Tíminn Sunnudagsblað - 31.07.1966, Qupperneq 4
„Ég er þeirrar skoðunar, að bókstaflega allt ofbeldi, sem við Suðurríkjamenn verðum fyrir, flí~ ■flEJPT-
sé runnið undan rifjum Ku Klux Klan“ segir Richmond Floivers, á myndinni til hægri. — „Þeir velja fórnarlömb sín vandlega — fórn- arlöinb, sem ekki geta veitt viðnám“. ★ HBlh
„f niðurrifshópana eru valdir mcnn frá vms- um héruðum, og þcir þekkja oft ekki hverir aðra. Þeir eru morðingjar, haldnir kvalalosta og njóta verka sinna.“
★ • -
„Það er ekki að undra, þótt venjulcgur borg- ari í Alabama sé tregur til að segja frá. Ham, veit, ef hann gerir Klaninum eitthvað, gelm eitthvert þjóðfélagslegt örverpi sprengt heim- ili hans í Ioft upp“.
Dómsmálaraöherra Alabamarskis, Richmond Flowers:
KU KLUX KLAN
Afi minn barðist með Suðurríkjun
nm. Hann var tekinn höndum í orr-
ustunni við Nashville og fluttur til
lítillar borgar í Illinois, þar sem
hann varð kokkur og þjónn hjá Norð
urríkjaliðsforingja. Þegar borgara-
styrjöldinni lauk, var afi minn flutt-
ur til Nashville og sleppt þar
lausum. Þar hóf hann göjigu sína
heim til konu og barns í suðurhluta
Alabama.
Hann gekk meðan hann mátti, en
vann á milli ýmis störf, sem til féllu
á leiðinni, til þess að hafa í sig.
Hann sagði mér, að heimferðin hefði
tekið sig sex mánuði. í Montgomery
komst hann í vöruflutningalest, sem
skilaði honum síðasta spölinn. Hon-
um fannst borgarastyrjöldinni vera
lokið.
í dag er fáninn, sem afi minn barð
ist undir, vanhelgaður. Hann, sem
ætti að vera heiðurstákn, er farinn
að tákna hatrið eitt í höndum ofstæk
isfullra manna, sem vilja viðhalda
misrétti kynþáttanna. Forfeður okk-
ar myndu snúa sér í gröfum sínum,
ef þeir mættu sjá fána sinn í hönd
um þeirra, sem troða undir fótum,
allt, sem þeir börðust fyrir. F'áninn
á skilið betri stað í sögunni en hon
um er nú valinn á vélarhúsum bíla
eða blóðugum kuflum hýðara þeirra,
morðingja og skuggabaldra, sem
kalla sig Ku Klux Klan.
Eftir úrskurð Hæstaréttar Banda-
ríkjanna 1954 um sameiginlega skóla
göngu hvítra barna og dökkra,
spruttu upp svokölluð Borgararáð um
öll Suðurríkin. Þetta voru sam-
tök skipulögð til andróðurs gegn úr
skurðinum, en þau fóru að lögum.
Þau einsettu sér að berjast gegn úr
skurðinum fyrir dómstólunum. En
inn i Borgararáðin flykktust brátt
allir, sem töluðu gegn sameiginlegri
skólagöngu. Ég gekk aldrei í samtök
in, því að ég vissi, að þegar stríð-
inu við dómstólana lyki, myndu öfga
mennirnir, sem hafizt höfðu til virð
inga í samtökunum, ekki fást til að
leysa þau upp. •
Borgararáðin töpuðu dómsmál-
unum, og leiðtogar þeirra gerðu sér
ljóst, að eina lausnin var samkomu-
lagsleiðin. En grófari hlutinn sagði:
„Nei, þið reynduð friðsamlegu leið-
ina, og hún brást. Nú förum við okk
ar brautir."
Ku Klux Klan var , þegar hér var
komið sögu, margklofirtn, fámennur,
hópur ofstækismanna, sem menn
hæddust að, þegar þeir þrömmuðu um
götur. En skyndilega tók hann að
vaxa. Klaninn lofaði því, að við mynd
um hverfa aftur til hinna góðu,
gömlu, daga, sem aldrei voru, við
myndum sitja á stórum plantekrum
innan um vínvið og magnólíur,
drekka höfug vín og eta steikur.
í starfi mínu sem dómsmálaráð-
herra Alabamaríkis hef ég rannsakað
Ku Klux Klan í eitt ár, og ég hef
gengið úr skugga um, að Klaninn
er miklu meira en réttur og sléttur
leynifélagsskapur. í Alabama eru
áhrif hans skelfileg. Hann minnir á
skuggaríkisstjórn, sem setur - sín
eigin lög, hefur áhrif á kosningar í
hverju héraði og grefur um sig í rétt
arfari okkar.
Félögum Klansins í Alabama hef-
ur fjölgað um helming á undanförn
um árum, og eru nú um 5 þúsunq
manns félagsbundnir í honum (þo
aðeins 0.2% af samanlögðum fjölda
hvítra manna í ríkinu, sem eru um
tvær og hálf milljón). Tíu félög Ku
Klux Klan starfa í Alabama og
keppa innbyrðis um hylli áhangend
anna. Langstærsti Klaninn er
The United Klans of America, Inc.
(Hin sameinuðu Klanfélög Ameriku
628
T í M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ