Tíminn Sunnudagsblað

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Tíminn Sunnudagsblað - 27.10.1963, Qupperneq 3

Tíminn Sunnudagsblað - 27.10.1963, Qupperneq 3
bólgnar ár, Makastokknir menn, sýlaðir hestar. Hvað eftir annað skaut upp í huga hennar minn- ingum um Grána — elskaðan reið- hest hennar, sem nú hafði fyrir skcmmu verið felldur vegna aldurs Hann hafði aldrei brugðizt, hvað sem honum bauðst, og það var andvaka konunni mikil fró að hugsa um hann. Traustir hestar voru mikils virði þeiim, sem í kröggum lentu, og mikil var þakk arskuld manna við hest sinn. — Gráni hafði að sönnu aldrei verið notaður í leitir, en eigi að síður sungu nú í eyrum Sesselju orðin, sem Vigfús hafði látið falla urn hann í banalegunni. Hríðinni létti, og þremenning- arnir komust heilu og höldnu með hesta og fé til byggða. En Sess- elja á Jökli hélt áfram að hugsa um aðbúð manna og hesta á fjöll- unum, þegar Norðri læsti þau klóm sínum á haustdögum. Og sú hugsun þróaðist með henni að reisa Grána sínum minnisvarða með þeim hætti að koma þar upp sæluhúsi, er menn og skepnur gætu leitað athvarfs í, þegar á bjátaði. Það átt'i þó nokkurn að- draganda, að hún hæfist handa. En Sesselja var ekki kona, sem gleymdi því á morgun, er henni var í huga í dag. Hún hugsaði sitt ráð vandlega, og haustið 1919 tók hún að leita samskota til sæluhús- byggingar. Vafalaust hefur hún gengið að þessu af mestu elju, því að hún fékk 760 krónur í sjóð sinn á fáum mánuðum. Voru drýgst framlög sveitunga hennar í Saurbæjarhreppi, svo sem að líkum lætur, en einnig kom henni fé úr Hrafnagilshreppi, Önguls- staðahreppi, af Akureyri og jafn- vel austan úr Þingeyjarsýslu og vestan úr Skagafirði. Margir, sem fregnuðu, hvað Sesselja ætlaðist fyrir, vildu leggja nolckuð að mörkiun. Það sannast hér Sem oftar, að sigursæll er góður vilji. Það hafði verið ákveðið, að sæluhúsið skyldi reist í réttar- hvamminum við Geldingsá. Þar var eðlilegur gististaður manna í fjárleitum; þar voru góðir hagar, og þar höfðu þeir hafzt við, Jón, sonur hennar, og félagaf hans, haustnóttina nöpru, sem varð kveikjan að þessari hugmynd. Og þetta átti að vera svo rúmgóður kofi, að þar kæmust fyrir jafn- margir menn og hestar og gera máiti ráð fyrir, að þar þyrftu húsaskjóls í fjárleitum, Peningar þeir, sem fengust í fyrstu lotu, nægðu að sönnu ekki tll þess að greiða allan kostnað. En eigi að síður þótti nú fært að hefjast handa um efniskaup og annan undirbúning, því að þess var að vænta, að vinna gæfist og meiri peningar reyttust saman, þeg ar á reyndi. Jón Vigfússon rissaði því upp teikningu, og síðan voru fest kaup á viði. Nú lét Sessel'ja skammt st'órra högga á milli. Hún samdi við Að- alstein á Jórunnairstöðum, einn þeirra, er lenti í hríðinni haustið 1916, um að aka viðnum fram á svonefndar Hafráreyrar um vetur- inn, og er því var lokið, sendi hún á vettvang hóp ungra manna úr nágrenni við sig til þess að draga viðinn á skíðasleða upp Hafrár- gil og fram á miðjan Hafrárdal. Var það nokkuð erfiður dráttur og kom út svitanum á piltunum. En ekki stoðaði að víla. Undir sumar- málin kom svo kempan Hjálmar í Hólsgerði til skjalanna og flutti allan viðinn á hestsleða upp á vörðu þeirri, sem nefndist því hái heilaga nafni, Sankti Pétur, og stendur uppi á hábrúnVatnahjalla. f henni er sæti á móti suðri — eða er of djarft að nefna það altari og ætla það eiga upphaf sitt að rekja mörg hundruð ár aftur í tímann til þeirra daga, er þeir vegfarend- ur gerðu dýrlingum bæa — þeir, sem suður fóru Eyfirðingaveg, áð- ur en þeir lögðu á öræfin — hinir, sem sunnan komu, þegar þeir voru sloppnir heilir á húfi norður yfir og sáu niður í framdali Eyja- fjarðar. Snjóal'ög voru mikil í Eyjafirði vorið 1920 og tíð óstillt. Sunnu- daginn 9, maí var þó veður dátt að morgni, sólskin og hlýindi. Héldu þá tveir synir Sesselju, Jón og Vigfús, upp á Vatnahjalla, ásamt Hjálmari í Hólsgerði. Voru þeir með t'vo hestsleða, og á þeim óku þeír viðnum suður fjallið og yfir svonefnd Urðarvötn á ísi. Komust þeir um kvöldið suður að Geld- ingsá með efniviðinn, en þá var kominn norðangarður með hríð. Varð því harðsótt heim með veðrið í fangið. En efniviðurinn var þó kominn alla leið. Nú var það eitt eftir að koma húsinu upp. Sesselja mun hafa sótt sitt mál fast, en samt sem áður varð drátt'ur á því, að hús- byggingin hæfist. Menn, sem veitt höfðu henpi ádrátt um að standa fyrir smíðinni, brugðust þegar á reyndi. Þar að auki var leysing mikil á fjallinu fram eftir sumri og torfæri. En hún hélt áfram að þreyta róðurinn. Sunnudaginn 12. júlí sendi hún Jón, son sinn, á vett- vang við fimmt'a mann, og hafði það orðið að ráði, að hann skyldi standa fyrir byggingunni. Þeir félagar hófust þegar handa í réttarhvamminum, ristu torf, báru að grjót og telgdu við. Hlóðu þeir veggina úr torfi og grjóti, og var tóftin níu álnir á lengd, en fimm álnir á breidd. í suðurenda hússins gerðu þeir upphækkaðan bálk, þar sem svefnrými var fyrir fjóra menn, og afmörkuðu hann með grindum. Fyrir framan þær g rúmuðust átta hest'ar. Þegar sperr- S ur höfðu verið reistar, negld á þau gf langbönd og gengið frá þaki að 9 viðum til, tyrfðu þeir það vel og 9 vandlega. En allri vikunni urðu i þeir fimmmenningarnir að fórna 3 — það var kominn laugardags- H morgunn, er verkinu var lokið, og i mun þó ekki hafa verið siórað 1 eða grannt að því hugað í langdeg- 1 inu, hve margar klukkustundir S voru sólarhring hvern. Sjáifsagt hafa margir verið farn- i ir að bera út, þegar Jón Vigfússon | Frsmhald á 910. sí5u. Koflnn í hvamminum við Geldingsá. T í M I N N — í UNNUDAGSBLAÐ 891

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.