Tíminn Sunnudagsblað - 12.05.1968, Blaðsíða 21

Tíminn Sunnudagsblað - 12.05.1968, Blaðsíða 21
Liit’lu ©íitir að við Jón erum sezt- ir í stofu kemur inn ungleg kona með kai'fi Ég spyr, hvort þetta sé heimasætan á Þverá og fæ að sjá hregða fyrir roða á kinn um leið og hún svarar, að einu sinni hafi hún verið það. En í sama mund er kaHað hátt á mömmu, og í stofudyrum birtist gullinn kollur yfir blóðrjóðu barnsandliti. Utan úr firostsvaianum kemur yngsta barnið, þriggja ára, að leita skjóls hjá mömmu sinni. Og á meðan ég fæ að ve.rma hönd yngstu konunn- ar d bænum, verður mér ósjálf- rátt sú bæn í huga, að eftir svo sem tuttugu ár fái þessi' unga heimasæta það góða hlutskipti að taka í hönd einhvers myndarlegs borgarbúa. leiða hann ur ys borg- arlifsins vestur undir Snæfellsnes og með nonum yrkja þa.r land og eignast börn. Um kvöldið flytur Jón mig heim að Laugagerðisskóla. Þó stillt sé veður, er andkalt úti, enda ís fyr- ir öilu Norðurlandi og Austur- landi. Það er því notalegt að finna ylinn leggja á móti sér í stórum, rúmgóðum forsal skólahússins, sem hjtaður er upp með jarðhita eins og öll skólabyggingin. Á móti okkur tekur skólastjór- inn Sigurður Helgason, maður á bezta aldri. rösklegur og virðuleg- ur í senn. Állir dagar eru annadag- ar hjá húsbóndanum á þessu stóra heimili, og nú bætist við störfin h.an,s uindirbúningur mótsdns, sem halda á i sikóianum daginn eftir. Þrátt fyrir annríki skólastjóra mæti ég hinni mestu gestrisni. Skólastjóri býður mér til ibúðar sinnar, sýnir mér hluta af skóla- byggingunni og svarar spurning- um mínum um kennslutilhögun og reynslu hans í starfi. Skólinn er heimavistarskóli barna og ungl- inga í finim eða sex hreppum Snæfellsnes- og Hnappadalssýslu, mikil og glæsileg bygging. Þetta er þriðja starfisár skólans, en þó er skólahúsið eins og gljáfægð húsgögn, nýtekin úr umbúðum. Umgengni er þarna sýnilega til fyrirmyndar. BÖrnum á skólasvæðinu er skipt eítii aldri. og hvor aldursflokkur dvelst í skólanum hálfan mánuð í senn. Þá er hinn hópurinn heima, og þann tima eru sétt fyrir verk- efni til heimalesturs. Nemendur unglinigadeilda dveljast hin,s veg- ar í skólianum samflieytt allt kennslutímahilið. Skólastjóri segir, að börnin virðist una vel heima- vist skólans, þau hlakki að vísu til að koma heim, en foreldrar ýmissa þeirra telji, að þau þrái ekkcrt síður að byrja í skólanum eftir hálfsmánaðardvölina heima. Lét skólastjórinn vel af samstarfi við íoreldia á skólasvæðinu, en hann taldi að tvískipting kennslunn ar reyndi á skilningsgott samstarf skólans og heimila barnanna. Kvöldið líður fljótt, og ég sofna sætt og rótt og vakna klukkan rúmtega átta um morguninr við rödd skóiastjórans í hátölurum svefnherbergjanna. „Góðan dag. í dag er miðviku- dagur 3. apríl. Nú eiga allir að fara á fætur og taka vel til í her- bergjunum sínum.“ Með þessu morgunávarpi er haf inn nýr starfsdagur. Bjart og fag- u:rt veður kalliar mig út. Ég geng að sundlauginni, Kolivðarnesslaug, sem e,r örskammt frá skólabygg- ingunni. Laug þessi á merka sögu, því að strax um 1840 var byrjað að kenna þar sund. Ungmennafé- lag sveitarinnar hlóð laug úr torfi um 1920, en um tuttugu árurn síð- ar steypti félagið laugina í núver- andj form'. Og um það leyti, ár- ið 1938, mun á fundi Ungmenna- félags Eyjahrepps fyrst hafa kom- ið fram hugmyndin um að bvggja heimavistarskóla við Kolviðarness- laug Sýndi ungmennafélagið í verki þaKklæti sitt, þegar sá draumur hafði rætzt svo vel og myiidarlega sem raun ber vitni, með því að afhenda heimavistar- skólanum iaugina að gjöf á vígslu- hátíðinni 1965. Frá lauginni geng ég ofan að bænum Kolviðarnesi, sem ;er þó nokkur spölur. Útsýni er þaðan mikið og einkar fagurt eins og víðar í Eyjahreppi. Ég hitti að máli bóndann a bænuim, Odd Sigurðs- son. Við ræddum um búskap og bjargræðishætti, og að síðustu berst talið að heimavistarskólan- um. Bóndi á sjö börn á ýmsum aldrj og þrjú þeirra dveljast í Laugagerðisskóla, og er auðheyrt, að bóndi kann að meta hann., Um hádegið borða ég í matsal með nemendum skólans. Einn VoriS og bernskan elga samleiS. Hvort tveggja er tkeiS vaxtar og þroska. H6r sjáum viS unga telpu aS vorlagi viS æSarhreiSur. Hiósmynrf: Skúli Gunnarsson. T I M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ 357

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.