Tíminn Sunnudagsblað - 28.07.1963, Page 13
DAGRENNING
við mig tala? spurði meistarinn.
— Mig langar til að verða lista-
maður, sagði ég, og langar því til
að leita ál'its yðar og ráða, hvernig
bezt muni vera að búa sig undir
það.
— Listamaður, segir þú. — Það
er löng leið! Ég vil ekki hvetja
neinn til að leggja út á þá braut,
það er engum heiglum hent. Lista-
mannsbrautin er ekki ávallt blóm-
um skrýdd. Oft verr farið en heima
setið. Löng leið, grýtt og torsótt.
Oft vegleysur milli vinja. Margur
verður úti, heltist úr lestinni, týn-
ist, glatast. Ungir hugsjónamenn
horfa í draumórum sínum á þessa
braut skreytta ævintýra- og sigur-
bjarma, sem aldrei verður að
veruleika. Miklu fleiri liggja falln-
ir við veginn, en hinir, sem hafa
rutt og troðið brautina til' marks
ins mikla. Stefnufestu og persónu-
þrek þarf til þeirrar köllunar, er
knýr mann á listamannsbraut. Þá
þarf og tillitssemi og skilning, eigi
aðeins á sínum eigin vilja og við-
leitni að komast í áttina. heldur og
á náunganum. Lífið er stutt, en list
iin löng. Og hverjum einum — ekki
einungis listamanni eða listamanns
efni, — heldur hverjum einstakl-
ing, eru talcmörk sett í ráðningu
hins mikla, dularfulla draums, sem
hann á aðeins einn handa sjálfum
sér. Fár veit, hvað í annars brjósti
býr og fyrsta stig út á listamanns-
braulina er tillitssemin og kurteis-
in við allt, sem lífsanda dregur.
Þrátt fyrir stórhug verður hver
listnemi að gruna takmörk sín,
en síðar, með auknum lærdómi,
þroska og þekkingu, — að vita þau
og kunna. Listamaðurinn getur
engan ásakað fyrir sínar eigin
gerðir. Har.n einn ber ábyrgð á
þeim.
Já, ungi maður. Ég vil engan
hvetja út á þá ógnarbraut. En ég
vil heldur engan letja, sem í auð-
mýkt og trúnaði köllunarinnar
öðlast hörkuna og viljann til að
horfast í augu við nakinn sann-
leikann og getur möglunarlaust
tekið upp baráttuna við heimsku
og tregðu, hungur og smán. Því
svo sannarlega á Listamannsbraut-
mni mætást sigur — og hrakför
— báðar sem blekkingar — því
báðar eru systur.
Ég vil því eindregið ráðleggja
yður, ungi maður, að skoða fyrst
huð yðar og allar aðstæður, hvort
ekki væri ráðlegra að velja aðra
leið —• annað lífsstarf — léttara
og hagsælla. Þér skuluð hugsa vel
mál yðar og ekki ana út í neina |
Framhald á bls. 646.
LISTASAFN Einars Jónsson-
ar er fjörutíu ára um þessar
mundir Ævi þessa mikla
myndhögovara var ein óslitin
þjónusta vi8 köllun listarinn-
ar, og hin göfuga og djúp-
stæða lífsskynjun hans lifir
í listaverkum hans og lætur
engan ósnortinn, sem af ein-
lægni vir8ir þau fyrir sér. —
Hér skrifar Eggert Guðmunds-
son, listmálari, um fyrstu
kynni sin af myndhöggvaran-
um.
_____
TIMINN - SUNNUDAGSBLAÐ
637