna. Wallace lagði litla virðingu á fólk, sem ekki notaði hverja stund til hlítar. 400 T f M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.