Tíminn Sunnudagsblað

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Tíminn Sunnudagsblað - 26.01.1964, Qupperneq 17

Tíminn Sunnudagsblað - 26.01.1964, Qupperneq 17
1 heimur orðinn vera sá Edenslundur, hvar enginn sá höggormur leyndist, er þeim blóðs- og bölmóði ylli, er svo vítt og breitt um veröld alla veld- ur ógnum og kvíða. — En máske einn góðan veðurdag renni þeir tímar upp — eins og sólroðið vor eftir lang- myrkan vetur. í skini kvöldsólar og hægum norð- austansvala renndi flugvélin austur yfir Fljótsdalshérað og lenti, á því nær tilteknum tíma, á flugvellinum á Egilsstöðum. Fljótsdalshérað, með sínu háa og tígulega Snæfelli, — næsthæsta fjalli landsins —, hinu breiða og fagurlygna Lagarfljóti, hin- um gróðursælu og víðfeðmu sveitum, er einn af gimsteinum íslenzkrar nátt- úru. Og Egilsstaðir eru höfuðprýði þessa fagra og frjóríka héraðs.'* Egilsstaðir eru óumdeilanlega hið glæsilegasta höfuðból fslands, og hef- ur svo um alllanga tíð verið. Þegar ég var að alast upp á Austurlandi, bjuggu að Egilsstöðum hin lands- kunnu hjón, Jón Bergsson og Margrét Pétursdóttir, er fyrst munu þeirra, er að Egilsstöðuim hafa búið, hafa gert nafn staðarins rómað. En nú hin síðustu 40—50 ár hafa búið þar Sveinn Jónsson — sonur Jóns og Margrétar — og kona hans, frú Sigríður Fanney Jónsdóttir og þarf þau hjón eigi að Ikynna fyrir landslýð. Og í eigu og höndum þeirra hafa Egilsstaðir fyrst og fremst orðið að því glæsta höfuð- bóli, sem raun ber vitni um. Vissu- lega eru Egilsstaðir vel í sveit settir. til búskapar, og ýmsum kostum bún- ir umfram margar aðrar jarðir. En það, sem hafið hefur Egilsstaði til þess glæsileika, sem þeir nú bera, er hinn óvenjulegi dugnaður þeirra . hjóna, Sveins og frú Sigríðar, hin sí- vökula framtakssemi þeirra í búnaðar1 háttum og hin óbifandi trú þeirra á niátt og frjómagn gróðurmoldarinnar íslenzku og það menningargildi, sem ræktun hennar hefur fyrir land og þjóðlíf. Vissulega hefðu slíkum fram- fara- og atorkumanni sem Sveini á Egilsstöðum staðið margar leiðir opn- ar til frama og athafna á sviði þjóð- lífsins — leiðir, sem máske hefðu kostað minni áhyggjur og erfiði en hörð barátta stórbúskanar títt hefur í för með sér. En Sveini á Egilsstöðum hefur þvílíkt farið sem hinum norska stórhöfðingja fornaldarinnar, Erlingi Skjálgssyni að Sóla. Þa er mágur Er- lings, Ólafur konungur Tryggvason, bauð honum jarldóm í Noregi, svar- aði Erlingur: „Hersar hafa frændur mínir verið, og vil ek eigi bera hærra nafn en þeir. En það vildi ek, konungur, að þér létuð mig mestan vera með því nafni í ríki yðar“. Sveinn á Egilsstöðum kaus sér eigi hærra nafn en forfeður hans, en svo sem Erlingur á Sóla vildi hann „hæst- ur vera með því nafni“. Og sá vilji Sveins á Egilsstöðum hefur náð tak- marki. Á Egilsstöðum mun nú vera rtór- brotnasti og stærsti búskapur ein- staks bónda á landi hér, bæði að rækt- un og fjölda búfénaðar. Og eitt er víst, að hver sem framvinda þóð- lífsins verður á komandi árum og tímum, munu verk þeirra Egilsstaða- hjóna geyma nafn þeirra og minn- Lngu, löngu eftir að þau sjálf hafa safnazt tll feðra sinna. Á Egilsstöðum hefur á síðari ár- um risið upp kauptún, sem stækkar árlega, og er hið myndarlegasta yfir að líta. Er það fyrsta og eina sveita- þorp á Austurlandi. Eftir nokkurra daga dvöl að Egils- stöðum héldum við feðginin niður til Borgarfjarðar. Fórum við með áætlunarbíl, .sem einu sinni í viku hverri gengur milli Borgarfjarðar og Egilsstaða, áætlunarferð, sem er í sam bandi við flugferðir frá Egilsstöðum. Leiðin til Borgarfjarðar liggur út Fljótsdalshérað, gegnum Eiðaþinghá og Utmannasveit — öðru nafni Hjalta- staðaþinghá — allt út að Héraðsflóa. Yzti bær við Héraðsfióa austanverð- an er Unaós. Þar nam land Uni danski Garðarsson, sá er hingað var sendur af Haraldi Noregskonungi hárfagra snemmendis á landnámsöld, og skyldi hann freista að koma landinu undir forræði Haraldar konungs og hljóta jarlstign yfir landinu að launum. En svo segja fornar heimildir, að er Hér- aðsmenn fengu vitneskju um erindi hans, vildu þeir honum í engu lið- Stórbýiið Egilsstaðir séð neðan frá Lagarfijóti. Hér er meðal annars bæði stunduð kornrækt og svinarækt. (Ljósm.: Páll Jónsson). f j TÍMINN - SUNNUDAGSBLAÐ 89

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.