Tíminn Sunnudagsblað - 31.07.1966, Side 17

Tíminn Sunnudagsblað - 31.07.1966, Side 17
harður veruleiki, sem gerir mig a'ð hestasveini og Geira og Steina að dýraleiturum. Ég teymi hestana eftir miðhjallanum, Steini er talsvert langt á undan mér, en Geiri hverfur læðupúkalegur niður fyrir hjallann, með byssuna í hendi. Eftir drykk langa stund gefur Síeini mér merki um að koma, og brátt birtist Geiri hjá honum. Enginn rebbi þar. — Þetta er hundgamalt greni, yf ir hundrað ára, segir Geiri, ég hef ekki legið við það nema tvisvar á þessum þrjátíu árum. — Og ég hef legið einu sinni við það á mínum sjö árum, segir Steini. Við ríðum lengra inn Gljúfurleit ina, og þá kemur að Steina að vera iæðupúkalegur og hverfa. En þeir birtast báðir aftur fljótlega og ég held til þeirra. Steini situr á nafna sínum og dinglar fótunum: — Hér legði ég alltaf, ef ég væri tófa. — Og yrðir skotinn. — Nei. ég er of klókur. Geiri horfir niður í urðina, þar sem grenið er, tekur upp tóbaks- pontuna, slær í stein og fyllir nefið, dæsir. — Á, segir hann og stingur pont unni í vasann: — Þetta er kallað Standgreni. Ifún er hér oft, þótt hún sé ekki hérna núna. Við sitjum hver á sínum steini, hestarnir í hnapp hjá. — Það er víst bezt að fara að síga. Næsti áfangastaður er Dalsá. Og ég reikna vísindalega út á úrinu mínu, hvenær við verðum komnir þangað — það er stutt á úrinu mínu. Ég er þegar farinn að hugsa um ávaxtadósina, sem ég ætla að taka upp þar. En það stendur ekk ert um refi og duttlunga þeirra á úr skífunni: í Niðurgöngugili, sem er skammt neðan við hinn stórkostlega foss, Dynk, er greni, sem Geiri fann í hitteðfyrra, þegar hann var að ganga niður gilið, en það dregur nafn sitt af því, að þar fara göngumenn í Gljúfurleit niður í göngurnar. Steini kemur fyrstur að gilbrúninni, stanz ar snögglega og gefur merki, þrífur byssuna og læðist í einum keng að brúninni. Hann húkir þar dágóða stund, og óþolinmæðin r að drepa mig. Loksins gefur hann okkur merki og við læðumst til hans. Hann hvíslar lágum rómi: — Ég sá hann. Þeir læðast niður stórgrýtisurö og gægjast í hverja holu. Það er spennu þrungin þögn í öllum hreyfingum þeirra. Þeir eru lengi, og ég virði fyrir mér gilið, eða öllu heldur gil in, því að þarna koma fjögur þröng giljadrög saman í eitt gil, og neðst í stórgrýtisurð á krossgötum þeirra er grenið. Þar fyrir neðan er dálítil grastó og tær og lygn lækur. Hér er sviðið þröngt, sést ekki nema í gil brúnirnar og bláan himin fyrir ofan. Geiri og Steini koma aftur. Svipur þeirra er alvarlegur: — Þetta er meiri djöfulsins stað urinn, hvíslar Steini. — Hann gæti ekki verið verri, áréttar Geiri. Við húkum á bak við tröllstóra steina á gilbrúninni, og allt í einu hnippir Geiri í mig og segir: —Sérð‘ann. Og þarna liggur refurinn á moldar barði langt í burtu og horfir á okk ur sperrtum eyrum, hreyfingarlaus. Hann er hvítur. Eftir alllanga stund, smeygir Geiri sér bak við mig og hverfur. Hann ætlar að reyna að komast í færi. Við Steini látum refinn sjá okkur til þess að leiða athyglina frá Geira, og fylgjumst með honum. En skyndilega sprettur hann á fætur og er horfinn. Geiri kemur aftur. — Ég sá hann sem snöggvast. Ég leggst upp við stóran stein og rækta með mér þolinmæði. Og allt í einu birtist Geiri með yrðling í hönd- unum. Ég trúi varla mínum eigin augum. — Ég gómaði hann við gren- munnann, segir hann og brosir. Yrðlingurinn er umlukinn síórri greip hans, horfir með fallegum aug um út í bláinn og gefur ekki frá sér hljóð, fyrr en hann er settur í poka. Þá urrar hann reiðilega. — Þetta er mannsefni, segir Geiri. Þeir ákveða að tjalda í grastónni yið lækinn eftir nokkrar bollalegging ar og við klöngrumst niður stórgrýtis urðína með hafurtaskið. Síðan göng um við Geiri talsverðan spöl með hestana á haga og heftum þá, en Steini setur yrðlingaöx í gren- munnann. Klukkan er rúmlega tíu að kvöldi, mildur þeyr í iofti. Við byggjum skot byrgi úr grjóti á einum gilmúlanum. Þeir „máta“ það á alla vegu, munda byssurnar á grjótveggnum, húfurnar Steini aS ganga niður stórgrýtisurðina í Niðurgöngú- gili, þar sem grenið er. Tjaldið rétt fyrir neðan og tvö giliadrög i baksýn. — Félagarnir hvilast í tjaidinu. - r" ' ' " K' IÍM INM - SUNNUDAGSBLAÐ 641

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.