Tíminn Sunnudagsblað - 21.01.1968, Blaðsíða 12
Skip viS bryggju í Höfn í HornafirSi. ÞaS er þó ekki Es jan, enda lagSist hún ekki þar að bryggju fyrir nær
fjórum áratugum.
„Þúsund ára óður íslenzkra verka-
manna“, sem út kom í Iðunni
þetta sumar, kom til álita við
verðlaunaveitingu, en þetta kvæði
hefur mér orðið minnisstæðara
en annað, sem þá kom út. Ef til
vill hefur mér orðið minnisstæð-
ast eftirfarandi erindi:
Ylur í lofti og ilmur af vori
andar nú fjær og nær.
Það er festa í augum og
f jör í spori,
því fólkið varð nj'tt í gær.
Og þessi nýja, náttgamla sveit
fær nýjan hreim i sitt mál,
nýjan himinn og nýja jörö,
nýja hugsun og sál.
Ef til vill hefur það einkum
verið vegna þess, hve ég var ung-
ur og fullur af lífstilhlökkun, að
mér hefur aldrei fundizt sldkur
ylur í lofti og ilmur af vori sem
þetta ár. Einnig fannst mér þjóð-
in auðugri af lífsþrótti og lífsfyr-
irheitum þá en nokkru sinm síðar.
Þetta sumar vann ég margþætt
störf til að afla mér gjaldeyris.
Ég byrjaði í vegavinnu um vorið,
vann nokkurn tíma að símavörzlu,
var í kaupavinnu um sláttinn og
vann i sláturhúsi kaupfélagsins
á Hornafirði um haustið.
Sannarlega var ylur í lofti og
ilmur á vori á Hornafiröi þetta
TORFI ÞORSTEINSSON
Torfi Þorsteinsson frá Hvammi i Austur
Skaftafellssýslu, tuttugu og tveggja ára
gamafl.
flmur af vori
Þáttur sá, er hér verður færð-
ur í letur, er hvorki saga eða ævin
týri, heldur aðeins ofurlitil endur
minning um löngu liðin atvik.
Ég ætla rétt sem snöggvast að
<renna huganum aftur til ársins
1930, sem var mikið merkisár I
sögu íslendinga. Þá minntist þjóð-
in þúsund ,ára afmælis alþingis
með dýrlegri hátíð á Þingvöllum.
Fjöldi erlendra þjóðhöfðingja
flykktist til íslands og flutti þjóð-
inni fögur ávörp og góðar gjafir.
Skáldin okkar ortu dýrt kveðin
ljóð, og Davið frá Fagraskógi vann
virðingarsætið og þjóðskáldstitil-
inn í verðlaunasamkeppni um
bezta hátíðarljóðið.
Etoki man ég með vissu, hvort
tovæði séra Sigurðar Einarssonar,
60
T f M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ