Tíminn Sunnudagsblað

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Tíminn Sunnudagsblað - 27.10.1963, Qupperneq 9

Tíminn Sunnudagsblað - 27.10.1963, Qupperneq 9
Talimanalysið, eem skeði i marz- mánuði 1922, er mér ákaflega minn- isstætt, 0nda átakanlegt svo að af bar. Bæði var það, að þar áttu hlut að Evfirðimgar, sumt gamlir kunn- ingjar, og svo hitt, að eigandi og út- gerðarmaður skipsins, Ásgeir Péturs- son á Akurevri, hafði falið mér um- boð sitt, þar sem þess þyrfti með. Mér var því manna kumuigast um -margs konar ráðstafanir og fram- Ikvæmd þeirra, sem að þessu lutu vestur frá. Líka skrifaði ég upp nokk- uð af því helzta, sem þeir, er af ko.m- ust, höfð'u að segja, en mun hins vegar aðeins drepa á sumt er að sjálfri sjúferðmni lýtur. Nákvæmari frásögn af sk'pshöfninni og lýsingu á alíri sjóferðinni og þeim áföllum, er skipið fékk og fleira, mun einn þeirra, sem af komst geta í bókinni „Því gleymi ég aldrei". sem kemur út bráðlega. Mér er frá æskudögum nafnið „kútt er Talisman ‘ minnisstætt. Það var 40—50 smálesta fiskiskip, keypt frá Bretlandi um aldamótin síðustu og bar iafnan hið brezka heiti. þótti gott sjóskip og ætið aflasælt, að sagt var. Er hér vai komið sögu þess, hafði Ásgeir Pétursson, útgerðarmaður á Akureyri, e'gnazt það, hafði látið allmjög endrrbæta það, og meðal annars látið setja í það hjálparvél. En áður en Asgeir eignaðist skipið, hafði um nokkurt árabil stýrt því ungur og vaslrur Hríseyingur, Míkael Guðiuundsson að nafni, og gengið ágætlega. en hafði samt hætt þar skipstjórn fyrir nokkrn. En er Ásgeir var orðinn eigandinn, lagði hann fast að Míkael að tsfca þar aftur við skip- stjórn, og réðist það svo. Nú skyldi kútter Talisman fiska við Suðurland þetta vor (1922) og sigla þangað < marzmánuði og flytja frosna beitusild suður. Og með full- fermi af slíkr* vöru lagði hann af stað frá Akrreyri aðfaranótt mánu- dags 20. marz 1 góðu veðri.' Urðu all- miklar tafir á leiðinni til Siglufjarð- ar, því byrleysa var og vélin allt af að bila. Og ei þangað var komið, þurfti að gera við vélina. Versnaði þá líka veður sv.) eð um munaði, og varð skipið að liggja á Siglufirði allan miðvikudagmr En í upprofi snemma á fimmtudagsmorgun var lagt af stað, og var þc veðurútlit harla tvísýnt. Skal nú kútter Talisman kvaddur um stund í pessari frásögn, meðan hann velkist í stódhríð og stórsjó vestur um Hunaflóa, fyrir Horn og Straumnes, Rit og ísafjarðardjúp og Vestur í mynni Önundarfjarðar, £ sína feigðarvör við Sauðanes, en sög- unni vikið tií Flateyrar á föstudags- fcvöld. Þar hafði verið vonzkuveður undan- fanna daga, en þó allsæmilegt í byggð á föstudag, en stöðugur sorti til hafe- ins. Höfðu tr.enn þar, sem sauðfé áttu, rekið þaé til beitar út á Hlíð, svo sem venja þeirra var. Var þar nokkurt misfenni og góð beit um rinda og hóla, er út fyrir Klofning kom, en það er hæðarrani, sem geng- ur I sjó fram nokkuð utan við Flat- eyri, en hún er norðánmegin fjarðar- ins, sem kunnugt er. Einn þeirra Flateyringa, sem fé átti úti við Kiofning, var Hinrik Guð- mundsson frá Görðum, síðar oddviti Flateyrarhrepps, dugnaðarmaður og sæmdarmaður. Og þegar fé hans kom ekki heim á venjulegum tíma um kvöldið, 'ór hann, og þó nokkuð seint, að hyggja að því, en fann það hvergi. Var þó ekki é. stóru svæði að leita, og þótti honum undarlega við bregða, taldi þó, að vera ’kynni, að féð hefði læðzt inn fjörur, án þess að hann yrði þess var og hætti því leitinni og sneri heim, e ida orðið skuggsýnt nokkuð. En heim hafði féð ekki kom- ið og varð því að liggja úti þá nótt. Snemma á laugardagsmorgun legg- ur Hinrik aftur af stað að lelta fjár- ins. Var veðiu sæmilegt á Flateyri. en dimmur hriðarsorti til hafsins og kembdi hríðarkóf af norðurfjöllunum. Og um svipað leyti voru tveir ungir menn ferðbur.ir frá Flateyri til Súg- andafjarðar. 'rar annar þeirra Páll Hallbjarnarson, síðar kaupmaður í Reykjavík, sem gist hafði þessa nótt á Flatejrri, er hinn Flateyringur, Kristján Krtstjánsson, og skyldi hann fylgja Páli yfii Klofningsheiðina, en hún er hár og brattur fjallvegur milli fjarðanna. Nú er pað af Hinrikl Guðmundssynl að segja, að hann skundar þegar út fyrir Klofninginn og finnur strax féð, einmitt þar sem hann bjóst við því um kvöldið, og þóttist vita. að það hlyti að vera. Eru þar smáhólar ut- an við Klofnihgsána kringum gamalt sel, og átti hann þar leið fram á bakk- ann. Sést þaðan út á svonefnda Kálf- eyri, sem er nokkru utar og er göm- < **»..■ ___ ■ i! i... . .-v. .. . ENCINN MÁ SKÖPUM RINNA - ÚR MINNINGAHRAFLI UM TALISMANSLYSIÐ FYRIR 40 ÁRUM - T I M 1 N N — SUNNUDAGSBLAÐ 897

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.