Tíminn Sunnudagsblað - 11.10.1964, Page 10

Tíminn Sunnudagsblað - 11.10.1964, Page 10
! „Svona förum við að því, Lalli,“ sagði hann. „Bindum reipið við í jeppann og bregðum hinum endan- um í lykkju um hálsinn á tuddan- um. Þótt verið geti, að ég ráði ekki við dauðan flóðhest, skulum við sjá, hvort lifandi flóðhestur verður ekki feginn að hypja sig upp úr tjörn inni.“ Ég var ekki nema tíu ára þá, en þó kom ég auga á tormerki. „Hver á að binda reipið um háls honum?“ spurði ég. „Matíba, auðvitað — hver annar?“ svaraðí faðir minn steinhissa. „Kall- aðu á hann.“ Ég gerði það. Matíba kom hlaup- andi út úr eldhúsinu. Við sögðum honum, hvað hann ætti að gera, en i hann tók á rás á brott. „Allt í lagi,“ sagði pabbi, þegar hljóðin í þessu hjúi okkar voru hljóðnuð inni í kjarrinu. „Ég geri það þá sjálfur.“ • Fyrst bundum við reipið við beizl- ' ið aftan á bílnum, síðan gerði pabbi ! stóra lykkju á hinn enda þess og þokaði sér með hægð að tjörninni. Nykurinn leit til hans tortryggnis- augum og frísaði lágt. Sjáanlegt var, að hann var ergilegur ennþá. Ég heyrði, að faðir minn var tek- inn að tala við hann. „Rólegur nú, ' greyið. Ekki að kvíða neinu. Við ætl- um ekki að gera þér neitt. Kannski í mesta lagi að slíta af þér hausinn". | Hann þumlungaðist gætílega áfram, , þar til hann átti svo sem þrjá metra , ófarna að pollinum. „Rólegur . . .!“ , Hann kastaði spottanum og heppn- , aðist svo vel, að lykkjan féll niður , yfir eyru dýrsins. Nú færðist ánægju- svipur á pabba. En þá rykkti nyk- urinn upp hausnum og öskraði beínt framan í hann. Faðir minn hentist aftur á bak niður í blómabeð og lá þar bölvandi. En við hreyfinguna hafði lykkjan fallið niður fyrir nasir flóðhestsíns og um háls lionum. Drykklöng stund leið, áður en ég , gat komið pabba í skilning um þessa heppni. Þegar það hafði tekizt, varð hann glaður við, og þegar hann hafði tekið nokkrum sinnum í reipið með hægð, lagðist lykkjan sæmilega að hálsí dýrsins. „Jæja,“ sagði pabbi, þegar við vor- um að setjast inn í bílinn. „Nú fer að sjást fyrir endahn á þessu. Það er bara eitt, sem ég kann hálfilla við“. „Hvað?“ spurði ég. „Hann verður fastur við okkur, þegar við höfum náð honum upp úr — hangir aftan í jeppanum. Ég get \ varla sleppt svínínu með tuttugu metra af ágætisreipi í eftirdragi". Ég sá í huganum nykurkálfinn ' bundinn aftan í bílinn okkar, og mig ,sárlangaði til þess að horfa á það í | raun og voru. En ég fann það á mér ‘með eftirsjá, að varla myndi við því að búast. „Hvað um það“, hélt pabbi áfram með ánægjuhreim í röddinni og ræsti bílinn, „við athugum það, þegar að því kemur.“ Hann steig á benzínið og hleypti vagninum léttilega í gír. Bíllinn fór hægt af stað. Ég sat við hlið föður míns og sá ekki neitt aftur fyrir okkur, en ég fann, þegar strikkaði á reipinu. Við heyrðum það líka. Frá fiskatjörn- inni fyrir aftan okkur gullu við hroða leg heíftaröskur. Gusugangurinn var ofboðslegur. Hreyfillinn suðaði, hvæsti og grenjaði, og hjólin spóluðu hvissandi í mölinni. Allt í einu hent- umst við áfram — öllu heldur flug- um eins og okkur væri skotíð úr byssu og þrumuðum niður bílaslóð- ina til árinnar. „Hvert þó í heitasta," kallaði pabbi gamli sigri hrósandi. „Sá getur tekið tíl fótanna! Á fimmtíu — og stríkk- ar ekki vitund á . . .“ Það liðu nokkrar sekúndur — þá fóru að renna á hann tvær grímur. Hann hemlaði með hægð. Við stigum út og svipuðumst um. Það var enginn flbðhestur á eftir okkur og ekkert reipi heldur. Drátt- grind fyrirfannst engin . .. Fram að þessu hafði faðir minn verið sérlega hægur. En nú fór þetta að taka á taugar hans, og ég varð agnarlítið smeykur. Hann var orðinn ískyggilega rauður í andliti og farinn að hvæsa eitthvað út milli tannanna. Á leiðinni heim til bæjar aftur fann ég til þess með gleði, hve gott það var, að ég skyldi ekki vera þessi vesalings nykurkálfur. „Ætlarðu að skjóta hann núna, pabbi?“ dirfðist ég að spyrja. „Nei, andskotinn,“ öskraði faðir minn. „Ég ætla að ná honum lifandi, þó að það kosti mig vikuvinnu." Flóðhesturinn lá í tjörninní. Reip- ið var enn um háls honum, og beizl- ið af jeppanum þvældist úti í blóma- beði. En systir mín sat við tjörnina á hækjum sér og horfðist alvarleg í augu við nykurkálfinn. Vírtist fara hið bezta á með þeim — svo vel, að hún streittist harðlega á móti, þegar faðir minn steypti sér yfir hana eins og ránfugl, bar hana inn í húsið og lokaðí hana þar inni. „Leystu reipið,“ grenjaði hann til mín, um leið og hann hvarf inn úr dyragætttnni. Skjálfandi á beinunum hljóp ég til og ætlaði að hlýðnast, en svo hafði bræði hans dregið mátt úr mér, að þegar hann kom út aftur, hafði mér ekki tekizt að losa um einn einasta hnút. Hingað til hafði ég skemmt mér ljómandi vel — nú var mér farið að líka heldur illa við föður mínn, sem virtist ætla að eyði- leggja allt gamanið. 946 T I M I N N — SUNNUDAGSBLAf)

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.