Tíminn Sunnudagsblað - 26.01.1964, Side 9

Tíminn Sunnudagsblað - 26.01.1964, Side 9
Guðmundur Guðnl I ræðustól, en vlð borðlð sltja Rikarður 'Hjálmarsson, formaður Iðunnar, og Slgurður frá Brún fundar- rltarl. Fyrlr framan Slgurð stendur vlsnasklplð Skálda. (Ljósm.: Tíminn-GE). Það er alls ekki víst, að mönnum sé almennt ljóst, að til er í Reykja- vik félagsskapur, sem hefur það að markmiði „að æfa kveðskap og safna rimnalögum og alþýðuvisum fornum og nýjum.“ Þó hefur slíkt félag verið starfrækt í hálfan fjórða tug ára. Nafn þess er Kvæðamanna félagið Iðunn, og það hefur allt frá stofnun verið helzti vettvangur þeirra manna, sem hafa kunnað að meta þá fornfrægu þjóðaríþrótt, kveðskaparlistina, og viljað leggja sitt af mörkum til að forða henni frá glötun og gleymsku. Og ekki er annað hægt að segja en að árangur hafi orðiö af starfsemi félagsins. Kvæðalögin gömlu og stemmurnar hafa ekki gengið fyrir ætternis- stapa eins og mikil hætta var þó á fyrstu áratugi aldarinnar, heldur lifir kveðskaparlistin enn góðu lífi á vörum margra, er lifandi tradi- tion enn þann dag i dag. Ég hafði lengi haft áhuga á að hnýsast ofurlítið í það, sem löunn hefur fyrir stafni, en eins og oft vill verða um góð áform, drógust framkvæmdir á langinn. Það var ekki fyrr en nú upp úr áramótum, að ég lét til skarar skríða og fór á fund hjá félaginu, og auk þess rabb- aði ég við formann þess, Ríkarð Hjálmarsson og aðra forystumenn. Ríkarður hefur verið formaöur Iðunnar tvö siðast liðin ár, en hann tók við því starfi af Sigurði Jóns- sýni frá Haukagili ,sem var for- maður 1954—62. Þegar ég bað Rík- arð að fræða mig eitthvað um sögu félagsins, fór hann með mig vestur á Bjarkargötu heim til Rósu Björns dóttur. Faðir Rósu, Björn Friðriks- son, var einn helzti hvatamaður að stofnun félagsins á sínum tíma, og Rósa og Elísabet systir hennar hafa verið þar félagar frá upphafl. Þarna á Bjarkargötunni hefur lengi verið eins konar miðstöð Iðunnar, og að þessu sinni hitti ég þar auk formannsins og Rósu, þau Elísa- betu Björnsdóttur og Þórð Jónsson mann hennar, en hann er varafor- maður Iðunnar, og Kjartan Hjálm- arsson, bróður Ríkarðs. Við setjumst niður og spjöllum um félagið og starfsemi þess og Rósa dregur fram bækur, bæði fundagerðarbækur og vísnasöfn. Ég fletti þessum bókum og sé strax, að þar kennir margra grasa. Ið- unnarfélagar hafa alltaf verið meira og minna hagmæltir og vísna gerð hefur dafnað í skjóli félagsins. Mikið af þeim skáldskap er að sjálf- sögðu bundinn við stað og stund, en innan um eru alltaf vísur, sem rísa yfir tilefnið og hafa almenn- ara gildi. Margir hafa flutt félag- inu kveðjur í ljóði. Strax á fyrsta ári þess kvað Ólína Andrésdóttir t.d. þessar vísur meðal annarra: Ferskeytlan er lítið ljóð, létt sem ský í vindi, þung og dimm sem þrumuhljóð, þétt sem berg í tindi. Ljós þitt skíni manni og mey, mýktu elli kalda. Meðan týnist málið ei, muntu velli halda. Og í nóvember 1932 kom María TÍMHSN - SUNNXJDAGSBLAÐ 81

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.