Tíminn Sunnudagsblað - 10.09.1967, Qupperneq 2
TINT UPP AF GOTUNNI
Björn Jakobsson
skrásetti
Teikning: Ingunn
Þóra Magnúsdóttir.
„VARSTU FEGINN AÐ LÚFFA"
Kristófer Brandsson gaf Einari Magnússyni, bónda á Steindórs-
stcSum, próventu sína og sat þar í ellinni. Síðustu árin var hann
blindur, og hafði helzt fyrir stafni að mala korn, eins og þá var
títt á bæjum.
Systursonur hans, Guðbrandur, bjó í allmörg ár á Kleppjárns-
reykjum, sem nú er læknissetur. Guðbrandur stundaði nokkuð
söðlasmíði, en var ekki mikill búmaður, og lengst af efnalítiil.
Þótti Kristófer systurscnur sinn ekki standa nógu vel í stykkinu
og ræddi stundum um það við sjálfan sig, en nógu hátt, svo að
aðrir heyrðu. Eitt sinn sat hann á rúmi sínu og hafði kodda á borði
fyrir framan sig og lét hann vera sem Guðbrand. Sagði hann nú
Guðbrandi óspart til syndanna, lét mörg og stór orð faila í hans
garð, og sem áherzlur lét hann högg dynja á koddanum. Varð hann
því þunghentari sem lengra leið á ræðuna, og við síðasta höggið
þeyttist koddinn út á gólf- Varð honum þá að orði með sigurhreim
í röddinni:
„Á, varsfu feginn að lúffa, Brandur?"
770
T í M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ