Tíminn Sunnudagsblað - 05.05.1963, Page 20
Goðinn á MaSbóli
Framhald af 399. síðu.
sakir væru nægar til slijcs. Hrafnkell
kann sér ekki hóf, og svar hans til
Þorhjarnar ber glöggt með sér, aS
hann kýs fremur að njóta valdastöðu
sinnar og st'éttar en hlíta l'öguim og
réUi „Þá þykkisk þú jafnmenntr
■ ok munum vit eigi at því sætt-
segir Hrafnkell við Þorbjörn.
Hiafnkel órar ekki fyrir þvi, hvern
slóða synjun hans muni draga, því
að hann var ekki minnugur ráða
Aristótilesar, eins og Brandur herm-
ir þau í Alexanders sögu: „Eigi skyldu
dauðligir menn, segir meistarinn,
stærask af gefnum ríkdóimi og fyrir-
líta s!ér minni menn“. í huga Hrafn-
kels drottnar drambsemi, sem er svo
lýst í Alexanders sögu: „Þar er ok
Superbia, þat er drambsemi. Hennar
athöfn er sú at skelkja jafnan at
öðrum, þykkjast yfir öllum, vilja eigi
vita sinn jafningja“. Hroki Hrafnkels
gerir hann ónæman fyrir aðgerðum
Sáms og óviðbúinn ósigrinum. Dramb-
semi birtist ekki einungis í orðum
Hrafnkels við Þorbjörn, heldur einn-
ig í öllum viðbrögðum hans við enála-
tilbúnaði Sáms, unz Sámur og Þjóst-
arssynir hafa hneykt hann á alþingi.
Fyrirlitningin á Sámi leynir sér ekki,
er Hrafnkatli þótti brölt hans hlægi-
legt. Og á þinginu ætlaði Hrafnikell
að leyfa smámennum að sækja mál á
hendur honum. Hrafnkell vill ekki
vita jafningja 'Sinn og þykist yfir
aðra hafinn. í samræmi við þetta
verður niðurlæging Hrafnkels engu
síður refsing fyrir drambsemi, þá
synd er svo heitir, en hegning fyrir
víg Einars. Og breytingin, sem verð-
ur á Hrafnkatli við niðurlæginguna,
er fólgin í því, að hann verður miklu
vinsælli, gæfari og hægari en fyrr
Hann hefur með öðrum orðum læko-
azt af drambsemi sinni.
Eftir eldraunina á Aðal.bóli verður
Hrafnkell nýr og betri maður, að
minnsta kosti í samskiptum við þing-
menn sína. En þegar griðkona hans
brigzlar honum um afturför frá fyrri
árum, stenzt hann ekki þá ögrun.
Griðkonan hefur mætur á hinum fyrri
ofsa hans og ójafnaði, sem Hrafnkell
sjálfur hefur hal'dið í skefjum um
árabil. Reynslan hefur læknað hann
af drambi, og aðstæðurnar fram und-
ir þennan tíma höfðu bannað honum
að hefjast handa. En nú er skipan
komin á land hans og ríki. Þá bei
það saman, að griðkonan eggjar hanr
óverks og bróðir Sáms er nýriðinn
fyrir neðan garð á Hrafnkelsstöð
á teið til Aðalbóls. Sterkasta og
áhrifamesta atriðið í eggjunarorðum
griðkunnar er samanburðurinn milli
hins fyrra Hrafnkels og þess, sem nú
situr friðsamlega í nýju ríki austan
heiðar. Þrátt fyrir þau umskipti, sem
orðið höfðu á viðhorfum Hrafnkels,
þolir hann ekki frýjunarorð vinnu-
konunnar. Nú rennur upp fyrir hon-
um fyrri frægð, er hann bar ægis-
hjálm yfir Jökuldælum og Hrafnkels
dælum. Honum er auðið að fremja
enn eitt óverk. Hann bregður skyndi
lega- við, eins og hann hafi aldrei hlot
ið ráðningu hjá Þjóstarssonum, send
ir umsvifalaust eftir mönnum, fer á
eftir Eyvindi og lætur hann hníga
til moldar, og brátt kúgar hann Sám
til að lúta sér til fulls.
í herförinni til Indlands verður
Alexander neyddur til að nema stað-
ar hjá fljóti einu, en sumum liðs-
mönnum hans þótti lítt tii dvalar
þeirrar koma og bera hik hans sam-
an við fyrri afrek. Hér er forvitni-
legt að bera saman frýjun griðkon-
unnar á Hrafnkelsstöðum og ummæli
Simacusar við fljótið:
Verðr sú lítil virðing, sem snemma
leggsk á, ef maðr lætr síðan sjálfr
af með ósóma ok hefir eigi traust
til að reka þess réttar nokkurt sirini,
ok eru slík mikil undr um þá menn
sem hraustir hafa heitit.
(Hrafnkels saga).
Er þat eigi, segir hann, undr mikil
er slíkr höfðingi sem konungr várr
er Alexander, er aldregi fór hér til
ósigr, skal eitt lítit vatn láta nú við
sér taka.
(Alexanders sa-ga, 131, 15—17).
Þegar griðkonan lætur töluna ganga,
hvilir Hrafntoell í rekkju, en Simacus
kemst einnig svo að orði, að nú vilji
Alexander sofa til alls. Hiin óeigin-
lega merking í orðtaki þessu er að
vísu ákveðin, en hitt var einstaklga
vel til fundið í Hrafnkels sögu, að
láta Hrafrikel vakna bókstaflega við
orð griðkonunnar. Samanburðurinin
í Alexanders sögu milli fyrri afreka
konungsins og aðgerðarleysis hans
við fljótið er næsta sannfærandi og
áhrifamikill, svo mörgum og miklum
stórvirkjum hans hefur þá verið lýst
í sögunni. í Hrafnkels sögu er þessu
á annan veg farið, og ögrunin í
munni vinnukonunnar verður ekki
skilin, nema gert ®é ráð fyrir því, að
henni sé meira í mun nýtt óverk en
framgangur Hrafnkels. Mat hennar
á gerðum Hrafnkels er annað en höf-
undar. Hrafnkell hefur nú eignazt
sízt minna mannaforráð en það, sem
Sámur hafði náð af honum. Og ef vér
hyggjum að afrekum hans, sem getið
er í sögunni og gerðust á valdatíma
hans í Hrafnkelsdal, hlýtur oss að
finnast lítt til þeirra koma. Auk al-
mennra lýsinga á mildi hans við vini
sína og hörku við óvini, er fáu öðru
til ag dreifa en félagsskap hans við
Frey og drápi Einars smalamanns
með slóða þeim, sem þvl fylgdi, en
stíkt verður honum ekki til hróss.
Á dögum sínum í Hrafnkelsdal stóð
Hrafnkell mjög í einvígum og bætti
engan mann fé, og enginn fékk nein-
ar bætur af honum, hvað sem hann
gerði. Þótt skoðun griðkomumar á
fyrri hreysti Hrafnkels hafi að von
um verið önnur en vér myndum hlíta,
hrekkur slíkt skammt til skýringar á
forsendu samanburðarins. Tiltækileg-
ast virðist að gera ráð fyrir því, að
Brandur ábóti hafi notað hér óafvit-
andi áhrifamUcið atriði úr Alexand-
ers sögu, s;em -nýtur sín á annan hátt
í Hrafnkels sögu, þar sem lofsverð-
um gerðum Hrafnkels á fyrri árum
hafi ekki verið gerð nein skil.
Pyndingar og niðurlæging Hrafn-
kels eru gerðar honum til smánar og
í hefndarskyni, en þær verða einnig
læfcning hans. Þetta er ekki eimung-
is augljóst af sögunni sjálfri, heldur
er hægt að benda á þann stað í
Alexanders sögu, sem gefur Brandi
hugmyndina. Þegar Sámur hefur
sagt Hrafnkatli, hverjir úrslitatoostir
eru, svarar Hrafnfcell honum, og
minna orð Hrafnkels á ummæli Álex-
anders við lækni sinn, sem óttaðist
um á'hrifin af lækningunni:
Mörgum mundi betr þykfcja sikjótr
dauði en slíkar hrakningar.
(Hrafnkels saga).
Þá skaltu minnka meinlæti mitt ok
gera mér skjótan dauða með harðri
lækningu.
(Alexanders sa-ga, 142, 3—4).
Hrafnkatli er enn ekki ljóst, að
hinar hörðu aðgerðir þeirra Þjóstars-
sona eru í rauninni lækning hans.
Meinlæti Hrafnkels, dramb og ofsi,
er svo mikið, að mifcið verður að gera
ti'l bóta. Þegar skorið verður til sl'íkr
ar meinsemdar, er sjálfu lífinu hætt.
í Hrafnkels sögu er eitt hugtak,
sem virðist búa að baki orða og við-
burða, en það er sefct og andstæða
þess: sakleysi. Einar gerist sjálfur
sekur um óhlýðni, en jafnskjótt og
Hrafnkell hefur hefnt hestsins, tekur
hann sjálfur á sig alla sektina. Þegar
Sámur og Þjóstarssynir hafa bægt
Hrafnkatli frá dómum á alþingi, fær
ist sektin að nokkru leyti yfir á þá.
Og hinar grimmilegu pyndingar, sem
þeir l'áta Hrafnkel sæta, velta sektar
byrðinni' af honum að miklu leyti-
Þessi skýring kemur h-eim við um-
mælin í Alexanders sögu: „nauðung
og ofbeldi minnkar jafnan sekt þes's
er þolir ok fyrir verðr“. Hrafnkell
afplánar að nokkru leyti fyrir glæp
sinn, er hann hangir á hásinum af
vaðásnum á Aðalbóli. Slíka þjáning-
ar voru píslarvottar látnir þola. Sekt
Sáms fylgij- honum eins og skugginn
um veldisdaga hans í Hnafnkelsdal,
unz hann verður að þola nauðung
af hendi Hrafnkels í drápi bróður
síns, og Hrafnkell tekur á ný við oki
s'ektarinnar.
404
T í M I N N - SUNNUDAGSBLAÐ