Tíminn Sunnudagsblað - 08.12.1968, Page 7
þótt hún gæti sjaldan farið ofan í
sjálf.
Birna grét, og María sagði: „Eg
kem aftur“, þegar þær kvöddu
fóstrumar í sveitinni í haust.
Nú eru fimm ár síðan Styrktar-
félagið eignaðist húsið í Mosfells-
sveit og frá upphafi hafa forráða-
menn félagsins ætlað sér að
reka þar heimavistarskóla að vetr-
inum, fyrir fötluð börn. Vonir
standa til, að sú fyrirætlun kom-
ist til framkvæmda eftir næstu ára
mót, og vitað er um tíu eða fimm-
tán börn, sem þann skóla mundu
sækja. í nútímaþjóðfélagi er góð
menntun þýðingarmikil fyrir þá,
sem hraustir eru, lífsnauðsynleg
fyrir fatlaða.
Slíkur skóli yrði nýr áfangi í
starfsemi félagsins.
Annar áfangi er bygging nýrrar
æfingastöðvar, sem nú er að hálfu
leyti lokið, „enda allir sjóðir tóm-
ir“ segir Jónína Guðmundsdóttir,
forstöðukona.
Hún ætlaði sér upphaflega að
verða iþróttakennari. Á skólanum
á Laugavatni heyrði hún Þorstein
Einarsson flytja erindi um sjúkra-
þjálfun lamaðra barna, og þar með
urðu þáttaskil. Hún fór til Osló og
lauk námi í þessari grein.
Eitt ár hafði hún starfað hér
heima, þegar mænuveikifaraldur
brauzt út, 1956. Margir veiktust,
sumir urðu aldrei jafngóðir.
Styrktarfélagið, sem stofnað hafði
verið fjórum árum áður, keypti í
skyndi stórt hús við Sjafnargötu
og setti þar upp æfingastöð fyrir
þá, sem voru að berjast við veik-
ina. Fyrstu mánuðina var stöðinni
stýrt af dönskum kvenlækni, dr.
Eskesen, en síðan tók Jónína við.
Mænuveikin var kveðin niður,
og starfssvið stöðvarinnar víkkaði.
Verkefni skortir ekki. Síðastliðið
sumar komu að jafnaði eitt hundr-
að og tuttugu sjúklingar á viku.
Tveir fastráðnir læknar skoða
Ihvern sem kemur , og sjö
sjúk'raþjálfarar, auk Jónínu, vinna
þar. Einhverjir, eða réttara sagt
einhverjar, þeirra eru ævinlega út
lendar, því íslenzkir sjúkraþj'álfar-
ar eru enn ekki nógu margir.
Til meðhöndlunar kemur fólk,
sem hefur lamazt sakir heilablóð-
falls, börn, sem þjást af meiri eða
minni fæðingarlömun, fólk sem
þarf að læra að nota spelkur eða
er illa haldið eftir beinbrot. Sum-
ir hafa slæma vöðvabólgu. Eng-
Framhald á 1006. siSu.
María litla hefur haft liðaglgt síðan hún var tveggja ára, orðið fyrlr vaxtar
truflunum og getur ekkl gengið óstudd. 'Hvernig fer hún að þvi að vera aiitaf
í góðu skapi?
Nýbygging Styrktarfélagsins vlð Háaleitisbraut.
T I M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ
99\