Tíminn Sunnudagsblað - 21.07.1963, Side 5

Tíminn Sunnudagsblað - 21.07.1963, Side 5
AZTEKARÍKIÐ T] Hamdmftibtnidi d«r Ailikin (í.glnn um 1300 n, Chr.) Tompícoi HUAXTCKEN 'Chontol AtaraCrut NAHUATf OTOMI Tiellol % MIXE ZOQUEV? LENCA HUAVE MAM r QUICHé Pokomom C? CHATINO" KorílS sýnir ríki Azteka í Mexfkó. YfirráðasvæSi þeirra er táknaðaneS skástrikum. Höfuðborgin Tenochtitlan (Mexico City á kortinu) sést skammt frá vinstri jaðri kortsns. Ameríka er sú heimsálfan, sem síð- ust hefur byggzt mönnum. Þó hefur þar verið mannabyggð æði lengi. Fornfræðingar hafa fundið örugg merki þess, að menn voru þangað komnir fyrir a.m.k. 20 þúsund árum. Trúlega hefur landnám álfunnar haf- izt enn þá fyrr Ameríka er numin frá Asíu. í forn. fræðilegum og þjóðfræðilegum skiln- ingi er hún ekki vesturálfa, heldur austust allra landa Fyrstu land. nemar Ameríku hafa komið yfir Ber- ingssund, sem þá hefur ekki verið sá farartálmi, sem það síðar varð. Alaska og Síbería hafa þá að öllum líkindum verið samtengt land og hægt að komast þurrum fótum á milli. Síðar, þegar höfin tóku að hækka vegna minnkunar ísaldarjök- ulsins, hefur þar um langan aldur verið mjór áll á milli, sem auðvelt var ^að komast yfir á bátum. En sá áll breikkaðí smám saman, og ein- angrun Ameríku frá öðrum álfum f’ vaxandi Auðvitað er ekki um að ræða samfpllt landnám Ameríku, heldur hefur það gerzt á löngum tíma. Litlir hópar frumstæðra veiðimanna hafa flutt sig yfir sundið, hverjir öðrum óháðir Þeir breiðast út um álfuna og komast suður á syðstu endamörk hennar áður en varir. Samgöngutæki hafa þeir að vísu engin önnur en fæturna, og burðar- dýr þekkja þeir ekki, en svo fer samt að lokum, að gjörvöll álfan verður numið land. Duttlungar síð- ari atvika gerðu, að það fólk, sem þarna bjó, hlaut nafnið Indíánar, þótt það eigi ekkert skylt við Ind- land eða þjóðir þær, sem þar lifa. Menning hinna fyrstu Indíána var frumstæð veiðimerming, steinaldar- menning. Og steinöld stendur i Ame ríku allar götur, þar til Evrópu- menn koma þangað Járn var þar alla tið óþekkt. Einu málmarnir, sem Tndíánar kynntust, voru góð- málmarnir, gull, silfur og fleiri, sem betur eru lagaðir til skrauts og íburðar en daglegrar notkunar og tækjasmíði. Og það voru aðeins fáar Tndíánaþjóðir, sem spurn höfðu af þessum gersemum, hámenningar- þjóðirnar í Perú og Mexíkó. Svipað er að segja um atvinnu- hættina. Veiðar voru alltaf eina lífs- viðurværi fjölmargra Indíána ásamt söfnun þeirra gæða, sem náttúran gefur sjálfkrafa af sér. En aðrvr komust upp á lagið með að rækta jörðina, sá og njóta afraksturs mold arinnar. Þar með var skapaður grundvöllur hærri menningar en kleift er að ná, þegar búið er við flökkulíf veiðanna. Og á nokkrum stöðum í álfunni reis upp menning, sem ber hátt yfir það, sem annars er algengt meðal svo kallaðra „frum stæðra“ þjóða, og ríki kornust á fót, sem ómögulegt er að kalla annað en stórveldi. Frægust hafa þessi ríki orðið í Perú og Mexíkö, Inkaríkið og veldi Azteka. Þegar Spánverjar komu fyrst til Mexíkó árið 1517, fundu þeir þar fyrir voldugt ríki innfæddra, Az- tekaríkið, og auður þess og glæsi- leiki setti þeim glýju í augu. Fyrsta tilraun þeirra til að ná þar fótfestu mistókst, en árið 1519 kom Herman Oortés til landsins, stofnsetti borg- ina Vera Cruz, og tveimur árum síðar féll ríki Aztekanna í lians hendur. 13. ágúst tók hann höf- uðborgina, Tenochtitlan, þar sem nú stendur Mexíkóborg. Þann dag urðu Spánverjar húsbændur yfir Mexíkó Það ríki og sú menning, sem Cortés lagði að velli, átti sér mikla sögu Hina voldugustu Azteka, Tc- nochca-ættbálkinn, hafði að vísu bor- ið allskjótt upp á valdahimininn, en menning þeirra átti sér langan að- draganda og djúpar rætur í Mexíkó- dal Tenochcarnir voru aðkomnir Fyrir 1248, að þeir settust um kyrrt, voru þeir frumstæður þjóðflokkur, eins og þeir gerast og ganga meðal Indíána Mið-Ameríku. Næstu tvær TÍMI.NN - SUNNUDAGSBLAÐ 605

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.