Tíminn Sunnudagsblað - 11.08.1968, Side 13
Etna gjósandi. Gosmökkurinn hnyklast yfir fjallinu og hraunkvísl sígur út um skaröið í gígbarminn.
bendluð við undirheima. Brenni-
steinsverksmiðja sást þarna í
fjarska og liafði 6 dagsláttna land-
rými. Lyktin frá henni var svip-
uð og úr Fúlalæk stundum. Öðru
hverju blöstu við bananaekrur,
möndlutrjágarðar, Jóhannesar-
brauðtré, smjörviðarlundir og
stöku gnæfandi árokaríur. Leið-
sögumaður tekur fram að leitt sé,
að smjörviðir beri ekki aldin fyrr
en eftir 15 ár frá gróðursetningu.
Garðar af gulaldintrjám sindruðu
hér og bar. Og í fenjum gat að
líta hnarreist tré eucalyptus glo-
bulus, er vaxa hratt, þurrka upp
land og úr fæst olía, dýrmæt í lyf
meðal annars.
Vegurinn var frábær, og innan
stundar aksturs vorum við á hin-
um langþráða sögustað: Sýrakúsu.
Sólin hellti geislum sínum yfir
borgina, ’jós þök húsanna uku á
birtuna, lofthiti var 27 gráður C.
Ský dró jafnt og þétt í efstu hlíð-
ar Etnu langt í austri, og brátt sá-
ust endrum og eins leiftur í sort-
T í M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ
S89