Tíminn Sunnudagsblað - 22.09.1963, Blaðsíða 17

Tíminn Sunnudagsblað - 22.09.1963, Blaðsíða 17
I. SÚ SKOPUN hefur löngum veriö ríkjendi, að Indíána í Bandaríkjunum hlyti að bí'ða það hiutskipti í fyrirsjáanlegri fram- tíð að deyja út, renna inn í þjóða haf meirihiutans, glata menning- ar- og erfðasérkennum sínum og binda þanrsig enda á tilveru sína sem sérstakra þjóðflokka. — Þessi spédómur virðist þó ekki á leið að rætast. Indíánum fer þar mjög fjölgandi og þeir halda fast við kjarna erfðamenningar sinnar, þótt þeir um leið lagi sig að mörgu, sem vestræn menn- ing hefur upp á að bjóða. Þegar landnám hvítra manna hófst í Norður-Ameríku er taliS, að verið hafi um 850.000 Indíánar á því svæði, sem nú er Bandaríkin. Næstu aldirnar fór þeim ört fækkandi, og Eitt helzta elnkennið á trúarbrögðum Indíána í Norður-Ameríku var, að þelr héldu ú't í óbyggðirnar á unga aldri og biðu vitrunar frá yfirnáttúruiegum verum, sem síðan urðu persónulegar verndarvættir etnstaklingsins. Hér á myndinni sést Indíáni í leiðslu hlýða á raust guðdómsins. árið 1850 er talig að þeir hafi ekki verið nema 250.000 að tölu. Eftir alda mótin 1900 fer þeim hins vegar aft- ur fjölgandi, og nú eru þeir opinber- lega taldir annaðhvort 400.000 eða 450.000. Vissir erfiðleikar eru þvi samfara að telja Indíánana, því ber tölunum ekki saman, og þær eru heldur ekki nákvæmar. Einkum getur oft verið vandasamt að ákvarða, hverjir séu Indíánar og hverjir ekki. Lægri tal- an, 400.000, er sú, sem Indíánamála- stjórn Bandaríkjanna reiknar með. Sú tala er fyrst og fremst miðuð við þá, sem ríkisstjómin hefur ákveðnar skyldur gagnvart, og hún hefur vissa tilhneigingu til að vantelja frekar en oftelja. Hærri talan, 450.000, er sú tala, sem manntalsskýrslur greina, og þar eru þeir taldir Indíánar, sem annaðhvort teija sig vera það sjálfir eða greinilegt er, ag séu það, þar eð þeir búa í Indíánasamfélögum ásamt öðrum Indíánum. En einnig þessi tala mun vera of lág. Fjöldi manna, sem eru Indíánar að kyni og búa að hætti Indíána, eru ekki taldir Indí- ánar á manntali, og liggja oft til þess sögulegar ástæður. Háskólinn í Chicago gekkst fyrir nokkrum árum fyrir rannsókn á Indíánum og lífi þeirra. og þar var komizt að niðurstöðum, sem voru talsvert frábrugðnar því, sem almennt hefur verig talið. Niðurstöður rannsóknarinnar voru í stuttu máli þær, að Indíánasamfé- lögin væru sérstök og afmörkuð sam- félög, sem færu stækkandi, og tækju að vísu upp margt og mikið úr vest- rænni menníngu, en löguðu það að erfðavenjum sínum og fornum lifs- háttum. Kjarni þjóðmenningar þeirra lifði áfram meðal þeirra og virtist sízt á undanhaldi. Fjöldi Indíána tald ist vera 620.000 miðað vig árið 1950. Þessi rannsókn staðfesti þær nið- urstöður, sem ráðstefna þjóðfélags- fræðinga og manna, sem haft höfðu náin kynni af Indíánum, hafði komizt að fáeinum árum áður. Þeirri ráð- stefnu var ætlað að taka til meðferð- ar þá föstu skoðun, að óhjákvæmilegt væri, ag Indíánar Bandaríkjanna löguðu sig að eðlilegu lífi íbúanna og hyrfu úr sögunni sem sérstök sam- félög og ættbálkar. Mjög var þýð- ingarmikið að þetta efni skyldi tek- ið upp, því að Indíánastefna Banda- ríkjanna hefur nær alltaf haft þessa skoðun fyrir grundvallarforsendu og verig reist á henni. En ráðstefnan var gagnrýnin á þessa skoðun. í niðurstöðum hennar segir meðal ann ars: „Flestir Indíánahópar í Bandaríkj unurn hafa eftir meira en hundrað ára samskipti við evrópska Ameríku- menn og þrátt fyri. mikinn þrýsting, bæði beinan og öflugan, enn ekki fallið inn í þjóðina í þeim skilningi, að þeir hafi glatað skilningi á sér- stöðu sinni og tekig að fullu upp amerískan hugsunarhátt og atferli- venjur . . . Þrátt fyrir ytri þrýsting og innri breytingar, munu flestir Indí ánahópar, sem búa á Indíánasvæð- um (landi, er þeir telja heimaland sitt) halda áfram óendanlega rð vera sérstakar hjóðfélagsheildir, sem varð- veita grundvallarlífsviðhorf sín, per- sónuleika og indíánska lifnaðarhætti, en laga sig stöðugt. oft yfirborðs- kennt, ag efnahagslegum og stjórn- málalegum kröfum stærra þjóðfélags- ins“. Mörg rök hníga að þvi, að þessi niðurstaða sé rétt. Enn er lifandi að núnnsta kosti helmingur þeirra 300 tungumála, sem menn ætla, að hafi verið töluð norðan Mexikós á landa- fundatímanum, og fjölmörg Indíána- börn hefja skólagöngu sína án þess ag kunna stakt orð í ensku. Enn er við lýði ættarkerfi og fornar reglur um sifjar og erfðir, iðulega samhliða hinu opinbera vestræna ættarkerfi og landslögum. Margir Indíánar, sem á ytra borði lifa sama lífi og aðrir taka þátt í lífi ættbálksins og gegna þar ýmsum störfum, bæði trúarleg- um og félagslegum. Með þessu er ekki sagt, að bilið milli Indíána og hvítra manna fari ekki minnkandi eða geti ekki farið minnkandi. En full aðlögun virðist eiga fjarska langt í land og óvíst, að hún náist nokkurn tíma, enda vafa- samt, hvort hún sé æskileg. Persónu leiki Indíána virðist það sterkt mót- aður, ag honum verði ekki breytt í einni svipan, þrátt fyrir margháttaða ytri aðlögun. Rannsókn var fyrir nokkrum árum gerð meðal Ojibwa- Indíána, sem dreifðir eru yfir mikið svæði, umhverfis vötnin miklu í Bandaríkjunum og Kanada og standa á ýmsum stigum aðlögunar við vest- ræna siði. Tilgangurinn var sá að reyna að komast að því, hvert sam- band væri milli ytra atferliskerfis, FYRRI HLUTI T í M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ 785

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.