Tíminn Sunnudagsblað - 10.09.1967, Síða 16

Tíminn Sunnudagsblað - 10.09.1967, Síða 16
Kirkjan á Hofi var reisf á árunum 1883—84. Hún hefur veriS í umsjá þjóS- minjavarðar um árabil og var endurbyggS árið 1954. hverjum þokka, sem stórhýsin skortir stundum. Á slíkum stað getur maður skilið, hvernig séra Matthías ávarpar Hróarskeldudóm kirkjur „Nú er hálfs-þumlungs smáblómið himninum nær/báð- um háturnum þínum við ský.“ Skammt frá Hofi fundust bæj- arrústir árið 1954, og er talið full- víst, að þær séu af bænum Gröf, sem fór í eyði við gosið rnikla árið 1362. Gísli Gestsson rannsak- aði rústirnar næstu sumur, en þær hafa varðveitzt mjög vel und- ir þykku vikurlagi. Þessi fundur hefur mikíð menningarsögulegt Menn hverfa af sjónar svíðinu, — fróðleikur týn- ist. Það eina, sem getur varðveitt hann, er hið rit- aða orð. — Lesendur biaðsins eru beðnir að hafa þetta i huga, þegar þeir komast yfir fróðleík eða þekkingu, >em ekki má glatast. gildi, því að ekki eru annars stað- ar á landinu til rninjar bæjaUhúsa frá þessum tíma, og varpa rúst- irnar því nýju ljósi á þróun ís- lenzkra byggingarhátta. Að rann- sóknum loknum var mokað ofan í rústirnar, en væntanlega verða þær grafnar upp að nýju síðar meir og þá byggt yfir þær. Þegar austar dregur, er dimmt yfir og þokudrungað. Við förum fram hjá Kvíárjökli, en þar er talið, að Sveinn Pálsson hafj gert sér grein fyrir eðli skriðjökla, er hann var fyrstur manna á leið upp á Öræfajökul. Senn komum við að Kvískerjum. Það er mjög afskekktur bær, fimmtán kíló- metrar eru til Hnappavalla, næsta bæjar í Öræfum, og nærfellt heltn ingi lengra að Reynivöllum í Suð- ursveit. Á ICvískerjum búa nú fimm bræður, miklir gáfu- og fróðleiksmenn, sem af eigin ramm leik hafa aflað sér mikillar þekk- ingar á hinum ólíkustu sviðum. Þeir hafa, til að rnynda, gert ýms- ar merkar athuganir á sviði nátt- úrufræði. Veðurathuganir hófust á Kvískerjum fyrir nokkrum ár- u,m, og reynist þar vera mest ár- leg úrkoma, sem kunnugt er um á byggðu bóli hér á landi. Á Breiðamerkursandi blasa við dæmi um framsókn jö'kla og síð- ar rýrnun þeirra. Lengi var byggð undir Breiðamerkurfjalli. Þar var Fjall, landnámsbær Þórðar Illuga að menn ætla, og Breiðá, þar sem Kári Sölmundarson bjó. Byggð hélzt þarna fram eftir seytjándu öld, en lagðist þá af sakir ágangs jökla. Breiðamerkurfjall luktist jökli um 1700, og um svipað leyti hurfu rústir bæjanna undir jökul. En um síðustu aldamót lauk harð- indaskeiðinu, og árið 1946 kom þar, að Breiðamerkurfjall var ekki lengur lukt ísgreipum. Og nú komum við að Jökulsá, sem hlýtur að teljast eitt sér- kennilegasta vatnsfall á íslandi. Hún er örstutt, enda nábýli sjáv- ar og jökuls á þessum slóðum. en afar vatnsmikil að sumarlagi og þá óreið. Hafa mjög margir drukknað 1 ánni. Stundum var farið fyrir Jökulsá á jökli. en slík ferð var glæfraleg, og varð banaslys þar síðast fyrir fjörutíu árum. Miklar breytingar hafa orð- ið þarna á síðustu árum og ára- tugum,1 og hefur myndazt hyl- djúpt lón við jökulinn, og fiýtur þar borgarís. Við klöngrumst upp á brúna og hötdum eftir göngubraut á hennl miðri. Þegar yfir um er komið. kveðjum við Páll Sigurð Jakobs- son og þökkum konum fyrir sam- fylgdina. Og hæfa mun að enda þennan pistil, þar sem Páll er að ræsa Wlllysjeppann Z 128 á bakka Jökulsár. 784 T f M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.